Fréttablaðið - 21.05.2022, Page 122
Formaður Norræna félagsins
segir mikilvægara en nokk
urn tíma að efla samstarf og
vináttu á milli Norðurlanda.
Fólk taki norrænu samstarfi
sem gefnum hlut og hafi það
leitt til hnignunar.
Nor r æna félag ið á
Íslandi fagnar hund
rað ára starfsafmæli
sínu í ár. Hrannar
Björn Arnarsson, sem
tók við sem formaður félagsins
2019, segist lengi hafa haft brenn
andi áhuga á norrænu samstarfi.
„Ég hef alltaf litið á Norðurlöndin
sem minn heimavöll, auðvitað
Ísland fyrst og fremst. Foreldrar
mínir voru í Danmörku og Norður
löndin hafa alltaf verið heima, ekk
ert síður heldur en Ísland.“
Í gegnum ferilinn hefur Hrannar
kynnst fjölmörgum hliðum nor
ræns samstarf. Hann hefur verið
virkur meðlimur í Norræna félag
inu frá unga aldri og kynntist nor
rænu samstarfi vel í gegnum starf
sitt fyrir Norðurlandaráð og sem
aðstoðarmaður Jóhönnu Sigurðar
dóttur, félagsmálaráðherra og síðar
forsætisráðherra.
„Við mörg hver tökum þessu eins
og sjálfgefnum hlut. Við vitum
að þetta er gott en vitum kannski
ekki af hverju þetta er gott og af
hverju þetta er mikilvægt. Eftir að
hafa starfað í þessum bransa og séð
hann frá svo mörgum vinklum þá
er ég sannfærður um að þetta er það
sem hefur f leytt okkur þangað sem
við erum, í hópi bestu samfélaga
heims,“ segir Hrannar.
Hnignað á síðustu áratugum
Þótt margt hafi áunnist í gegnum
norrænt samstarf segir Hrannar
enn mikla þörf á að minna á mikil
vægi þess.
„Vegna þess hversu sjálfgefið og
óumdeilt þetta er þá hefur þessu
beinlínis hnignað. Það eru fáir að
berjast fyrir þessu og fylgjast með
því hvernig þessu hefur hnignað
á síðustu árum. Á síðustu þremur
áratugum eftir að enskan var færð
fram fyrir dönskuna í skólum hefur
skandinavísku okkar hnignað
mjög.“
Að sögn Hrannars er þó helsta
ástæða hnignunarinnar sú að fólk
á það til að taka norrænu samstarfi
sem gefnu.
„Ríkisstjórnir Norðurlandanna
hafa komist upp með að setja ekki
aukna fjármuni í norrænt samstarf.
Á sama tíma og ríkin hafa þanist út
og umfang þeirra vaxið gríðarlega,
ekki síst vegna norræns samstarfs,
hafa fjárveitingar til norrænna
verkefna staðið í stað og jafnvel
dregist saman. Núna er í rauninni
umfang norræns samstarfs bara
helmingur á við það sem var fyrir
þrjátíu árum, miðað við þjóðar
framleiðslu.“
Leita í alþjóðlegar stofnanir
Hrannar segir hnignun norræns
samstarfs hafa komið bersýnilega
í ljós í þeim krísum sem Evrópa
og gjörvallur heimurinn hefur
gengið í gegnum á undanförnum
á r u m; f lót t a ma n nava nd a n n,
kórónaveiru faraldurinn og nú síð
ast stríðið í Úkraínu.
„Í staðinn fyrir að leita í norrænt
samstarf í þessum málum hlaupa
menn inn í stóru alþjóðlegu stofn
anirnar eins og NATO og Evrópu
sambandið sem hafa tól og tæki til
að takast á við svona. En þetta eru
hins vegar verkfæri sem norrænu
löndin hafa svikist um að byggja
upp á undanförnum árum og þess
vegna hefur fókusinn færst inn í
hinar stofnanirnar,“ segir hann.
Norrænt samstarf fái ríkisvald
Spurður um hvað gera þyrfti til að
takast á við hnignun norræns sam
Norðurlöndin hafa alltaf verið heima
Hrannar ásamt
Jóhönnu
Sigurðardóttur,
þáverandi for-
sætisráðherra,
og Steingrími
J. Sigfússyni,
þáverandi fjár-
málaráðherra,
á þingi Norður-
landaráðs í
Svíþjóð.
Mynd/Aðsend
Pallborð um
norrænt sam-
starf á Fundi
fólksins 2021.
Frá vinstri:
Hrannar, Oddný
G. Harðardóttir,
Eiríkur Berg-
mann, Aldís
Mjöll Geirs-
dóttir, Sigurður
Ingi Jóhannsson
og Pia Hansson.
Mynd/Aðsend
Hrannar Björn segist hafa haft brennandi áhuga á norrænu samstarfi allt frá unga aldri. FréttAblAðið/sigtryggur Ari
starfs og hefja það aftur til vegs og
virðingar segir Hrannar:
„Við þyrftum í fyrsta lagi að
stórauka framlög okkar á ný til
norrænna verkefna. Ég held að
við ættum að gera það með því
að byggja upp sameiginlegar nor
rænar stofnanir sem gætu tekið
á málum á norrænum basis í
staðinn fyrir að vera bara sam
ráðsvettvangur. Ég held að það sé
löngu kominn tími til þess að nor
rænt samstarf fái ríkisvald, svipað
og Evrópusambandið eða NATO
hefur.“
Samnorrænn ríkisborgararéttur
Að sögn Hrannars gæti fyrsta
skrefið í átt að auknu norrænu
samstarfi verið að byggja upp sam
eiginlegan vettvang eða stofnun
með framkvæmdavald sem tekið
gæti á alþjóðlegum krísum á borð
við loftslagsvandann eða næsta
heimsfaraldur.
„Ég held að það sé líka kominn
tími til þess að við hugleiðum hvort
við eigum ekki stíga það skref til
fulls sem hefur verið stigið með
sameiginlegum vinnumarkaði og
reglum um sameiginleg réttindi
á milli landa og búa til sameigin
legan norrænan ríkisborgararétt.
Þannig að við séum í rauninni
ríkisborgarar í okkar eigin ríkjum
hvar sem við kjósum að búa á
Norðurlöndunum,“ segir hann.
Ljóst er að um róttæka hugmynd
er að ræða en Hrannar segir hana
þó engu að síður framkvæmanlega.
„Noregur var síðasta landið sem
heimilaði tvöfaldan ríkisborgara
rétt þannig að nú er það í raun
framkvæmanlegt. Sameiginlegur
norrænn ríkisborgararéttur myndi
leysa mörg af þeim tæknilegu
vandamálum sem Norðurlöndin
hafa verið að glíma við þegar fólk
f lytur á milli landa. Þetta eru allt
skref sem ég sé fyrir mér að gætu
skipt máli ef menn vilja halda
áfram að byggja á norrænu sam
starfi en ekki bara láta það f letj
ast út og færa samstarfið meira í
alþjóðlegar stofnanir.“
Stríðið þjappar heiminum saman
Mikil ólga er í Evrópu um þessar
mundir vegna stríðsins í Úkraínu
sem birtist meðal annars í fyrir
hugaðri inngöngu Finna og Svía í
NATO. Hrannar segir þetta ástand
þó vel til þess fallið að þjappa
Norðurlöndunum saman.
„Þetta er ekki bara að þjappa
saman Norðurlöndunum heldur er
þetta að þjappa saman heiminum.
Við erum að upplifa mjög merki
lega tíma í alþjóðastjórnmálum.
Þetta mun að öllum líkindum
þjappa Evrópusamstarfi saman
líka,“ segir Hrannar.
Hann telur að stríðið í Úkraínu
muni gjörbreyta heimsmyndinni,
alþjóðlegu samstarfi og alþjóða
stofnunum. Þrátt fyrir að um mik
inn harmleik sé að ræða gæti það
leitt til þess að vinátta og samstarf
aukist á meðal annarra ríkja.
„Þetta skelfilega stríð getur auð
vitað leitt í allar áttir. Það getur leitt
yfir okkur enn meiri skelfingar og
ógnir og komið okkur á verri stað
en það getur líka verið að þau
ánægjulegu merki sem við höfum
séð, að vestræn ríki og nánast
heimurinn allur standi saman gegn
þessu, gefi fyrirheit um að betri tíð
sé í vændum. Við skulum vona að
úkraínska þjóðin þurfi ekki að líða
enn meiri þjáningar til þess að sú
betri veröld verði að veruleika,“
segir hann.
Mikilvægt fyrir ungt fólk
Eins og áður sagði fagnar Norræna
félagið hundraðasta starfsári sínu
2022. Félagið hefur alla tíð staðið
að líf legu starfi með því leiðarljósi
að ef la samstarf og vináttutengsl
Íslendinga við aðrar Norðurlanda
þjóðir. Spurður um mikilvægi nor
ræns samstarfs fyrir ungt fólk segir
Hrannar:
„Norrænt samstarf er að mörgu
leyti mjög mikilvægt fyrir ungt
fólk. Bæði hefur það opnað glugga
fyrir ungt fólk inn á hin Norður
löndin, annars vegar með Nor
djobb og hins vegar með háskóla
samstarfi.“
Hrannar segir það hafa sannast í
gegnum árin hversu mikilvægt nor
rænt samstarf er ungu fólki. Hins
vegar áttar fólkið sjálft sig ef til vill
ekki á gildi þess fyrr en síðar meir.
„Við ölumst f lest upp við það
að vera pínd í að læra dönsku og
sænsku í skóla og hata það en það
er ekki fyrr en eftir við erum búin
að kynnast kostum norræns sam
starfs og norrænna samfélaga að
við áttum okkur á mikilvægi þess.“
Heift og átök fyrir hundrað árum
Hrannar fer ekki í grafgötur með
það að Norræna félagið, líkt og
mörg önnur félagasamtök, hafi
þurft að takast á við dvínandi
félagsþátttöku á undanförnum
árum. Hann segir félagið þó hafa
fundið fyrir því undanfarin ár að
fólk sé smám saman að vakna aftur
til vitundar um mikilvægi þess að
hlúa að norrænu samstarfi.
„Það er auðvitað alveg ótrúlegt
að hugsa til þess að fyrir hundrað
árum síðan, þegar þessar þjóðir
voru hver í sínu horni að stofna
norræn félög og berjast fyrir nor
rænu samstarfi, þá var borgara
stríð í Finnlandi og þjóðirnar voru
að rífa sig lausar hver frá annarri
í sjálfstæðisbaráttu. Heiftin og
átökin á milli þjóðanna voru svo
mikil að það var alveg furðulegt
að einhverjum dytti það í hug að
leggja upp með félagsskap til að
berjast fyrir samstarfi, samvinnu
og vinarþeli á milli þessara þjóða.“
Í dag eru átök á milli Norður
landaþjóðanna algjörlega óhugs
andi sem má að stærstum hluta
þakka því hversu ötullega hefur
verið unnið að norrænu samstarfi.
Annað er þó uppi á teningnum víða
í Evrópu.
„Allt í kringum okkur í Evrópu
eru þjóðir með svipaðan menn
ingarbakgrunn, jafnvel svipaðan
genagrunn og menningarsögu, sem
hafa lent öfugum megin við landa
mærin, komnar í stríð við minnsta
tilefni. En því er ekki að heilsa hér
því við höfum ræktað vináttuna
og samstarfið sem við öll njótum,“
segir Hrannar. ■
Þorvaldur S.
Helgason
tsh
@frettabladid.is
42 Helgin 21. maí 2022 LAUGARDAGURFréttablaðið