Fréttablaðið - 21.05.2022, Síða 135

Fréttablaðið - 21.05.2022, Síða 135
kolbrunb@frettabladid.is Vortónleikar Kórs Hallgríms- kirkju og Barokkbandsins Brákar verða haldnir í Hallgrímskirkju nú á sunnudaginn, 22. maí, klukkan 17.00. Stjórnandi er Steinar Logi Helgason en einsöngvari á tónleik- unum er Hallveig Rúnarsdóttir og einleikari Elfa Rún Kristinsdóttir. Björn Steinar Sólbergsson spilar með á orgel. Efnisskráin samanstendur af þremur verkum eftir Joseph Haydn; Salve Regina, fiðlukonsert í A-dúr og Orgelmessu í B-dúr, en verkin heyr- ast ekki oft á Íslandi. ■ Haydn í Hallgrímskirkju Verk eftir Joseph Haydn munu hljóma í Hallgrímskirkju. kolbrunb@frettabladid.is Konur í hópi frumkvöðla á sviði ljósmyndunar eru í forgrunni á tveimur nýjum sýningum Þjóð- minjasafns Íslands. Ljósmyndasýn- ingin Í skugganum segir sögu fyrstu kvennanna sem lögðu stund á ljós- myndun í Danmörku, Færeyjum og á Íslandi. Sérsýningin Nicoline Weywadt segir frá fyrsta íslenska k venljósmyndaranum. Opnun sýninganna er í dag laugardaginn 21. maí klukkan 14.00 í myndasal Þjóðminjasafnsins. Yfirskrift sýningarinnar, Í skugg- anum, vísar til þess að konurnar sem sköpuðu ljósmyndirnar sinntu verkum sínum í skugganum, í bók- staflegri merkingu – það er að segja á bak við myndavélina. Yfirskriftin vísar einnig í það að þessar konur stóðu oftast í skugga karlkyns starfsbræðra sinna og verk þeirra voru jafnvel eignuð eiginmönnum þeirra. Sýningin var upprunalega sett upp í Museum Østjylland í Randers á Jótlandi undir titlinum I skyggen – De første kvindelige fotografer, í apríl 2021 og hefur að undanförnu verið sýnd víða í Danmörku. Í tengslum við sýninguna Í skugganum verður opnuð sérsýn- ing á verkum fyrsta íslenska kven- ljósmyndarans, Nicoline Weywadt, á Veggnum á 1. hæð Þjóðminja- safns Íslands. Á sýningunni eru nokkrar ljósmyndir hennar, auk teikningar af ljósmyndastúdíóinu sem hún lét byggja á Teigarhorni. Nicoline Wey wadt var fyrst kvenna á Íslandi til að læra ljós- myndun. Nicoline myndaði fyrst og fremst fólk, en eftir hana eru einnig útimyndir frá Djúpavogi, Eskifirði og Seyðisfirði, sem sýna upphaf þéttbýlismy ndunar á þessum stöðum. Safn hennar er einstæð heimild um Austfirðinga og Austurland á seinni hluta 19. aldar. ■ Konur í ljósmyndun Glæsilegar konur. Mynd/ Sögusafnið í Vendsyssel. Ársfundur Stofnunar Árna Magnússonar í íslenskum fræðum verður haldinn 25. maí 2022 á Hótel Natura kl. 8.15–10. Á fundinum beinum við sjónum að spennandi rannsóknar- og þróunar verk efnum á stofnuninni. Fjallað verður um rannsókn á máli íslenskra unglinga og nýstár- legri athugun á litum í handritum. Stofnunin tekur virkan þátt í mál tækni áætlun stjórn valda og er aðferðum máltækninnar nú beitt í fyrsta sinn við orða bókar- gerð. Mikil þróun hefur orðið á rafrænum gagnasöfnum stofnun arinnar sem bylt hefur rannsóknum og miðlun. Fágætt er að skinn handrit komi í leitirnar en það gerðist á árinu 2021 þegar forn skinnblöð úr frægu fjórtándu aldar handriti fundust óvænt í erlendu safni. Boðið verður upp á morgunverð. DAGSKRÁ Dagný Jónsdóttir formaður stjórnar Ávarp Guðrún Nordal, prófessor og forstöðumaður Á tímamótum Trausti Dagsson Gagnaþræðir: notkun, miðlun og tengingar gagnasafna Helga Hilmisdóttir Hvað einkennir íslenskt unglingamál? Steinþór Steingrímsson og Starkaður Barkarson Þróun, hagnýting og þjónusta – Árnastofnun og máltæknin Lea Deborah Pokorny Gulur, rauður, grænn og blár. Um litarannsóknir á íslenskum handritum Svanhildur Óskarsdóttir Upp koma svik um síðir: Stolin skagfirsk skinnblöð í British Library Lilja D. Alfreðsdóttir, menningar- og viðskiptaráðherra Ávarp Á nýjum slóðum Skráning á: www.arnastofnun.is fyrir 24. maí 2022 Skýrsla stjórnar Kynning ársreiknings Stjórnarkjör Tryggingafræðileg athugun Fjárfestingarstefna sjóðsins Kosning endurskoðanda . Tillögur um breytingar á samþykktum sjóðsins Laun stjórnarmanna Önnur mál Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins Dagskrá Skráning á fundinn og vefstreymi hans fer fram á frjalsi.is. Sjálfkjörið er í varastjórn. Boðið verður upp á rafræna og skriflega kosningu í aðalstjórn. Rafrænni kosningu lýkur á morgun, sunnudaginn 22. maí kl. 12.00. Skrifleg kosning fyrir þá sem kjósa ekki rafrænt fer fram á ársfundinum sjálfum. Fundargögn, aðgengi að rafrænni kosningu, upplýsingar um frambjóðendur til stjórnar og aðrar upplýsingar um fundinn má nálgast á frjalsi.is Við komu á fundinn þurfa sjóðfélagar að framvísa skilríkjum með mynd. Stjórn sjóðsins hvetur sjóðfélaga til að mæta á fundinn. Ársfundur Frjálsa lífeyrissjóðsins verður haldinn mánudaginn 23. maí kl. 17.15 í höfuðstöðvum Arion banka, Borgartúni 19. LAUGARDAGUR 21. maí 2022 Menning 55Fréttablaðið
Síða 1
Síða 2
Síða 3
Síða 4
Síða 5
Síða 6
Síða 7
Síða 8
Síða 9
Síða 10
Síða 11
Síða 12
Síða 13
Síða 14
Síða 15
Síða 16
Síða 17
Síða 18
Síða 19
Síða 20
Síða 21
Síða 22
Síða 23
Síða 24
Síða 25
Síða 26
Síða 27
Síða 28
Síða 29
Síða 30
Síða 31
Síða 32
Síða 33
Síða 34
Síða 35
Síða 36
Síða 37
Síða 38
Síða 39
Síða 40
Síða 41
Síða 42
Síða 43
Síða 44
Síða 45
Síða 46
Síða 47
Síða 48
Síða 49
Síða 50
Síða 51
Síða 52
Síða 53
Síða 54
Síða 55
Síða 56
Síða 57
Síða 58
Síða 59
Síða 60
Síða 61
Síða 62
Síða 63
Síða 64
Síða 65
Síða 66
Síða 67
Síða 68
Síða 69
Síða 70
Síða 71
Síða 72
Síða 73
Síða 74
Síða 75
Síða 76
Síða 77
Síða 78
Síða 79
Síða 80
Síða 81
Síða 82
Síða 83
Síða 84
Síða 85
Síða 86
Síða 87
Síða 88
Síða 89
Síða 90
Síða 91
Síða 92
Síða 93
Síða 94
Síða 95
Síða 96
Síða 97
Síða 98
Síða 99
Síða 100
Síða 101
Síða 102
Síða 103
Síða 104
Síða 105
Síða 106
Síða 107
Síða 108
Síða 109
Síða 110
Síða 111
Síða 112
Síða 113
Síða 114
Síða 115
Síða 116
Síða 117
Síða 118
Síða 119
Síða 120
Síða 121
Síða 122
Síða 123
Síða 124
Síða 125
Síða 126
Síða 127
Síða 128
Síða 129
Síða 130
Síða 131
Síða 132
Síða 133
Síða 134
Síða 135
Síða 136
Síða 137
Síða 138
Síða 139
Síða 140
Síða 141
Síða 142
Síða 143
Síða 144

x

Fréttablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.