Fréttablaðið - 21.05.2022, Qupperneq 119
Mörg lögin eru algjör
nostalgía og gaman að
tralla með en ég viður-
kenni að það gerði
ekki mikið fyrir stuðið
í mér að fá lögin Mán-
inn hátt á himni skín
eða Nú er árið liðið, í
þúsundasta skiptið í
ferðinni en það er samt
svolítið fyndið.
Vilborg Arna
Eins og sjá má
bjóst Vilborg
alls ekki við því
að maðurinn
hennar, Ales
Cesen, tæki á
móti henni á
Reykjavíkur-
flugvelli. Parið
býr í Slóveníu
og vissi Vilborg
ekki betur en að
þau ætluðu að
hittast þar.
Fréttablaðið/
Valli
þvera jökulinn. Þetta var frábær
stund og Íslendingar eru svo sann-
arlega að sækja í sig veðrið þegar
kemur að ferðum af þessari stærð.
Ég á von á því að í framtíðinni muni
sífellt f leiri leggja leið sína yfir
jökulinn. Nágrannar okkar í Nor-
egi hafa verið duglegir á þessum
vettvangi en það kæmi mér ekkert
á óvart þótt við færum að sækja á
þá, svona miðað við höfðatölu alla-
vega,“ segir Vilborg í léttum tón.
Þíddu matinn innanklæða
Segja má að hópurinn hafi sannar-
lega verið minntur á að hann væri á
jökli en kuldinn mældist nokkrum
sinnum 42 gráðu frost með vind-
kælingu. Kuldavarnir eru gríðarlega
mikilvægar, svo sem andlitsgrímur,
góður fatnaður og var hópurinn til
að mynda með sérstakar skóhlífar
til þess að einangra skóna sína enn
betur á köldustu dögunum.
„Maður þarf að vera meðvitaður
um að snerta ekki málmhluti með
berum höndum og stundum skíð-
uðum við í sérstökum hlífðarpilsum
til þess að verja rass og læri. Ég fékk
sjálf til dæmis útbrot af kuldanum
sem ég þurfti að passa vel upp á.
Vatn þarf að geyma í hitabrúsa eða
einangruðum hulstrum og matur
frýs auðveldlega svo það þarf stund-
um að þíða hann innanklæða áður
en maður gæðir sér á veigunum.“
Vilborg segir þó best í heimi að
hita upp svefnpokann sinn með
sjóðandi heitum vatnsf löskum
sem halda á manni hita fram eftir
nóttu. „Flöskurnar fá ýmis nöfn, svo
sem kærastar og knúsarar. Það má
líka nota þær til þess að rúlla auma
vöðva í lok dags. Eins þarf líka að
notast við bensínprímusa því þeir
virka best í slíkum kulda á meðan
gasið frýs og þá er ekki hægt að
bræða snjó til þess að fá vatn í mat
og drykk.“
Á köldustu dögunum frestaði
hópurinn brottför og skíðaði færri
klukkustundir til þess að forðast
að fá kal. „Það dugði þá að bíða
eftir minni vindi til þess að fá hag-
stæðari aðstæður. Kaldasta nóttin
okkar var mínus 35 gráður í lofthita
og margar nætur voru í kringum 30
gráðu frost. Þá þurftum við að dúða
okkur vel og huga að kuldavörnum.“
Ísbjarnarvaktir í tvo sólarhringa
Leiðangurinn sjálfur tók 30 daga –
aðeins lengri tíma en leiðsögumenn
höfðu vonast til en veður og færð
töfðu fyrir.
Það var þó óhagstæð veðurspá
sem flýtti för undir lokin en afráðið
var að skíða 65 kílómetra í einni lotu
undir lokin til að ná af jökli áður en
veðrið myndi skella á og hópurinn
yrði tilneyddur til að bíða það af sér.
„Í staðinn biðum við niðri við
jökulræturnar í þoku og úrkomu
en sluppum við hvassviðri. Þar sem
ekki var neitt skyggni var heldur
ekki hægt að sækja okkur og við
biðum róleg en á ísbjarnarvöktum,“
segir Vilborg en hópurinn var sóttur
af þyrlu.
„Við sáum ísbjarnarspor 25 kíló-
metra inni á jökli og þann sama dag
og við komum niður var veiddur
björn í nágrenninu við okkur,“ segir
Vilborg, sem sönnun þess að full
ástæða hafi verið til að gæta varúðar
og vera á vaktinni.
„Við vorum með blys til þess að
fæla ísbirni og vopn til þess að verja
okkur ef til þess kæmi. Á hverri vakt
voru tveir leiðangursmenn í tvær
klukkustundir í senn. Við náðum
líka kærkominni hvíld á meðan við
biðum eftir því að þokunni létti.“
Sumir elska bras og áskoranir
En loks voru þau sótt, þreytt, sæl og
óétin og f lugu á endanum heim frá
Kulusuk með Icelandair. En hvers
vegna ætli leiðangur á við þennan
kitli ævintýraþrána? Hvers vegna vill
fólk taka alla sumarfrísdagana sína
snemmsumars í fimbulkulda og illri
færð fjarri mannabyggðum?
„Fólk fer af stað af ýmsum ástæð-
um, svo sem langþráður draumur hjá
sumum, aðrir elska bras og áskoranir
á meðan sumir vilja brjóta upp til-
veruna,“ segir Vilborg létt í bragði.
„Ég hef sjálf verið heilluð af leið-
öngrum í yfir tuttugu ár og verið á
ferðinni síðustu tíu ár. Hjá mér er
þetta sambland af því að takast á
við stórar áskoranir og krefjandi
verkefni. Mér finnst gaman að vera
úti og upplifa náttúruna í svona
miklu návígi og að takast á við sjálfa
sig í þessum aðstæðum, auk þess er
fjalla- og leiðangursmennska ástríð-
an mín. Það þýðir þó ekki að ég þurfi
ekki hvíld inni á milli og geri aldrei
neitt annað, en þetta er kjarninn
minn og sál. Ég kann líka vel að meta
bæði undirbúningstímann og dag-
ana á eftir þegar maður er að melta
reynsluna.“
Næsti tindur átta þúsund metrar
Við náðum tali af Vilborgu daginn
eftir heimkomuna og sagði hún vel
hafa verið tekið á móti þeim með
veislu þar sem vinir og vandamenn
buðu upp á góða stund og veitingar.
„Í dag eru svo f lestir að slappa
af, þurrka og ganga frá búnaði og
sumir að skella sér í smá dekur eins
og nudd. Það má heldur ekki gleyma
því að matarlyst er í meira lagi eftir
svona ferðir.“
En dekrið varir ekki lengi hjá Vil-
borgu sem er á leið í næsta stóra
verkefni í byrjun júlí.
„Þá held ég til Pakistan ásamt
Ales Cesen, manninum mínum,
Sigga Bjarna og breska klifraranum
Tom. Þar stefnum við á einn af 8.000
metra tindunum í Karakorum-fjall-
garðinum. Svo ég tek stutta hvíld og
nokkra sukkdaga áður en ég helli
mér aftur í æfingar og undirbún-
ing. Tímabilið einkennist af því að
byggja upp styrk og hæfni, auk þess
að hafa gott jafnvægi á milli hvíldar,
næringar og æfinga. Svo má ekki
gleyma að ég fer fyrir árlegri ferð
Ferðafélagsins á Hvannadalshnúk
um hvítasunnuna, sem er alltaf jafn
skemmtileg upplifun,“ segir Vilborg
Arna að lokum. n
Kuldinn fór mest niður í 42 stiga frost með vindkælingu.
Myndir aF jökli/HólMFríður Vala SVaVarSdóttir
Þær Vilborg og
Brynhildur eru
flestu vanar og
segir Vilborg
þær vinna vel
saman.
Hópurinn gekk yfir 540 kílómetra á jökli og segir Vilborg þau hafa fengið svokallað sandpappírsfæri sem stafar af
miklum kulda en þá er ekkert rennsli á skíðum og sleðum og færið verður þannig mjög þungt.
Við komuna á Reykjavíkurflugvöll eftir mánuð á jökli og 540 kílómetra göngu í erfiðu færi.
Fréttablaðið/Valli
Helgin 39LAUGARDAGUR 21. maí 2022 Fréttablaðið