Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 92

Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 92
Við leggjum mikla áhersla á aukinn skýrleika og hraða í ákvarðanatöku með það að markmiði að minnka sóun sem felst í getgátum um fyrirætlanir og bið eftir ákvörðunum. Flest okkar þekkja Landsnet úr fréttum þegar eitthvað bjátar á, þegar óveður ganga yfir landið og ljósin á land- inu fara út. Landsnet er einn af lykilinnviðum þjóðar- innar og því fylgir mikil ábyrgð. Örugg afhending orku er mikil- vægasta viðfangsefnið Landsnets en hjá fyrirtækinu starfar úrvals teymi starfsfólks sem hefur lagt mikið á sig undanfarin ár við að halda flutningskerfinu gangandi við mjög erfiðar aðstæður. Saman getum við flutt fjöll Hópur lagði á árinu upp í ferðalag, menningarvegferð, þar sem þau horfðust í augu við sig sjálf og hvernig fyrirtæki þau vildu vera. Valka Jónsdóttir, mannauðsstjóri Landsnets, segir að vegferðin hafi gert fyrirtækið og samstarfsfólk hennar betur til þess fallin að upp- fylla loforðin sem Landsnet hefur gefið samfélaginu um örugga og áreiðanlega afhendingu orku. „Síðustu ár hafa verið mjög krefjandi, ár heimsfaraldurs, heimavinnu, hólfaskiptingar, fjarfunda og framkvæmda sem skapaði krefjandi aðstæður í dag- legum rekstri fyrirtækisins. Á sama tíma var ákveðið að skoða menninguna okkar í ljósi þeirra breytinga sem framundan eru í orkumálum. Við vildum standa fyrir því sem framtíðin krafðist af okkur. Stórar spurn- ingar sem þurfti hugrekki til að svara,“ segir Valka en menning er í hennar huga einn stærsti þáttur- inn í góðum og eftirsóknarverðum vinnustað. „Við viljum geta staðið undir miklum væntingum og eigum í meiri samskiptum við viðskipta- vini og hagsmunahópa en áður, sem gera auknar kröfur á okkur. Tækninni fleygir áfram með til- heyrandi flækjustigi og það er ekki bara okkar hlutverk, heldur skylda, að vera í stakk búin að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Það er samt svo að mann- skepnan getur ekki endalaust bætt á sig vinnu, aukið hraða og bætt gæði án þess að álag og streita fari að gera vart við sig við. Það getur endað illa með alvarlegum streitu- einkennum og jafnvel kulnun. Við, sem teymi getum hins vegar bætt okkur endalaust með því að breyta hvernig við vinnum saman, tölum saman, styðjum hvert annað, hvernig við hugsum, hvernig við tökum ákvarðanir, bregðumst við, þroskumst og þróumst. Við vinnum ekki hraðar heldur snjallar og getum með því flutt fjöll.“ Ferðalagið Það voru einkum tveir drifkraftar sem ráku Landsnet áfram í að fara í þessa vegferð. Annars vegar einlægur vilji til að gera gott betra og viljinn til að gera fyrirtækið að einum besta vinnustað landsins. Það eru miklar breytingar í gangi í orkugeiranum, breytingar sem umbylta því hvernig hann virkar. Því fannst okkur nauðsynlegt að undirbúa fyrirtækið fyrir þessar breytingar og það er hvergi betra að byrja slíkan undirbúning en í menningunni.“ Síðustu tvö ár hefur verið unnið með stjórnendum og starfsfólki að því að gera vinnustaðinn enn betri með uppbyggjandi nálgun á sam- skipti og verkefni og með áherslu á lærdóm og þroska, gagnsæi og endurgjöf. „Við leggjum mikla áhersla á aukinn skýrleika og hraða í ákvarðanatöku með það að mark- miði að auka virði og minnka sóun sem felst í getgátum um fyrir- ætlanir og bið eftir ákvörðunum. Á sama tíma er unnið í forgangs- röðun verkefna þannig að færri verkefni séu í vinnslu á hverjum tíma. Síðast en ekki síst má nefna að verið er að innleiða öfluga og faglega breytingastjórnun. Ráðið var í stöðu leiðtoga breytinga til að byggja enn betur undir fag- lega breytingastjórnun því við hjá Landsneti ætlum að innleiða besta vinnulag, ferla og samskipti ásamt því að takast á við miklar breytingar á ýmsum sviðum sem tengjast öðrum lykilverkefnum,“ segir Valka og bendir á að í dag sé mikil undiralda í samfélaginu. En til að vita hver staðan er þurfti að taka stöðuna, kortleggja hver menningin væri í fyrirtækinu og var það gert. Allir starfsmenn fengu spurningalista þar sem spurt var hvernig fólk upplifði menn- inguna eins og hún væri í dag og hvernig fólk vildi hafa menn- inguna. „Niðurstaðan var að starfsfólkið vildi breyta menningunni í takt við nýjar og breyttar áskoranir. Mikilvægt var fyrir okkur öll að fara í þessa vegferð. Það er margt sem við þurfum að huga að til að geta tekist á við þær áskoranir. Við þurftum að sýna hugrekki, þora að fara út fyrir þægindaramm ann, hafa vilja til breytinga og tileinka okkur ný gildi og viðmið. Að auki þurfum við að segja það sem við erum að hugsa á uppbyggilegan máta og spyrjum erfiðra spurninga með virðingu og umhyggju að leiðarljósi,“ segir Valka. Við höfum verið með vinnu- stofur með ráðgjöfum þar sem við lærum um hvað vinnustaðamenn- ing er, um ólíka samskiptamáta og æfum okkur í uppbyggilegum samskiptum. Við erum í vina- hópum (buddies) þvert á fyrir- tækið þar sem við byggjum upp sálfræðilegt öryggi, segjum sögur um hvernig okkur gengur, æfum samskiptin og fáum stuðning og endurgjöf. Við höfum verið með sérstaka stjórnendaþjálfun því yfirmenn þurfa að vera fyrir- myndir og sýna gott fordæmi og byggja þannig upp þá menningu sem við öll stefnum að. Loks má nefna að við höfum boðið öllu starfsfólki okkar að taka 360° mat þar sem hver og einn starfsmaður fær skýrslu um sjálfan sig byggða á sömu hugsana/hegð- unarstílum og fyrirtækið og getur þannig tekið þátt í uppbyggilegri þróun á sjálfum sér og með fyrir- tækinu.“ Vegferðinni er svo langt frá því að vera lokið og margar áskoranir fram undan en Valka og hennar fólk er spennt fyrir framtíðinni og ferðalaginu. „Við viljum vera vel í stakk búin til að takast á við áskoranir framtíðarinnar. Við ætlum að vera þekkt fyrir að vera forvitin, upp- byggileg, styðjandi og meðvituð. Til að ná árangri ætlum við að virkja aðra með okkur. Það gerum við með því að hlusta og eiga uppbyggjandi samtöl sem byggja á virðingu og sanngjarnri gagnrýni með jákvæðu viðmóti og heilindum. Hvert og eitt okkar er mikilvægur hluti af því afli sem mun knýja áfram bjarta framtíð Landsnets. Í sameiningu getum við náð óralangt og haft áhrif á sam- félagið til góðs. Á leiðinni munum við eflaust gera mistök en við ætlum að til- einka okkur lærdóminn sem þeim fylgir. Þannig hjálpum hvert öðru að rísa upp og byggjum saman upp rafmagnaða framtíð.“ n Saga af ferðalagi, breytingum og eftirsóknarverðum vinnustað Valka Jónsdóttir segir að Landsnet sé með sérstaka stjórnendaþjálfun því stjórnendur þurfa að vera fyrirmyndir og sýna gott fordæmi. FRÉTTABLAÐIÐ/ ERNIR 28 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðSMál
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.