Fréttablaðið - 21.05.2022, Síða 90
Við leit-
umst eftir
því að hafa
hjá okkur
fólk með
eins fjöl-
breyttan
bakgrunn
og hægt er
þegar litið
er til kyns,
aldurs,
mennt-
unar og
reynslu.
Isavia er gríðarlega stór
vinnustaður. Þar starfa
um 1.200 manns, flestir á
Keflavíkurflugvelli. Starfs-
fólkið tekst á við afskaplega
fjölbreytt og ólík verkefni.
Framlínustörfin eru spenn-
andi. Þar á starfsfólk í beinu
og virku samtali við farþega
og gesti flugstöðvarinnar.
Þess utan eru ótal sérfræði-
störf sem inna þarf af hendi.
„Við erum með alla flóruna af
sérfræðistörfum,“ segir Brynjar
Már Brynjólfsson, mannauðs-
stjóri Isavia. „Hjá okkur er öflugt
teymi af verkfræðingum með það
verkefni að byggja upp flugvöllinn
í einhverjum þeim stærstu fram-
kvæmdum sem ráðist hefur verið í
á landinu. Við erum með sérfræð-
inga sem bera ábyrgð á að auka
gæði Keflavíkurflugvallar með því
að tryggja fjölbreytt úrval verslana
og veitingastaða. Þá er annað
starfsfólk sem sinnir öryggis- og
gæðamálum, sem tryggir að allt
gangi eins og vera ber í rekstrinum.
Við erum með fjármálasérfræð-
inga, þrautreynt fólk í innkaupa-
málum og svo mætti lengi telja.
Það má segja að öll menntun og
reynsla nýtist við störf hjá Isavia.“
Brynjar segir að markmið Isavia
sé að vera í forystu fyrir flugvallar-
samfélagið á Keflavíkurflugvelli
sem samanstendur af Isavia og
þeim aðilum sem eru í rekstri í
f lugstöðinni og á flugvallarsvæð-
inu. „Við vinnum náið með öllum
á vellinum. Við lítum svo á að þótt
fólk sé á launaskrá hjá Isavia sé það
að starfa með mörgu öðru starfs-
fólki ólíkra félaga og fyrirtækja í
þessu lifandi og síkvika umhverfi
sem Keflavíkurflugvöllur er. Sama
á auðvitað við um aðra flugvelli
landsins.“
Þrjár konur og þrír karlar í
framkvæmdastjórn Isavia
Brynjar segir að Isavia hafi sett sér
það markmið að tryggja fjölbreyti-
leika starfsfólks. „Við leitumst
eftir því að hafa hjá okkur fólk
með eins fjölbreyttan bakgrunn
og hægt er þegar litið er til kyns,
aldurs, menntunar og reynslu. Við
vinnum til að mynda að því að
jafna kynjahlutföll í stjórnenda-
stöðum hjá okkur.“
Isavia á menningarvegferð –
öryggi og vellíðan í vinnunni
Brynjar Már
Brynjólfsson,
mannauðsstjóri
Isavia, segir að
Isavia hafi sett
sér það mark-
mið að tryggja
fjölbreytileika
starfsfólks.
FRÉTTABLAÐIÐ/
SIGTRYGGUR ARI
Brynjar bendir á í þessu
samhengi að í framkvæmda-
stjórn Isavia sitji sex manns, þrír
karlmenn og þrjár konur. Þá séu
dótturfélög Isavia þrjú, Isavia ANS,
sem annast flugleiðsöguþjónustu,
Isavia innanlandsflugvellir, sem
rekur innanlandsflugvelli og lend-
ingarstaði á Íslandi, og Fríhöfnin.
Til viðbótar er hugbúnaðarfyrir-
tækið Tern Systems sem heyrir
undir Isavia ANS. Framkvæmda-
stjórar tveggja þessara félaga eru
konur og framkvæmdastjórar
hinna tveggja karlar. „Skiptingin í
æðsta stjórnendalaginu hjá Isavia
og dótturfélögum gæti því ekki
verið jafnari,“ segir Brynjar. „Þetta
er öflugt fólk með mikla reynslu og
svo skemmtilega vill til að kynja-
skiptingin er þessi.“
Menningarsáttmáli sem allir
geta tengt við
Isavia uppfærði stefnu félagsins
nýverið. Tilgangur félagsins var
þá skilgreindur þannig að Isavia
leiði flugvallarsamfélag sem auki
lífsgæði og velsæld á Íslandi. Fram-
tíðarsýnin er að tengja heiminn í
gegnum Ísland. „Stefnuhringurinn
er síðan áttavitinn um áherslur
fyrirtækisins til framtíðar,“ segir
Brynjar. „Hann tengir ólíkar
áherslur í stefnunni saman og
leiðir okkur þannig að framtíðar-
sýninni.“ Brynjar segir að í þessari
vinnu hafi verið tekin sú ákvörðun
að setja hefðbundin gildi til hliðar
um sinn. „Við settum okkur þess í
stað menningarsáttmála.“
Isavia innleiðir kjörmenningu
„Menningarsáttmálinn er leiðar-
ljós og leiðarstef okkar í hegðun
og á að lýsa þeirri kjörmenningu
sem við erum að innleiða,“ segir
Brynjar. „Það er ótrúlega gefandi
fyrir allan mannauðinn okkar að
sú ákvörðun hafi verið tekin af
stjórnendum að greina þá vinnu-
staðamenningu sem var áður hjá
félaginu og í framhaldinu ákveða
hvert við vildum stefna í þeim
efnum.“
Brynjar segir að í fyrra hafi
verið lagt af stað í mikla vegferð
til að greina þá vinnustaðamenn-
ingu sem var til staðar hjá Isavia,
ákveða hvaða menning hentaði
félaginu best og innleiða hana
síðan. Menningin er miðuð út frá
einstaklingnum og horft er til þess
að greina hegðun fólks, hvernig
hegðun byggi upp samskipti og
bæti þau og hvernig hegðun brjóti
þau niður og skemmi fyrir. „Þannig
gefum við okkur einstaklingunum
og fyrirtækinu tækifæri til að vaxa
og dafna.“
Síðan verkefninu var hrundið af
stað hefur verið unnið í stórum og
smærri hópum með vinnustofum í
hverri einingu og þvert á fyrirtæk-
ið, til að greina það sem telst vera
uppbyggjandi, drottnandi og óvirk
eða passíf menning. „Markmiðið
er að þróa hvetjandi hegðun meðal
starfsfólks, auka sjálfsþroska þess
og efla tengsl milli fólksins í fyrir-
tækinu. Þannig náum við árangri
saman.
Við hjá Isavia erum afar ánægð
með og stolt af því að ákveðið hafi
verið að ráðast í þetta verkefni,“
segir Brynjar. „Við erum í sam-
einingu að móta og innleiða
heilbrigða og uppbyggjandi fyrir-
tækjamenningu sem verða á öllum
til góðs.“ ■
Flugvallarþjónusta er ríkur þáttur í starfi Isavia.
Miklar framkvæmdir standa yfir á Keflavíkurflugvelli.
Á skrifstofu Isavia er nóg að gera alla daga.
Menningarsáttmáli Isavia
Við sýnum hvert öðru virðingu
og erum heiðarleg gagnvart
sjálfum okkur og öðrum.
Við gætum þess að viðhalda
gleðinni, erum hugrökk, upp-
byggileg og tökum ábyrgð á
eigin frammistöðu.
Saman náum við árangri.
26 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðsMál