Fréttablaðið - 21.05.2022, Page 136

Fréttablaðið - 21.05.2022, Page 136
Það er til mezcal handa öllum. Líka á ísköldu vetrarkvöldi á Íslandi. KviKmyndir Everything, Every where, All at Once Leikstjóri: Dan Kwan, Daniel Scheinert Aðalhlutverk: Michelle Yeoh, Stephanie Hsu, Ke Huy Quan Arnar Tómas Valgeirsson Á bíótímum sem einkennast af endalausum framhaldsmyndum og misnotkun á nostalgíu, er sannar­ lega upplífgandi að fara blindandi inn á eitthvað gjörsamlega nýtt og finna óvænt ferskan andblæ. Kitlan fyrir Everything, Everywhere, All at Once gaf lítið upp um innihald myndarinnar sem síðan reyndist heldur betur bera nafn með rentu. Myndin segir frá Evelyn Wang sem rekur þvottahús í Bandaríkjun­ um ásamt fjölskyldu sinni. Evelyn á í mesta basli í sambandi sínu við dótt­ ur sína, eiginmann og föður og ofan á allt saman er fjölskyldureksturinn kominn á gapastokkinn hjá endur­ skoðanda. Eins og fjölskyldulífið sé ekki nógu flókið dregst Evelyn inn í kosmískt stríð þar sem hún verður að tengjast öðrum útgáfum af sjálfri sér úr fjölvíddinni til að koma í veg fyrir gereyðingu alheimsins. Það er ekkert annað! Þrátt fyrir að sögusviðið sé rugl­ ingslegt og stórfurðulegt þá er myndin stórskemmtilegur rússí­ bani sem heldur áhorfandanum við efnið allan tímann. Myndin er í senn bráðgáfuleg og nautheimsku­ leg og tekst að tvinna saman hjart­ næmt fjölskyldudrama, kjánalegan klósetthúmor, skírskotanir í popp­ kúltúr og heimspekilegar vangavelt­ ur um lífið og tilveruna, í sjúskaðan en vel heppnaðan kokteil. Leikararnir standa sig allir vel í fjölþættum hlutverkum sínum og það er svo ótrúleg staðreynd að einungis fimm manna teymi vann að megninu af tæknibrellunum í myndinni, sem gefa stórmyndum með smáþjóðir starfsfólks á bak við sig ekkert eftir. Þótt það sé margt til í kvabbi bölsýnismanna yfir stöðu kvikmyndaheimsins í dag er Eve­ rything, Everywhere, All at Once skínandi ljós frumleikans í myrkr­ inu. n niðurstaða: Mynd ársins hingað til. Stórskemmtilegur rússíbani. Allt í einu Michelle Yeoh reynir að bjarga heim­ inum í furðurlegri kosmískri fjölvídd. Deano Moncrieffe, stjörnu­ barþjónn og sendiherra Lost Explorer, sem er vín Björgólfs Thors Björgólfssonar, drakk í sig orku Íslands þegar hann kom hingað til þess að bjóða íslenskum matarforkólfum að bergja á framleiðslu Björgólfs. benediktboas@frettabladid.is „Ég er bara búinn að vera hérna mjög stutt en ég elska Ísland. Fékk alla orku landsins beint í æð og þetta útsýni sem þið hafið. Vá! Hvert sem ég lít, til hægri eða vinstri, er ótrúlegt útsýni,“ segir Deano Mon­ crieffe, sendiherra mezcal­vínsins Lost Explorer, sem Björgólfur Thor Björgólfsson framleiðir. Mezcal­vín Björgólfs var mest verðlaunaða mezcal­ið í heim­ inum árið 2021, en þrjár tegundir eru gerðar úr mismunandi agave­ plöntum sem taka mislangan tíma að vaxa og blómstra. Lost Explorer kom á markað á Íslandi á síðasta ári, en það var fjórða markaðssvæðið sem fékk áfengið til sölu. Aðeins Mexíkó, Bandaríkin og Bretland hófu sölu á undan. Umhverfissinninn David Roth­ schild er með Björgólfi Thor í þessu verkefni, en þeir félagar stofnuðu fyrirtækið með það að markmiði að búa til vöru sem hvetur fólk til að kanna og meta umhverfi sitt og láta gott af sér leiða. Moncrieffe hélt svokallað „mast­ er class“ með stjörnukokkum l a n d s i n s á Reykjavík Edi­ tion hótelinu þa r sem va r áhersla lögð á pörun mez­ cal með mat og mezcal­kokteilum með mat. Barþjónar fengu síðan sömu trakteringar, en þá á Héðni Kitchen & Bar. „Það er til mezcal handa öllum. Líka á ísköldu vetrarkvöldi á Íslandi sem ég sé sem dásamlegt kvöld,“ segir hann. „Hvort sem það er tekíla eða mezcal þá þarf að vera í réttum félagsskap til að drekka það. Að fá sér mezcal er ákveðin upplifun,“ bendir hann á. Moncrieffe segir að það sé löngu liðin tíð að fá sér tekíla með sítrónu og salti. Slíkt sé fortíðaróður. Hann tekur dæmi af barnum sínum Hacha þar sem hann parar mezcal sjónrænt fyrir viðskiptavini, meðal annars með hnetu M&M. „Það sem ég er að reyna að gera með því er að f lestir við­ skiptavinir eru ekki bragð­ nördar. Þeir sjá bragðið fyrir sér og skilja þannig bragðið betur.“ Moncrieffe segist ekki hafa neina Íslandsteng­ ingu aðra en Björgólf en segist alltaf vera að líta í kringum sig eftir nýjum og spenn­ andi hlutum. „Það er kosturinn við að vera sendiherra Lost Explorer því þá fæ ég að ferðast víða og kynnast alls konar bragði. Ég get farið aftur á barinn minn með nýjar hugmyndir. Barinn minn er ekki fastmótaður, allt er til endurskoðunar.“ Þá segist hann hlakka til að koma aftur. „Ég verð að koma með konuna mína hingað, þetta er eitthvað sem hún verður að fá að sjá og upplifa. Það verður reyndar smá erfitt að segja syni okkar, sem er tveggja ára, að hann fái ekki að koma með, en hann fær að koma næst.“ n Áfengissendiherra bar framleiðslu Björgólfs Thors í íslenska kokka Deano Mon­ crieffe bak við barinn á Reykja­ vík Edition þar sem hann hitti flesta af stjörnukokkum landsins til að para mat með mezcal­ víninu The Lost Explorer. FréttAbLAðið/ Sigtryggur Ari Björgólfur Thor toti@frettabladid.is Út sk r if t a r nemendu r leik a r a­ brautar LHÍ ráðast ekki á garð­ inn þar sem hann er lægstur í útskriftarverki sínu, þar sem þau takast á við eitt krúnudjásna leik­ bókmenntanna, hinn blóði drifna harmleik Hamlet eftir William Shakespeare. Li st a há skól i Ísla nd s sý n i r útskriftarverkið að þessu sinni í samstarfi við Þjóðleikhúsið og Leikfélag Akureyrar. Hópurinn reið á vaðið fyrir norðan og frum­ sýndi í Samkomuhúsinu á Akur­ eyri á fimmtudagskvöld og fyllti sali hússins með gleði og trega Shakespeares. Þau endurtók u síðan leikinn í gærkvöldi og aftur í kvöld þannig að segja má að danski prinsinn sé endurfæddur í dansk­ asta bænum á landinu. Sígilt verkið í nýrri þýðingu Þórarins Eldjárn hefur fengið feiknagóðar viðtökur bæjarbúa og sveitunga allt í kring, en leiðin liggur síðan suður þar sem hópur­ inn frumsýnir aftur í Kassanum í Þjóðleikhúsinu 25. maí. Leikstjórinn Bergur Þór Ingólfs­ son segir hópinn hafa mætt verk­ inu af hugrekki en um leið mikilli auðmýkt en leikgerðin er löguð að hópnum. Raunar fer það orð af útskriftarhópnum að hann sé á meðal þeirra bestu sem eru í þann mund að kveðja skóla sinn, svo samhentur sem hann er og gæddur óskiptum leikhæfileikum. n Að vera eða ekki vera … á Akureyri Eins og undanfarin árhundruð gengur mikið á á sviðinu þegar útskriftar­ nemarinir ráðast til atlögu við sjálfan Hamlet eftir Shakespeare. Mynd/AðSend 56 Lífið 21. maí 2022 LAUGARDAGURFréTTABlAðiðLífið FréTTABlAðið 21. maí 2022 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104
Page 105
Page 106
Page 107
Page 108
Page 109
Page 110
Page 111
Page 112
Page 113
Page 114
Page 115
Page 116
Page 117
Page 118
Page 119
Page 120
Page 121
Page 122
Page 123
Page 124
Page 125
Page 126
Page 127
Page 128
Page 129
Page 130
Page 131
Page 132
Page 133
Page 134
Page 135
Page 136
Page 137
Page 138
Page 139
Page 140
Page 141
Page 142
Page 143
Page 144

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.