Fréttablaðið - 21.05.2022, Page 77

Fréttablaðið - 21.05.2022, Page 77
Laust er starf rannsóknarstofustjóra hjá Colas Ísland ehf. Starfið er fjölbreytt og snýr fyrst og fremst að rekstri rannsóknarstofu Colas að Gullhellu 1 í Hafnarfirði. Rannsóknarstofustjóri ber ábyrgð á að starfsemi rannsóknar- stofunnar uppfylli kröfur sem staðlar, lög og reglugerðir kveða á um. Á rannsóknarstofunni eru gerðar ýmsar rannsóknir á malbiki, biki, steinefnum, bikbindiefnum og borkjörnum. Næsti yfirmaður er deildarsjóri gæða, umhverfis og nýsköpunar. Við leitum að framsýnum og drífandi einstaklingi sem er tilbúinn að ganga til liðs við öflugan hóp sem stöðugt vinnur að nýsköpun og spennandi rannsóknum tengdum malbiki. Helstu verkefni og ábyrgð • Skipulagning og stýring á rekstri og starfsemi rannsóknarstofu Colas Ísland • Dagleg stjórnun starfsfólks • Meðferð gagna og skýrslugerð • Rannsóknir á: - Malbiki - Steinefnum - Endurunnu malbiki - Stungubiki - Bikbindiefni - Borkjörnum • Umsjón með gögnum og niðurstöðum sem koma frá prófunum og rannsóknum • Umsjón með kvörðun mælitækja og vöktunarbúnaðar alls fyrirtækisins. • Leiðbeiningar og kennsla starfsmanna á rannsóknarstofu • Fylgjast með tækniþróun í geiranum og innleiðing nýrra tækni og vinnubragða eftir því sem við á. • Þátttaka í gerð vinnuleiðbeininga, verklagsreglna og ferla sem snúa að starfssviði. • Þátttaka í rannsóknar- og þróunarverkefnum í nánu samráði við deildarstjóra • Upplýsingagjöf til hagsmunaaðila Menntunar og hæfniskröfur • Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem jarðfræði, efnafræði, verkfræði eða skyld fög • Reynsla af störfum á rannsóknarstofu kostur • Reynsla af mannaforráðum og stjórnunarstörfum æskileg • Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum • Skipulagshæfni • Nákvæmni • Góð almenn tölvuþekking • Góð færni í ensku og íslensku, bæði í ræðu og riti • Hæfni í mannlegum samskiptum • Rík þjónustulund • Bílpróf Nánari upplýsingar veitir Björk Úlfarsdóttir deildarstjóri gæða, umhverfis og nýsköpunar bjork@colas.is Við hvetjum jafnt öll kyn til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2022. RannsóknaRstofustjóRi Nánari upplýsingar um starfið veita Guðrún S. Gunnarsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri skrifstofu bankastjóra (gudrun.soley. gunnarsdottir@sedlabanki.is) og Erla Traustadóttir sérfræðingur á mannauðssviði (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur er til og með 30. maí. SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða sérfræðinga til að starfa í deild skrifstofustjórnar og samskipta á sviði skrifstofu bankastjóra. Skrifstofa bankastjóra hefur miðlæga yfirsýn yfir málefni, rekstur og starfsemi bankans, styður við störf bankaráðs og nefnda bankans auk seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Deild skrifstofustjórnar og samskipta ber ábyrgð á þjón- ustu við framangreinda aðila, sem meðal annars felst í undirbúningi funda, erinda, verkefnastjórn, ráðgjöf og undirbún- ingi nefndarstarfs. Deildin fer einnig með miðlægt utanumhald um verkefni og starfsemi bankans, innra upplýsingaflæði ásamt ytri upplýsingamiðlun. Þá hefur deildin yfirsýn yfir allt alþjóðlegt samstarf bankans og annast m.a. samskipti við Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og samstarf í kjördæmi Norðurlanda- og Eystrasaltsríkja Alþjóðagjaldeyrissjóðsins. Sérfræðingar á skrifstofu bankastjóra SEÐL ABANKI ÍSL ANDS Helstu verkefni: • Þjónusta og ráðgjöf við seðlabankastjóra, varaseðlabankastjóra, nefndir og svið Seðlabankans • Þátttaka í alþjóðasamstarfi m.a. á sviði Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og samstarfi seðlabanka um umhverfis- og loftlagsmál (NGFS) • Fjölbreytt sérfræðiverkefni sem koma til úrlausnar á sviðinu • Verkefnastjórn verkefna þvert á svið bankans Menntunar- og hæfniskröfur: • Meistarapróf í hagfræði, viðskiptafræði eða öðru sem nýtist í starfi • Góð reynsla og þekking á fjármálakerfinu og alþjóðlegu umhverfi • Reynsla af verkefnastjórnun • Reynsla eða þekking af opinberri stjórnsýslu æskileg • Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna sjálfstætt og með öðrum • Öguð vinnubrögð, ábyrgð, frumkvæði, sjálfstæði og metnaður í starfi • Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu og riti Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjald- eyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku, þekkingu og framsækni. Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd. Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öll- um umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996. 2022 - 2025 Múrarar óskast til starfa AQ-rat ehf byggingaverktakar leggja áherslu á að veita fyrirtækjum, húsfélögum og einstaklingum faglega og góða þjónustu, allt frá nýsmíði til viðhalds og endurbóta. Vegna aukinna verkefna leitum við af öflugum múrurum til að slást í hópinn með okkur og takast á við krefjandi verkefni. Við hvetjum múrara á besta aldri til að sækja um. Hæfniskröfur: • Iðnmenntun og að lámarki 5 ára starfsreynsla • Fagleg og sjálfstæð vinnubrögð • Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum skilyrði • Metnaður til að skila af sér vel unnu verki Umsóknir skulu sendast ásamt ferilskrá á runar@aqrat.is merkt „Múrari“ Nánari upplýsingar um starfið veitir Rúnar í síma 8920688 ATVINNUBLAÐIÐ 19LAUGARDAGUR 21. maí 2022
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.