Fréttablaðið - 21.05.2022, Síða 71
Félags- og vinnumarkaðsráðuneytið auglýsir laust til umsóknar embætti skrifstofustjóra á skrifstofu
félags- og lífeyrismála. Skipað verður í embættið til fimm ára og æskilegt er að umsækjandi geti hafið
störf sem fyrst.
Hlutverk skrifstofunnar er að undirbyggja stefnumarkandi ákvarðanir ráðherra og hafa heildarsýn yfir
þau verkefni sem skrifstofunni er falið. Í starfi skrifstofustjóra felst stjórnun, áætlanagerð, stefnumótun,
markmiðssetning og mat á árangri. Í starfinu er lögð áhersla á nýsköpun og gott samráð og samstarf við
stofnanir ráðuneytisins og aðra hagaðila á málefnasviðum þess. Verkefni skrifstofunnar ná m.a. til þjónustu
við fatlað fólk, málefna eldra fólks, félagsþjónustu sveitarfélaganna og almannatrygginga auk gæðaeftirlits
í málaflokknum.
Um er að ræða áhugavert og fjölbreytt starf í krefjandi starfsumhverfi þar sem reynir á öguð vinnubrögð,
ábyrgð og sjálfstæði.
Umsóknarfrestur er til og með 13. júní nk.
Umsóknum skal fylgja starfsferilsskrá ásamt fylgigögnum um menntun og árangur í starfi og kynningarbréf
þar sem tilgreind er ástæða umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu.
Félags- og vinnumarkaðsráðherra skipar í embættið til fimm ára í senn, skv. reglum nr. 393/2012 um
ráðgefandi nefndir er meta hæfi umsækjenda um embætti við Stjórnarráð Íslands. Um embættið gilda
lög nr. 115/2011 um stjórnarráð Íslands og lög nr. 70/1996 um réttindi og skyldur ríkisstarfsmanna.
Laun eru samkvæmt kjarasamningi sem fjármálaráðherra og Félag háskólamenntaðra starfsmanna
stjórnarráðsins hafa gert.
Nánari upplýsingar veitir Gissur Pétursson, ráðuneytisstjóri, 545-8100
Ráðuneytið hvetur fólk óháð kyni, þjóðernisuppruna og fötlun til að sækja um.
Öllum umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um skipun í embættið liggur fyrir.
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi,
framhaldsmenntun er skilyrði.
• Farsæl reynsla af stjórnun og mannaforráðum.
• Mjög góð hæfni í mannlegum samskiptum og
leiðtogafærni.
• Þekking og reynsla á sviði opinberrar stjórnsýslu.
• Metnaður og vilji til að ná árangri.
• Þekking og reynsla af áætlanagerð og
stefnumótun.
• Skipulagsfærni.
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum.
• Gott vald á íslensku og færni til að tjá sig í ræðu
og riti.
• Góð kunnátta í ensku.
Embætti skrifstofustjóra
hjá félags- og vinnumarkaðsráðuneytinu
hagvangur.is