Fréttablaðið - 21.05.2022, Síða 77
Laust er starf rannsóknarstofustjóra hjá Colas Ísland ehf. Starfið er fjölbreytt og snýr fyrst og fremst að rekstri
rannsóknarstofu Colas að Gullhellu 1 í Hafnarfirði. Rannsóknarstofustjóri ber ábyrgð á að starfsemi rannsóknar-
stofunnar uppfylli kröfur sem staðlar, lög og reglugerðir kveða á um. Á rannsóknarstofunni eru gerðar ýmsar
rannsóknir á malbiki, biki, steinefnum, bikbindiefnum og borkjörnum. Næsti yfirmaður er deildarsjóri gæða,
umhverfis og nýsköpunar.
Við leitum að framsýnum og drífandi einstaklingi sem er tilbúinn að ganga til liðs við öflugan hóp sem stöðugt
vinnur að nýsköpun og spennandi rannsóknum tengdum malbiki.
Helstu verkefni og ábyrgð
• Skipulagning og stýring á rekstri og starfsemi rannsóknarstofu Colas Ísland
• Dagleg stjórnun starfsfólks
• Meðferð gagna og skýrslugerð
• Rannsóknir á:
- Malbiki - Steinefnum - Endurunnu malbiki - Stungubiki - Bikbindiefni - Borkjörnum
• Umsjón með gögnum og niðurstöðum sem koma frá prófunum og rannsóknum
• Umsjón með kvörðun mælitækja og vöktunarbúnaðar alls fyrirtækisins.
• Leiðbeiningar og kennsla starfsmanna á rannsóknarstofu
• Fylgjast með tækniþróun í geiranum og innleiðing nýrra tækni og vinnubragða eftir því sem við á.
• Þátttaka í gerð vinnuleiðbeininga, verklagsreglna og ferla sem snúa að starfssviði.
• Þátttaka í rannsóknar- og þróunarverkefnum í nánu samráði við deildarstjóra
• Upplýsingagjöf til hagsmunaaðila
Menntunar og hæfniskröfur
• Háskólamenntun sem nýtist í starfi svo sem jarðfræði, efnafræði, verkfræði eða skyld fög
• Reynsla af störfum á rannsóknarstofu kostur
• Reynsla af mannaforráðum og stjórnunarstörfum æskileg
• Frumkvæði og sjálfstæði í vinnubrögðum
• Skipulagshæfni
• Nákvæmni
• Góð almenn tölvuþekking
• Góð færni í ensku og íslensku, bæði í ræðu og riti
• Hæfni í mannlegum samskiptum
• Rík þjónustulund
• Bílpróf
Nánari upplýsingar veitir Björk Úlfarsdóttir deildarstjóri gæða, umhverfis og nýsköpunar bjork@colas.is
Við hvetjum jafnt öll kyn til að sækja um starfið. Umsóknarfrestur er til og með 31. maí 2022.
RannsóknaRstofustjóRi
Nánari upplýsingar um starfið veita Guðrún S. Gunnarsdóttir, aðstoðarframkvæmdastjóri skrifstofu bankastjóra (gudrun.soley.
gunnarsdottir@sedlabanki.is) og Erla Traustadóttir sérfræðingur á mannauðssviði (mannaudur@sedlabanki.is). Umsóknarfrestur
er til og með 30. maí.
SEÐLABANKI ÍSLANDS óskar eftir að ráða sérfræðinga til að starfa í deild skrifstofustjórnar og
samskipta á sviði skrifstofu bankastjóra.
Skrifstofa bankastjóra hefur miðlæga yfirsýn yfir málefni, rekstur og starfsemi bankans, styður við störf bankaráðs og
nefnda bankans auk seðlabankastjóra og varaseðlabankastjóra. Deild skrifstofustjórnar og samskipta ber ábyrgð á þjón-
ustu við framangreinda aðila, sem meðal annars felst í undirbúningi funda, erinda, verkefnastjórn, ráðgjöf og undirbún-
ingi nefndarstarfs. Deildin fer einnig með miðlægt utanumhald um verkefni og starfsemi bankans, innra upplýsingaflæði
ásamt ytri upplýsingamiðlun. Þá hefur deildin yfirsýn yfir allt alþjóðlegt samstarf bankans og annast m.a. samskipti við
Alþjóðagjaldeyrissjóðinn og samstarf í kjördæmi Norðurlanda- og Eystrasaltsríkja Alþjóðagjaldeyrissjóðsins.
Sérfræðingar á
skrifstofu bankastjóra
SEÐL ABANKI ÍSL ANDS
Helstu verkefni:
• Þjónusta og ráðgjöf við seðlabankastjóra,
varaseðlabankastjóra, nefndir og svið
Seðlabankans
• Þátttaka í alþjóðasamstarfi m.a. á sviði
Alþjóðagjaldeyrissjóðsins og samstarfi
seðlabanka um umhverfis- og loftlagsmál
(NGFS)
• Fjölbreytt sérfræðiverkefni sem koma til
úrlausnar á sviðinu
• Verkefnastjórn verkefna þvert á svið
bankans
Menntunar- og hæfniskröfur:
• Meistarapróf í hagfræði, viðskiptafræði eða öðru sem nýtist
í starfi
• Góð reynsla og þekking á fjármálakerfinu og alþjóðlegu
umhverfi
• Reynsla af verkefnastjórnun
• Reynsla eða þekking af opinberri stjórnsýslu æskileg
• Lipurð í mannlegum samskiptum og hæfni til að vinna
sjálfstætt og með öðrum
• Öguð vinnubrögð, ábyrgð, frumkvæði, sjálfstæði og
metnaður í starfi
• Gott vald á íslensku og ensku og færni til að tjá sig í ræðu
og riti
Seðlabanki Íslands er sjálfstæð stofnun í eigu ríkisins sem heyrir undir forsætisráðherra. Markmið bankans
er að stuðla að stöðugu verðlagi, fjármálastöðugleika og traustri og öruggri fjármálastarfsemi. Þá skal
bankinn sinna viðfangsefnum sem samrýmast hlutverki hans sem seðlabanka, svo sem að varðveita gjald-
eyrisforða og stuðla að virku og öruggu fjármálakerfi. Hjá Seðlabankanum starfar öflug liðsheild og leggur
bankinn ríka áherslu á metnaðarfullt og hvetjandi starfsumhverfi sem einkennist af trausti, fagmennsku,
þekkingu og framsækni.
Um er að ræða 100% starfshlutfall með starfsstöð í Reykjavík. Sótt er um starfið á heimasíðu Seðlabanka
Íslands, www.sedlabanki.is/storf. Með umsókn þarf að fylgja ferilskrá og kynningarbréf þar sem gerð er grein
fyrir ástæðu umsóknar og hæfni viðkomandi til að gegna starfinu rökstudd.
Við ráðningar í störf hjá Seðlabanka Íslands er tekið mið af jafnréttisstefnu og jafnréttisáætlun bankans og er fólk af öllum kynjum hvatt
til að sækja um. Laun greiðast samkvæmt kjarasamningi samtaka starfsmanna fjármálafyrirtækja. Umsóknir gilda í sex mánuði og öll-
um umsóknum verður svarað þegar ákvörðun um ráðningu hefur verið tekin. Vakin er athygli umsækjenda á því að um ráðningarferlið
gilda m.a. stjórnsýslulög nr. 37/1993, upplýsingalög nr. 140/2012 og lög um réttindi og skyldur starfsmanna ríkisins nr. 70/1996.
2022 - 2025
Múrarar óskast til starfa
AQ-rat ehf byggingaverktakar leggja áherslu á að veita
fyrirtækjum, húsfélögum og einstaklingum faglega og góða
þjónustu, allt frá nýsmíði til viðhalds og endurbóta.
Vegna aukinna verkefna leitum við af öflugum múrurum til að
slást í hópinn með okkur og takast á við krefjandi verkefni.
Við hvetjum múrara á besta aldri til að sækja um.
Hæfniskröfur:
• Iðnmenntun og að lámarki 5 ára starfsreynsla
• Fagleg og sjálfstæð vinnubrögð
• Lipurð og hæfni í mannlegum samskiptum skilyrði
• Metnaður til að skila af sér vel unnu verki
Umsóknir skulu sendast ásamt ferilskrá á runar@aqrat.is
merkt „Múrari“
Nánari upplýsingar um starfið veitir Rúnar í síma 8920688
ATVINNUBLAÐIÐ 19LAUGARDAGUR 21. maí 2022