Fréttablaðið - 21.05.2022, Síða 102
Í dag er helsta
áskorun atvinnu-
lífsins að manna stöður
og fyrirsjáanlega skortur
á vinnuafli. Við verðum
því að skara fram úr og
skapa eftirsóttasta
vinnustað landsins.
Heiðdís Björnsdóttir
Ölgerðin er 109 ára framsýnt
fyrirtæki í stöðugri þróun og
vexti. Hún stefnir á markað
í júní og hefur sett sér það
metnaðarfulla markmið að
starfsánægja mælist 85 pró-
sent eða hærri.
„Ölgerðin Egill Skallagrímsson var
stofnuð af ungum sveitamanni,
Tómasi Tómassyni, í kjallara Þórs-
hamars við Templarasund í miðbæ
Reykjavíkur í apríl 1913 og var
fyrirtækið upphaflega í tveimur
herbergjum í kjallara hússins sem
Alþingi á í dag. Þar hóf Tómas að
framleiða og selja Malt í gleri og
Hvítöl, ásamt fleiri drykkjum, með
örfáa starfsmenn, en vörurnar
slógu í gegn og fyrirtækið óx hratt
í framhaldinu,“ upplýsir Heiðdís
Björnsdóttir um tilurð Ölgerðar-
innar sem orðin er 109 ára. Heiðdís
er annar tveggja mannauðsstjóra
hjá Ölgerðinni; hinn er Jóhanna
Laufdal Friðriksdóttir.
En hvernig vinnustaður ætli
Ölgerðin hafi verið í árdaga og
skyldi hafa verið hugsað út í mann-
auðsmál fyrir meira en öld síðan?
„Tómas þótti góður og sanngjarn
yfirmaður sem hugsaði vel um
starfsfólk fyrirtækisins og lagði
þannig hornstein að mikilvægi
mannauðsmála innan Ölgerðar-
innar. Hvort sem allir hafa áttað
sig á því eða ekki, hefur eitt af
einkennismerkjum fyrirtækisins
frá stofnun verið að mikið sé lagt
upp úr því að Ölgerðin sé góður
vinnustaður, samkeppnishæfur og
að ánægður starfsmaður sé góður
starfsmaður,“ svarar Heiðdís.
Eins og ein stór fjölskylda
Hjá Ölgerðinni starfa um 400
starfsmenn í mjög fjölbreyttum
störfum.
„Við mannauðsstjórar Ölgerð-
arinnar stýrum sameiginlega
mannauðsmálum hjá fyrirtækinu,
höfum ábyrgðarskiptingu okkar
á milli og skiptum við með okkur
sviðum og deildum. Fyrirkomu-
lagið virkar mjög vel fyrir fyrir-
tækið og starfsfólk þess. Stjórn-
endur og starfsfólk geta leitað til
okkar beggja með öll sín mál, og
við höfum hvor aðra til að leita til,
bæði til að ræða erfið málefni sem
koma upp og spegla okkur í við-
fangsefnum sem við tökumst á við
hverju sinni,“ útskýrir Jóhanna.
Hún segir Ölgerðina fjölbreytt-
an og skemmtilegan vinnustað, en
þess má geta að Ölgerðin og Danól,
dótturfyrirtæki Ölgerðarinnar,
hlutu á fimmtudaginn, 19. maí,
nafnbótina Fyrirmyndarfyrirtæki
VR árið 2022.
„Það sem einkennir Ölgerðina
er sterk liðsheild og hátt orkustig.
Hjá Ölgerðinni starfar fjölbreyttur
hópur fólks með ólíkan bakgrunn
og sem hefur mikinn metnað
fyrir starfi sínu. Starfsandinn
einkennist af stolti og virðingu
gagnvart samstarfsfólkinu og fyrir
hvað fyrirtækið stendur. Við lifum
gildin okkar sem eru jákvæðni,
áreiðanleiki, hagkvæmni og
framsækni, og þó svo að vinnu-
staðurinn sé stór þá erum við eins
og ein stór fjölskylda og tölum oft
um að Ölgerðarhjartað slái,“ segir
Jóhanna.
„Ölgerðin hefur alltaf haldið vel
utan um starfsfólk sitt og er með
skýra stefnu og markmið sem allir
eru samstiga um að vinna að. Við
sjáum og heyrum að starfsfólkið
er ánægt. Lykilþættir þar eru til að
mynda fólkið okkar, liðsheildin og
orkustigið. Hinn dæmigerði starfs-
maður er í vinnunni í átta klukku-
stundir á dag og það á að vera
gaman í vinnunni. Við leggjum
mikla áherslu á að vera dugleg
að gera okkur dagamun, hvort
sem það er á vegum starfsmanna-
félagsins eða Ölgerðarinnar. Við
klöppum okkur á bakið fyrir það
sem er vel gert og eru stjórnendur
duglegir að sýna þakklæti í orðum
og verkum,“ greinir Jóhanna frá.
Öðruvísi væntingar í dag
Óhætt er að segja að mannauðs-
stjórn hafi breytt vinnumenningu
íslenskra vinnustaða.
„Með mannauðsstjórnun kom
aukin áhersla á aðbúnað starfs-
fólks, menningu, fræðslumál og
starfsánægju. Vinnustaðir voru,
og eru enn, misjafnir og um ára-
tugaskeið álitu margir að starfs-
mannastjórnun snerist eingöngu
um kjaramál og laun, en ekki
endilega þarfir starfsfólksins.
Breytt hugarfar á sviði mannauðs-
stjórnunar leiddi svo til aukinnar
starfsánægju og slíkt skapar eftir-
sóttari vinnustaði sem laða að sér
gott og hæft fólk. Stjórnendur eru
nú farnir að gera sér grein fyrir
því að með ánægðu starfsfólki nái
fyrirtæki frekar þeim markmiðum
sem þau ætla sér. Kynslóðir sem í
dag eru að koma inn á vinnumark-
aðinn gera því öðruvísi væntingar
en fyrri kynslóðir og hafa sterkar
skoðanir á því hvernig hlutirnir
eru gerðir,“ greinir Heiðdís frá.
Í mannauðsmálum Ölgerðar-
innar hafa helstu áherslur verið
á fjölbreytileika, starfsánægju og
jafnrétti á öllum sviðum.
„Við höfum lagt áherslu á að allir
séu meðvitaðir um að starfsfólkið
er okkar stærsta auðlind og teljum
að með fjölbreyttum og ánægðum
hópi fólks náum við betri árangri
sem fyrirtæki. Við viljum að
Ölgerðin sé vinnustaður fyrir alla
og að við getum tekið á öllum þeim
áskorunum sem fylgja fjölbreyti-
leikanum,“ segir Heiðdís og heldur
áfram:
„Við teljum jafnframt mikilvægt
að vera til staðar og hlúa vel að
starfsfólki og stjórnendum, sér-
staklega eftir Covid-19. Við finnum
að stjórnendur leita í meira mæli
til okkar, bæði til að spegla sig og
ræða málin. Síðustu tvö ár hafa
verið mörgum þung.“
Eftirsóttasti vinnustaðurinn
Ölgerðin hefur nú sett sér það
metnaðarfulla markmið að starfs-
ánægja mælist 85 prósent eða
hærra.
„Við vitum vel að við getum náð
slíku markmiði. Fjórum sinnum
á ári gerum við púlsmælingar
og var afar ánægjulegt að sjá að
meðaltalið á síðasta ári reyndist
yfir markmiðinu, eða 86,2 pró-
sent. Síðasta mæling sem við
gerðum var í mars og þar mældist
starfsánægjan 91 prósent, sem er
ótrúlega ánægjulegur árangur og
sýnir okkur að hér er bæði gott og
gaman að starfa. Það leiðir til betri
starfsanda og enn betri vinnu-
staðar,“ segir Jóhanna.
Á næstu fjórum árum verður
lögð áhersla á fjölbreytileika sem
eitt af fjórum lykilmarkmiðum
Ölgerðarinnar, sem eru vöxtur,
stafræn þróun, sjálfbærni og fjöl-
breytileiki.
„Við höfum gildi Ölgerðarinnar
hugföst í öllu sem við gerum og
þau eru vegvísir okkar til ársins
2024. Fjórða markmiðið, fjölbreyti-
leiki, er ótrúlega mikilvægt atriði.
Það liggur fyrir að fjölbreytni á
vinnustað er gríðarlegur styrkleiki.
Fjölbreytni nær til svo margra
þátta; þar með fjölbreytni í vinnu,
vinnuumhverfi, starfsfólki og svo
mætti áfram telja. Sem starfsmenn
tökum við tillit hvert til annars,
virðum hvert annað, tölum saman,
upplýsum hvert annað og gætum
jafnræðis. Við gætum þess líka að
allir hafi aðgang að sömu upp-
lýsingum og sendum meðal annars
allt efni frá okkur út til starfs-
fólksins bæði á íslensku og ensku,“
upplýsir Jóhanna.
Heiðdís bætir því við að fjöl-
breyttur hópur starfsfólks hafi
f leiri sjónarhorn og hugmyndir,
eigi auðveldara með að greina
þarfir viðskiptavina og aðlaga
þjónustu fyrirtækisins að þeim.
„Við leggjum áherslu á að laða
til okkar starfsfólk með mismun-
andi viðhorf, ólíkan bakgrunn,
af mismunandi kyni og á öllum
aldri. Við höfum enn fremur
breytt öllu orðalagi í starfsauglýs-
ingum þannig að þær nái til allra
kynja. Með fjölbreytileikanum
náum við betri árangri og sköpum
eftirsóttari vinnustað. Í dag er
helsta áskorun atvinnulífsins að
manna stöður og fyrirsjáanlega er
skortur á vinnuafli. Við verðum
því að skara fram úr og skapa
eftirsóttasta vinnustað landsins,
og við trúum því að með þessum
fjórum áherslum séum við ein-
mitt að því,“ segir Heiðdís. n
Ölgerðin er á Grjóthálsi 7. Sími 412
8000. Netfang: olgerdin@olgerdin.
Sjá nánar á olgerdin.is
Sterk liðsheild
og hátt orkustig
Heiðdís Björnsdóttir og Jóhanna Laufdal Friðriksdóttir eru mannauðsstjórar hjá Ölgerðinni, sem þær segja frábæran vinnustað og að ánægður starfsmaður sé góður starfsmaður. FRÉTTABLAÐIÐ/ERNIR
38 kynningarblað 21. maí 2022 LAUGARDAGURMannauðSMál