Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 102

Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 102
Í dag er helsta áskorun atvinnu- lífsins að manna stöður og fyrirsjáanlega skortur á vinnuafli. Við verðum því að skara fram úr og skapa eftirsóttasta vinnustað landsins. Heiðdís Björnsdóttir Ölgerðin er 109 ára framsýnt fyrirtæki í stöðugri þróun og vexti. Hún stefnir á markað í júní og hefur sett sér það metnaðarfulla markmið að starfsánægja mælist 85 pró- sent eða hærri. „Ölgerðin Egill Skallagrímsson var stofnuð af ungum sveitamanni, Tómasi Tómassyni, í kjallara Þórs- hamars við Templarasund í miðbæ Reykjavíkur í apríl 1913 og var fyrirtækið upphaflega í tveimur herbergjum í kjallara hússins sem Alþingi á í dag. Þar hóf Tómas að framleiða og selja Malt í gleri og Hvítöl, ásamt fleiri drykkjum, með örfáa starfsmenn, en vörurnar slógu í gegn og fyrirtækið óx hratt í framhaldinu,“ upplýsir Heiðdís Björnsdóttir um tilurð Ölgerðar- innar sem orðin er 109 ára. Heiðdís er annar tveggja mannauðsstjóra hjá Ölgerðinni; hinn er Jóhanna Laufdal Friðriksdóttir. En hvernig vinnustaður ætli Ölgerðin hafi verið í árdaga og skyldi hafa verið hugsað út í mann- auðsmál fyrir meira en öld síðan? „Tómas þótti góður og sanngjarn yfirmaður sem hugsaði vel um starfsfólk fyrirtækisins og lagði þannig hornstein að mikilvægi mannauðsmála innan Ölgerðar- innar. Hvort sem allir hafa áttað sig á því eða ekki, hefur eitt af einkennismerkjum fyrirtækisins frá stofnun verið að mikið sé lagt upp úr því að Ölgerðin sé góður vinnustaður, samkeppnishæfur og að ánægður starfsmaður sé góður starfsmaður,“ svarar Heiðdís. Eins og ein stór fjölskylda Hjá Ölgerðinni starfa um 400 starfsmenn í mjög fjölbreyttum störfum. „Við mannauðsstjórar Ölgerð- arinnar stýrum sameiginlega mannauðsmálum hjá fyrirtækinu, höfum ábyrgðarskiptingu okkar á milli og skiptum við með okkur sviðum og deildum. Fyrirkomu- lagið virkar mjög vel fyrir fyrir- tækið og starfsfólk þess. Stjórn- endur og starfsfólk geta leitað til okkar beggja með öll sín mál, og við höfum hvor aðra til að leita til, bæði til að ræða erfið málefni sem koma upp og spegla okkur í við- fangsefnum sem við tökumst á við hverju sinni,“ útskýrir Jóhanna. Hún segir Ölgerðina fjölbreytt- an og skemmtilegan vinnustað, en þess má geta að Ölgerðin og Danól, dótturfyrirtæki Ölgerðarinnar, hlutu á fimmtudaginn, 19. maí, nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki VR árið 2022. „Það sem einkennir Ölgerðina er sterk liðsheild og hátt orkustig. Hjá Ölgerðinni starfar fjölbreyttur hópur fólks með ólíkan bakgrunn og sem hefur mikinn metnað fyrir starfi sínu. Starfsandinn einkennist af stolti og virðingu gagnvart samstarfsfólkinu og fyrir hvað fyrirtækið stendur. Við lifum gildin okkar sem eru jákvæðni, áreiðanleiki, hagkvæmni og framsækni, og þó svo að vinnu- staðurinn sé stór þá erum við eins og ein stór fjölskylda og tölum oft um að Ölgerðarhjartað slái,“ segir Jóhanna. „Ölgerðin hefur alltaf haldið vel utan um starfsfólk sitt og er með skýra stefnu og markmið sem allir eru samstiga um að vinna að. Við sjáum og heyrum að starfsfólkið er ánægt. Lykilþættir þar eru til að mynda fólkið okkar, liðsheildin og orkustigið. Hinn dæmigerði starfs- maður er í vinnunni í átta klukku- stundir á dag og það á að vera gaman í vinnunni. Við leggjum mikla áherslu á að vera dugleg að gera okkur dagamun, hvort sem það er á vegum starfsmanna- félagsins eða Ölgerðarinnar. Við klöppum okkur á bakið fyrir það sem er vel gert og eru stjórnendur duglegir að sýna þakklæti í orðum og verkum,“ greinir Jóhanna frá. Öðruvísi væntingar í dag Óhætt er að segja að mannauðs- stjórn hafi breytt vinnumenningu íslenskra vinnustaða. „Með mannauðsstjórnun kom aukin áhersla á aðbúnað starfs- fólks, menningu, fræðslumál og starfsánægju. Vinnustaðir voru, og eru enn, misjafnir og um ára- tugaskeið álitu margir að starfs- mannastjórnun snerist eingöngu um kjaramál og laun, en ekki endilega þarfir starfsfólksins. Breytt hugarfar á sviði mannauðs- stjórnunar leiddi svo til aukinnar starfsánægju og slíkt skapar eftir- sóttari vinnustaði sem laða að sér gott og hæft fólk. Stjórnendur eru nú farnir að gera sér grein fyrir því að með ánægðu starfsfólki nái fyrirtæki frekar þeim markmiðum sem þau ætla sér. Kynslóðir sem í dag eru að koma inn á vinnumark- aðinn gera því öðruvísi væntingar en fyrri kynslóðir og hafa sterkar skoðanir á því hvernig hlutirnir eru gerðir,“ greinir Heiðdís frá. Í mannauðsmálum Ölgerðar- innar hafa helstu áherslur verið á fjölbreytileika, starfsánægju og jafnrétti á öllum sviðum. „Við höfum lagt áherslu á að allir séu meðvitaðir um að starfsfólkið er okkar stærsta auðlind og teljum að með fjölbreyttum og ánægðum hópi fólks náum við betri árangri sem fyrirtæki. Við viljum að Ölgerðin sé vinnustaður fyrir alla og að við getum tekið á öllum þeim áskorunum sem fylgja fjölbreyti- leikanum,“ segir Heiðdís og heldur áfram: „Við teljum jafnframt mikilvægt að vera til staðar og hlúa vel að starfsfólki og stjórnendum, sér- staklega eftir Covid-19. Við finnum að stjórnendur leita í meira mæli til okkar, bæði til að spegla sig og ræða málin. Síðustu tvö ár hafa verið mörgum þung.“ Eftirsóttasti vinnustaðurinn Ölgerðin hefur nú sett sér það metnaðarfulla markmið að starfs- ánægja mælist 85 prósent eða hærra. „Við vitum vel að við getum náð slíku markmiði. Fjórum sinnum á ári gerum við púlsmælingar og var afar ánægjulegt að sjá að meðaltalið á síðasta ári reyndist yfir markmiðinu, eða 86,2 pró- sent. Síðasta mæling sem við gerðum var í mars og þar mældist starfsánægjan 91 prósent, sem er ótrúlega ánægjulegur árangur og sýnir okkur að hér er bæði gott og gaman að starfa. Það leiðir til betri starfsanda og enn betri vinnu- staðar,“ segir Jóhanna. Á næstu fjórum árum verður lögð áhersla á fjölbreytileika sem eitt af fjórum lykilmarkmiðum Ölgerðarinnar, sem eru vöxtur, stafræn þróun, sjálfbærni og fjöl- breytileiki. „Við höfum gildi Ölgerðarinnar hugföst í öllu sem við gerum og þau eru vegvísir okkar til ársins 2024. Fjórða markmiðið, fjölbreyti- leiki, er ótrúlega mikilvægt atriði. Það liggur fyrir að fjölbreytni á vinnustað er gríðarlegur styrkleiki. Fjölbreytni nær til svo margra þátta; þar með fjölbreytni í vinnu, vinnuumhverfi, starfsfólki og svo mætti áfram telja. Sem starfsmenn tökum við tillit hvert til annars, virðum hvert annað, tölum saman, upplýsum hvert annað og gætum jafnræðis. Við gætum þess líka að allir hafi aðgang að sömu upp- lýsingum og sendum meðal annars allt efni frá okkur út til starfs- fólksins bæði á íslensku og ensku,“ upplýsir Jóhanna. Heiðdís bætir því við að fjöl- breyttur hópur starfsfólks hafi f leiri sjónarhorn og hugmyndir, eigi auðveldara með að greina þarfir viðskiptavina og aðlaga þjónustu fyrirtækisins að þeim. „Við leggjum áherslu á að laða til okkar starfsfólk með mismun- andi viðhorf, ólíkan bakgrunn, af mismunandi kyni og á öllum aldri. Við höfum enn fremur breytt öllu orðalagi í starfsauglýs- ingum þannig að þær nái til allra kynja. Með fjölbreytileikanum náum við betri árangri og sköpum eftirsóttari vinnustað. Í dag er helsta áskorun atvinnulífsins að manna stöður og fyrirsjáanlega er skortur á vinnuafli. Við verðum því að skara fram úr og skapa eftirsóttasta vinnustað landsins, og við trúum því að með þessum fjórum áherslum séum við ein- mitt að því,“ segir Heiðdís. n Ölgerðin er á Grjóthálsi 7. Sími 412 8000. Netfang: olgerdin@olgerdin. Sjá nánar á olgerdin.is Sterk liðsheild og hátt orkustig  Heiðdís Björnsdóttir og Jóhanna Laufdal Friðriksdóttir eru mannauðsstjórar hjá Ölgerðinni, sem þær segja frábæran vinnustað og að ánægður starfsmaður sé góður starfsmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR 38 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðSMál
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.