Fréttablaðið - 21.05.2022, Blaðsíða 121
Íslendingar hafa aug-
ljóslega mikinn áhuga
á danskri hönnun því
ef við tökum mið af
höfðatölu seljast
VIPP-vörurnar einna
best hér.
Kasper Egelund
Eldhúsinnréttingar
Fríform ehf.
Askalind 3,
201 Kópavogur.
562–1500
Friform.is
Mán. – Föst. 10–17
Laugardaga 11–15
2
0
0
0
—
2
0
2
1því ég hafði lært það. Tunnan setti
okkur af stað og við bættum svo við
vörum og skref fyrir skref óx fyrir-
tækið að því sem það er í dag.“
Sannkallað fjölskyldufyrirtæki
Í dag er VIPP sannkallað fjölskyldu-
fyrirtæki en auk Kaspers starfa fyrir
það eiginkona hans, móðir, systir og
mágur og eru aðrir starfsmenn 54
talsins.
„Ég hef unnið með þeim í 20 ár
og því myndi ég segja að það gengi
vel,“ segir Kasper, aðspurður um hið
nána fjölskyldusamstarf.
„Margir sem hafa spurt mig að
þessu segjast vissir um að þeir gætu
þetta ekki í þrjá daga,“ segir hann
í léttum tón. „En þú þarft að vera
góður í þessu. Þú þarft að vera raun-
sær, finna þína hæfileika og einbeita
þér að þeim. Þannig berum við virð-
ingu fyrir því hvað hin eru að gera.“
Fyrir sjö árum síðan var tekin
ákvörðun um að herja á Bandaríkja-
markað og hefur systirin séð um
þann hluta. „Hún býr ásamt eigin-
manni sínum á Manhattan og bjóða
þau mögulegum viðskiptavinum að
panta tíma og koma heim til þeirra.
Þannig getur fólk skoðað til að
mynda eldhúsið á alvöru heimili,“
segir Kasper en Bandaríkin eru nú
orðin stærsti markaður VIPP.
„Mamma, sem er orðin 72 ára,
vinnur enn í fyrirtækinu alla daga
og heldur á ákveðinn hátt utan um
starfsemina. Það er líka mikilvægt
að nýir starfsmenn fái þannig að
heyra söguna alla beint frá henni.“
Óvart í hótelrekstur
Kasper er stórhuga og frá framleiðslu
ruslatunnu er hann óvart kominn í
hótelrekstur en það er áhugaverð
saga á bak við VIPP-hótelin, sem eru
algjörlega einstök.
„Fyrir um átta árum varð „The
shelter“ til. Mig langaði að hanna
hús sem hægt væri að framleiða í
verksmiðju og selja um allan heim.
Húsið og hugmyndin fékk gríðarlega
athygli – en enginn keypti það,“ segir
hann með áherslu.
„Málið er að þetta er svo ósveigj-
anlegt og fólk vill fá að breyta aðeins,
bæta við herbergi eða öðru og það er
ekki hægt. Svo var flutningskostn-
aðurinn líka mikill. Markaðslega var
þetta frábært en enginn keypti húsið
– nema einn bandarískur milljarða-
mæringur. Hann pantaði húsið bara
eins og hann myndi panta galla-
buxur á netinu og ég veit ekki einu
sinni hvort hann setti það saman,“
segir Kasper um misheppnuðu hug-
myndina sem svo varð kveikjan að
einhverju algjörlega nýju.
„Húsið fékk þó mikla athygli,
fólk vildi fá að búa þar, gista þar,
verja hveitibrauðsdögunum þar og
svo framvegis. En ég sagði alltaf nei
enda að reyna að trekkja að kaup-
endur.“
Langar að hönnun sé upplifun
Eftir þó nokkurn tíma ákvað hann
svo að hugsa þetta upp á nýtt og
breyta húsinu einfaldlega í hótel.
„Allt frá því við opnuðum hefur
verið uppbókað. Þetta varð á end-
anum góður bissness og þar getur
fólk einnig prófað allar vörurnar
okkar.“
Í dag eru VIPP-hótelin orðin
nokkur, The Shelter stendur við
vatn utan við Kristianstad í Sví-
þjóð en eins hafa hönnuðir VIPP
innréttað risíbúð í Kaupmanna-
höfn, gamlan bóndabæ í Suður-
Danmörku og einstaka húsnæði
við Lysefjord í Noregi, svo eitthvað
sé nefnt. „Mig langar að gera meira
af þessu,“ segir Kasper spenntur.
„Ekki í borgum, þar er nóg af hót-
elum, heldur á einstökum stöðum,“
segir hann.
„Mig langar að hönnunin sé upp-
lifun, þú getur sest í sófa í búð en
hvað með að prófa hann í alvöru
samhengi? Þetta er nýtt í þessum
geira en við erum að fara af stað
með slík verkefni í Tasmaníu, Spáni,
Ítalíu, Andorra og vonandi Íslandi.“
En hugmyndin á bak við VIPP
nær enn aftur til ruslatunnunnar
vinsælu og eru Kasper og félagar
alltaf trúir upprunanum. „Mýkt-
ina í línum tunnunnar má sjá í allri
okkar hönnun og við viljum fram-
leiða vörur sem eiga sér langan líf-
tíma, vörur sem endast.“ nVIPP-hillurnar eru eins og annað frá merkinu, einfaldar og klassískar.
Helgin 41LAUGARDAGUR 21. maí 2022 Fréttablaðið