Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 138

Fréttablaðið - 21.05.2022, Side 138
Hátún 6b, 105 Reykjavík / Sími 519 3223 / www.hudin.is Fylliefni er frábær meðferð til að fríska upp á útlitið. Bjóðum einnig upp á persónulega ráðgjöf. Við tökum vel á móti þér. FYRIR EFTIR Flýtileið Finna og Svía inn í Atlantshafsbanda- lagið væri nokkuð greið ef ljónið Erdogan væri ekki í veginum, með skýrar kröfur um að þjóð- irnar bæti ráð sitt í samskiptum við Tyrkland. Þessir stælar galopna tækifærissinnuðum Íslendingum dauðafæri til þess að hóta því að beita neitunarvaldi nema þjóðirnar tvær geri einlæga og raunverulega yfirbót með leiðrétt- ingu misgjörða sem hafa lengi legið þungt á þjóðarsálinni. toti@frettabladid.is odduraevar@frettabladid.is Finnland í NATO – Jólasveininn heim! Faxi svari fyrir glæpi sína Árum saman fótumtróð sænski varnarmaðurinn Staffan Olsson þjóðarstolt Íslendinga á handbolta- vellinum með slíkum dólg að enn telst „Faxi“ til helstu óvina þjóðarinnar. Nú er loks komið að skulda- dögum og vilji Svíar komast í öryggið í NATO verða þeir að framselja Faxa til Íslands þar sem hann verður sekur fundinn fyrir Landsdómi og látinn taka út sína refsingu á fangaeyjunni Viðey Bay sem reist verður yfir hann og aðra óvini íslensku þjóðarinnar, inn- lenda sem erlenda. Tyrkir ætla ekki að styðja umsókn Svía og Finna í NATO nema þjóðirnar láti af stuðningi við Verkamannaflokk Kúrda (PKK), sem Tyrkir líta á sem hryðjuverkasamtök, og aflétti vopnasölubanni til landsins sem sett var á eftir að Tyrkir réðust inn í Sýrland 2019. Kröfurnar sem Íslendingar geta gert eru öllu hófsam- ari en ekki síður mikilvægar þegar þeir eru, sem ein af stofnþjóðum NATO, aldrei þessu vant með yfirburða- stöðu gagnvart þessum vina- og frændþjóðum og geta hæglega bundið inngöngu Svía og Finna við það að þeir bæti fyrir að hafa áður niðurlægt okkur af ofríki og ofur- efli í nokkrum af okkar helstu hjartans málum. n Afsláttur í IKEA Sænska húsgagnaverslana- keðjan er með íslenska þjóð í svo skilyrtum hlekkjum að þá sjaldan sem ungu fólki hérna tekst að koma sér þaki yfir höfuðið liggur leið þess beint í Kauptúnið til þess að innrétta nýju íbúðina. Ríkisstjórnin verður því að krefjast þess að Íslendingar fái 75 prósenta afslátt af öllum IKEA-vörum enda að öðru leyti með öllu úrræðalaus í húsnæðismálum. Þá verður Svíum lokuð leiðin í NATO nema öllum Íslend- ingum verði boðið í ókeypis sænskar kjötbollur í IKEA á 17. júní. Svíar skili Eurovision-sigrinum Þegar sænskir glæpir gagnvart íslenskri þjóð eru annars vegar, er ljótt brot söngkonunnar Char- lotte Nilsson svo stórt og ljótt að illvirki Faxa, landa hennar, fölna nánast í samanburðinum. Óþverrabragðið að stela Eurovision-sigrinum frá Íslendingum 1999 verður aldrei fyrirgefið. Auðvitað sigraði Selma með All Out of Luck og það skulu Svíar nú viðurkenna með því að játa sig sigraða og skila 1. sætinu. Svindlarinn Charlotte getur ekki komist hjá því að svara fyrir glæpinn þótt hún hafi breytt eftirnafni sínu í Perelli og skal dregin til ábyrgðar og látin keppa fyrir Íslands hönd á næsta ári áður en henni verður fundinn varanlegur samastaður í Viðey Bay. Jólasveininn heim! Hvert mannsbarn í víðri veröld vissi upp á sína tíu fingur að Jólasveinninn ætti lögheimili sitt og varnarþing á Íslandi. Nánar til tekið í Esjunni þar sem hann eyddi árhundruð- unum, þrettánfaldur í roðinu, á heimili móður sinnar, hennar Grýlu. Allt breyttist þetta þegar Finnar byrjuðu að spinna sinn ljóta lygavef og þjófstálu heimilisfangi Jólasveinsins með tilheyrandi tekjutapi fyrir íslenska póst- og ferðaþjón- ustu. Krafan er skýr. Vilji Finn- land í NATO skal Jólasveinninn koma heim og fá að vera þar óáreittur um ókomna tíð! Lordi á Þjóðminjasafnið Margt er líkt með skyldum, eins og sést ágætlega á því hversu auð- velt Finnum hefur reynst að herma eftir skammdegisþunglyndis- legum drykkjuvenjum Íslendinga. Aðeins eitt dæmi af mörgum um hvernig Finnar renna ítrekað hýrum þjófsaugum sínum til Íslands og alls ekki jafn slæmt og þegar þeir í Lordi skyggðu á okkur í Eurovisi- on 2006, íklæddir tilkomumiklum búningum þar sem stílnum var stolið frá íslenskum tröllum og útilegumönnum. Finnum ber að skila búningunum sem verða varðveittir á Þjóðminjasafninu eftir að Lordi hefur öskrað Ísland til sigurs í Eurovision 2024. 58 Lífið 21. maí 2022 LAUGARDAGURFréTTAblAðið
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104
Side 105
Side 106
Side 107
Side 108
Side 109
Side 110
Side 111
Side 112
Side 113
Side 114
Side 115
Side 116
Side 117
Side 118
Side 119
Side 120
Side 121
Side 122
Side 123
Side 124
Side 125
Side 126
Side 127
Side 128
Side 129
Side 130
Side 131
Side 132
Side 133
Side 134
Side 135
Side 136
Side 137
Side 138
Side 139
Side 140
Side 141
Side 142
Side 143
Side 144

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.