Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 135
kolbrunb@frettabladid.is
Vortónleikar Kórs Hallgríms-
kirkju og Barokkbandsins Brákar
verða haldnir í Hallgrímskirkju nú
á sunnudaginn, 22. maí, klukkan
17.00. Stjórnandi er Steinar Logi
Helgason en einsöngvari á tónleik-
unum er Hallveig Rúnarsdóttir og
einleikari Elfa Rún Kristinsdóttir.
Björn Steinar Sólbergsson spilar
með á orgel.
Efnisskráin samanstendur af
þremur verkum eftir Joseph Haydn;
Salve Regina, fiðlukonsert í A-dúr og
Orgelmessu í B-dúr, en verkin heyr-
ast ekki oft á Íslandi. ■
Haydn í
Hallgrímskirkju
Verk eftir Joseph Haydn munu
hljóma í Hallgrímskirkju.
kolbrunb@frettabladid.is
Konur í hópi frumkvöðla á sviði
ljósmyndunar eru í forgrunni á
tveimur nýjum sýningum Þjóð-
minjasafns Íslands. Ljósmyndasýn-
ingin Í skugganum segir sögu fyrstu
kvennanna sem lögðu stund á ljós-
myndun í Danmörku, Færeyjum
og á Íslandi. Sérsýningin Nicoline
Weywadt segir frá fyrsta íslenska
k venljósmyndaranum. Opnun
sýninganna er í dag laugardaginn
21. maí klukkan 14.00 í myndasal
Þjóðminjasafnsins.
Yfirskrift sýningarinnar, Í skugg-
anum, vísar til þess að konurnar
sem sköpuðu ljósmyndirnar sinntu
verkum sínum í skugganum, í bók-
staflegri merkingu – það er að segja
á bak við myndavélina. Yfirskriftin
vísar einnig í það að þessar konur
stóðu oftast í skugga karlkyns
starfsbræðra sinna og verk þeirra
voru jafnvel eignuð eiginmönnum
þeirra.
Sýningin var upprunalega sett
upp í Museum Østjylland í Randers
á Jótlandi undir titlinum I skyggen
– De første kvindelige fotografer, í
apríl 2021 og hefur að undanförnu
verið sýnd víða í Danmörku.
Í tengslum við sýninguna Í
skugganum verður opnuð sérsýn-
ing á verkum fyrsta íslenska kven-
ljósmyndarans, Nicoline Weywadt,
á Veggnum á 1. hæð Þjóðminja-
safns Íslands. Á sýningunni eru
nokkrar ljósmyndir hennar, auk
teikningar af ljósmyndastúdíóinu
sem hún lét byggja á Teigarhorni.
Nicoline Wey wadt var fyrst
kvenna á Íslandi til að læra ljós-
myndun. Nicoline myndaði fyrst
og fremst fólk, en eftir hana eru
einnig útimyndir frá Djúpavogi,
Eskifirði og Seyðisfirði, sem sýna
upphaf þéttbýlismy ndunar á
þessum stöðum. Safn hennar er
einstæð heimild um Austfirðinga
og Austurland á seinni hluta 19.
aldar. ■
Konur í ljósmyndun
Glæsilegar
konur. Mynd/
Sögusafnið í
Vendsyssel.
Ársfundur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum verður
haldinn 25. maí 2022 á Hótel Natura kl. 8.15–10.
Á fundinum beinum við sjónum að spennandi rannsóknar- og þróunar verk efnum
á stofnuninni. Fjallað verður um rannsókn á máli íslenskra unglinga og nýstár-
legri athugun á litum í handritum. Stofnunin tekur virkan þátt í mál tækni áætlun
stjórn valda og er aðferðum máltækninnar nú beitt í fyrsta sinn við orða bókar-
gerð. Mikil þróun hefur orðið á rafrænum gagnasöfnum stofnun arinnar sem
bylt hefur rannsóknum og miðlun. Fágætt er að skinn handrit komi í leitirnar en
það gerðist á árinu 2021 þegar forn skinnblöð úr frægu fjórtándu aldar handriti
fundust óvænt í erlendu safni. Boðið verður upp á morgunverð.
DAGSKRÁ
Dagný Jónsdóttir formaður stjórnar
Ávarp
Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður
Á tímamótum
Trausti Dagsson
Gagnaþræðir: notkun, miðlun og tengingar gagnasafna
Helga Hilmisdóttir
Hvað einkennir íslenskt unglingamál?
Steinþór Steingrímsson og Starkaður Barkarson
Þróun, hagnýting og þjónusta – Árnastofnun og máltæknin
Lea Deborah Pokorny
Gulur, rauður, grænn og blár. Um litarannsóknir á íslenskum handritum
Svanhildur Óskarsdóttir
Upp koma svik um síðir: Stolin skagfirsk skinnblöð í British Library
Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra
Ávarp
Á nýjum slóðum
Skráning á: www.arnastofnun.is fyrir 24. maí 2022
Skýrsla stjórnar
Kynning ársreiknings
Stjórnarkjör
Tryggingafræðileg athugun
Fjárfestingarstefna sjóðsins
Kosning endurskoðanda
. Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins
Laun stjórnarmanna
Önnur mál
Ársfundur
Frjálsa lífeyrissjóðsins
Dagskrá
Skráning á fundinn og vefstreymi hans fer fram á frjalsi.is.
Sjálfkjörið er í varastjórn. Boðið verður upp á rafræna og skriflega kosningu
í aðalstjórn. Rafrænni kosningu lýkur á morgun, sunnudaginn 22. maí kl. 12.00.
Skrifleg kosning fyrir þá sem kjósa ekki rafrænt fer fram á ársfundinum sjálfum.
Fundargögn, aðgengi að rafrænni kosningu, upplýsingar um frambjóðendur
til stjórnar og aðrar upplýsingar um fundinn má nálgast á frjalsi.is
Við komu á fundinn þurfa sjóðfélagar að framvísa skilríkjum með mynd.
Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn.
Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn
mánudaginn 23. maí kl. 17.15 í höfuðstöðvum
Arion banka, Borgartúni 19.
LAUGARDAGUR 21. maí 2022 Menning 55Fréttablaðið