Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 98
Námsefnið er
hannað sérstaklega
til þess að fólk geti farið
gegnum það á eigin tíma,
stað og hraða – og jafnvel
á eigin vegum, óháð
vinnustöðunum.
Dæmi um námskeið Opna háskólans:
• Mannauðsstjórnun og leiðtogafærni
• PMD stjórnendanám HR
• Stjórnendamarkþjálfun í samvinnu Coach U
• Fyrstu skrefin að jafnlaunavottun – STAFRÆNT
• Mannauðshlutverk stjórnenda frá A-Ö – STAFRÆNT
• Að leiða teymi – STAFRÆNT Kynntu þér fjölbreytt námsframboð
Opna háskólans á opnihaskolinn.is
Í Opna háskólanum í HR er úrval námskeiða
sem gefa einstaklingum tækifæri til að auka
samkeppnishæfni og árangur í starfi með því að
bæta við færni sína og auka þekkingu.
Ný tækifæri fyrir
mannauðinn
@opnihaskolinn
Umtalsverð eftirspurn er
í atvinnulífinu eftir fjöl-
breyttari aðferðum en áður
þekktust þegar kemur að
fræðslu og þjálfun á vinnu-
stöðum.
Af því tilefni hefur Opni háskólinn
í HR þróað sveigjanlegar, stafrænar
fræðslulausnir sem er annars vegar
ætlað að auka sérfræðikunnáttu
og hins vegar að efla stjórnunar-
og leiðtogafærni. Lausnirnar eru
aðgengilegar gegnum fræðslukerfi
ört stækkandi hóps viðskiptavina
Opna háskólans í HR.
„Rétt fyrir Covid vorum við
farin að átta okkur á því að það
væri nauðsynlegt fyrir fólk að hafa
aðgang að góðu, stafrænu fræðslu-
efni á íslensku, um þá færniþætti
sem taldir eru nauðsynlegir fyrir
íslenskt atvinnulíf.
Stafrænu fræðsluefni er oftast
ekki ætlað að koma í staðinn fyrir
staðnám í okkar tilviki heldur er
það viðbót, til dæmis til þess að
undirbúa fólk betur til þátttöku
í vinnustofum eða í hefðbundnu
námi í kennslustofu.
Námsefnið er hannað sér-
staklega til þess að fólk geti farið
gegnum það á eigin tíma, stað og
hraða – og jafnvel á eigin vegum,
óháð vinnustöðunum. Þetta
tengist gríðarlegri eftirspurn eftir
fjölbreyttari fræðsluaðferðum og
kannski óhefðbundnum frá því
sem við erum vön.
Mikilvægt er að framleiða í
þessu skyni gæðaefni sem er
kennslufræðilega rétt uppbyggt
og hentugt fyrir fræðslukerfi
fyrirtækja. Í þessu verkefni hefur
fólkið okkar náð miklum árangri
á skömmum tíma,“ segir Kristinn
Hjálmarsson, þróunarstjóri Opna
háskólans í HR.
Ögrandi verkefni
Kristinn segir að þetta hafi í upp-
hafi verið spennandi og ögrandi
nýsköpunarverkefni. „Við höfum á
skömmum tíma komið okkur upp
víðtækri tækniþekkingu og frábær
hópur sérfræðinga hefur komið
verkefninu í háan gæðaflokk.
Háskólaumhverfið er kjörið fyrir
þróun og framleiðslu á fræðslu-
efni þar sem við erum í náinni
samvinnu við færustu sérfræðinga.
Það er enn fremur lærdómsríkt
að hafa hnökralaust aðgengi að
fólki sem er að kenna alla daga og
hefur jafnvel hlotið verðlaun fyrir
kennsluaðferðir sínar.“
Mikilvæg mannauðsmál
„Fræðsla og þjálfun eru mikilvæg
mannauðsmál og til þess ætluð
að auðvelda mannauðnum að
verða sér úti um þekkingu. Störf
eru að þróast gríðarlega hratt
með aðsteðjandi tæknibyltingum
og öðrum samfélagsbreytingum
og nauðsynlegt fyrir fólk að geta
hratt og örugglega tileinkað sér
nýja þekkingu. Það er einfaldlega
miklu fljótlegra að gera það þegar
efnið er stafrænt, eins og raunin er
í nýjustu fræðslukerfum vinnu-
staða, heldur en að koma á staðinn
og átta sig kannski á því að við-
komandi vantar einhvern grunn
eða að eitthvert tiltekið nám er of
auðvelt,“ segir Helgi Héðinsson,
forstöðumaður Opna háskólans
í HR.
Lausnir fyrir þriðja aðila
„Opni háskólinn í HR nýtir eigin
þekkingu og aðgengilega kunnáttu
sérfræðinga Háskólans í Reykjavík
til þess að búa til fræðslulausnir og
svokallaðar „on-boarding“-lausnir
fyrir þriðja aðila, sem eru þá ann-
aðhvort hýstar í fræðslukerfi okkar
eða í fræðslukerfum viðskiptavina.
Við erum komin með fjölbreyttan
hóp viðskiptavina á þessu sviði og
má þar nefna Sveitarfélagaskólann
fyrir Samband íslenskra sveitar-
félaga, LS Retail Academy fyrir LS
Retail á alþjóðavísu, Fjármálalæsi
í samvinnu við Samtök fjármála-
fyrirtækja og örnámskeið um
stafræna hæfniþætti í samvinnu
við Stafræna hæfniklasann,“ segir
Helgi að lokum. ■
Stafrænar fræðslulausnir
Kristinn Hjálmarsson, þróunarstjóri Opna háskólans í HR, og Helgi Héðinsson, forstöðumaður Opna háskólans í HR.
FRÉTTABLAÐIÐ/SIGTRYGGUR ARI
34 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðSMál