Fréttablaðið - 21.05.2022, Síða 140
AUGLÝSINGADEILDIR – AUGLÝSINGASTJÓRI: Guðmundur Örn Jóhannsson gudmundur@torg.is, ALMENNAR AUGLÝSINGAR: SÍMI 550 5050:
Andrés Bertelsen andres@frettabladid.is, Auður Húnfjörð audur@frettabladid.is, Reynir Elís Þorvaldsson reynir@frettabladid.is, Örn Geirsson orn@frettabladid.is FÓLK/
SÉRBLÖÐ SÍMI 550 5078: Arnar Magnússon arnarm@frettabladid.is, Jóhann Waage johannwaage@frettabladid.is, Jón Ívar Vilhelmsson jonivar@frettabladid.is, Ruth Bergsdóttir
ruth@frettabladid.is FÓLK OG SÉRBLÖÐ EFNI: Elín Albertsdóttir elin@frettabladid.is RAÐAUGLÝSINGAR /FASTEIGNIR SÍMI 550 5056: Hrannar Helgason hrannar@frettabladid.is,
TÍMAMÓTA- OG ÞJÓNUSTUAUGLÝSINGAR SÍMI 550-5055: Arna Rut Kristinsdóttir arnarut@frettabladid.is
toti@frettabladid.is
Björn Birgisson, samfélagsrýnir
og eldri borgari í Grindavík, segir
fréttavikuna mikið hafa einkennst
af Framsóknarflokknum sem virtist
víðast hvar vinna á í kosningunum.
„Vann stórsigur í Reykjavík bara
út á það eitt að vera með uppgjafa
fréttamann við stýrið og boða breyt
ingar, en enginn vissi nákvæmlega
hvaða breytingar og spurður nánar
út í þær lítur fréttamaðurinn út eins
og í miðri gúrkutíð – ekkert að frétta!
Hér í Grindavík er það helst af
Framsóknarflokknum að frétta að
hann sveik oddvitann sinn til síð
ustu fjögurra ára og ætlaði sér stóra
hluti í kosningunum, en uppskeran
varð eins og til var sáð – langt undir
væntingum.“
Björn segist hafa gripið til
örþrifaráða þegar síðasta jarð
skjálftahrina gekk yfir Grindavík
og var við það að ganga fram af
honum og f leira fólki. „Þá gerði ég
samkomulag við Kölska þess efnis
að hann hleypti eldgosi upp, en
tæki jarðskjálftana niður til sín.
Hann stóð við sitt og eldgosið við
Fagradalsfjall varð að veruleika
og jörðin hætti að skjálfa. Nú veit
ég ekki hvort Kölski er til í frekari
samningagerð, en ég er það.“
Þá víkur Björn að stærstu póli tísku
tíðindunum í bænum. „Þegar allir
héldu að Miðflokkurinn væri kom
inn á líknardeild á landsvísu gerðu
liðsmenn hans í Grindavík sér lítið
fyrir og gjörsigruðu andstæðinga
flokksins með svo eftirminnilegum
hætti að minnti helst á 142 sigur
Dana um árið! Nú eru þeir sem lentu
í tapliðinu að úthugsa leiðir til að
sigurvegari kosninganna fái ekki að
njóta sigursins í neinu. Þannig virkar
íbúalýðræðið víst hjá sumu fólki!“ ■
Samningur við Kölska í fréttaviku Framsóknar
Björn Birgisson, eldri borgari í
Grindavík. MYND/AÐSEND
■ Fréttir vikunnar
Björn Birgisson
HOUSTON hornsófi
Fallegt koníakslitað bonded leður.
275 x 210 x 85cm. Fullt verð: 249.900 kr.
Nú 199.920 kr.
SÓFADAGAR
12. - 30. maí
AUSTIN sófi
3ja sæta stillanlegur sófi. Hægra og vinstra sæti eru
hallanleg með skammel. Miðjusæti niðurfellanlegt
og verður að borði. 198 x 95 x 98 cm.
Fullt verð: 299.900 kr. Nú 239.920 kr.
MEGA u-sófi
Fallegur sófi með gráu áklæði.
Hægri eða vinstri tunga
382 x 241 x 85 cm. Fullt verð: 299.900 kr. Nú 239.920 kr.
Fáðu fréttirnar fyrst um tilboð,
afsláttarkóða eða aðgang að útsölum
á undan öðrum með því að skrá þig á
póstlista Dorma.
Holtagörðum, Reykjavík
Smáratorgi, Kópavogi
Dalsbraut 1, Akureyri
Skeiði 1, Ísafirði
Magnús Maríuson fer með
hlutverk í kvikmyndinni The
Vagabonds eftir Doroteyu
Droumevu, sem frumsýnd er
á Cannes í komandi viku.
ninarichter@frettabladid.is
Magnús er sonur Maríu Sólrúnar
Sigurðardóttur leikstjóra og á því
listina ekki langt að sækja. Hann fór
með aðalhlutverk í kvikmyndinni
Adam frá árinu 2018, sem frum
sýnd var á Berlinalehátíðinni. „Við
mamma gerðum þessa kvikmynd
saman,“ segir hann.
Lék í þýskri risaframleiðslu
Magnús er alinn upp í Berlín en
talar góða íslensku. Hann hefur
verið önnum kafinn í faginu frá
árinu 2015 og segir óvænt að hafa
verið boðið að fylgja The Vagabonds
á Cannes. „Ég vissi að Doroteya Dro
umeva, leikstjórinn sem gerði þessa
mynd, vann Cinéfondationverð
launin fyrir Der Brief árið 2011. Þess
vegna var henni boðið að frumsýna
sína kvikmynd í Cannes á þessu ári,“
segir hann.
Síðustu ár hefur Magnús starfað
í London og í Finnlandi. „Nú er ég
kominn til baka til Berlínar. Ég var
að leika í þáttaröðinni Das Boot,“
segir hann og vísar til risastórrar
þýskrar framleiðslu fyrir Sky One,
sem er byggð á samnefndri bók Lot
harGünther Buchheim frá 1973, og
er framhaldssaga af kvikmynd
Wolfgang Petersen frá árinu 1981.
„Þetta er eiginlega stærsta fram
leiðsla frá Þýskalandi frá upphafi
og það er mikill heiður að fá að vera
með í því. Ég var samt í aukahlut
verki,“ segir hann glettinn.
Alinn upp í bransanum
Aðspurður hvernig andrúmsloftið
sé á Cannes, svarar Magnús að mik
ill fjöldi sé á svæðinu. „Það er alveg
tilfinningin að fólk sé búið að bíða í
tvö ár eftir að geta komist hingað og
sýnt sig og notið alls þessa nýja sem
er í boði,“ segir hann.
Magnús er alinn upp í bransanum
og segist hafa fylgt foreldrum sínum
á kvikmyndahátíðir síðan í æsku.
„Ég fékk að fara með og hef farið á
Berlinale, og hef tvisvar áður farið á
Cannes. Þess vegna er þetta svolítið
náttúrulegt umhverfi fyrir mig,“
segir hann.
Hefur „deitað“ sér eldri konur
Í The Vagabonds fer Magnús með
hlutverk Lucky, elskhuga aðalper
sónunnar, konu á miðjum aldri.
Söguþráður myndarinnar hverfist
í kringum fordóma og tabú sem
fylgir aldursmun í samböndum
þar sem konan er eldri. „Aðalper
sónan mætir miklum fordómum
og upplifir eitraða karlmennsku í
kringum sig. Þessi saga er byggð á
reynslu leikstjórans,“ segir Magnús.
„Persónan heldur að karakterinn
minn sé stóra ástin hennar, en svo
kannski gerist eitthvað,“ segir hann
og hlær.
Aðspurður um undirbúninginn
fyrir hlutverkið, segist Magnús
hafa velt fyrir sér sinni eigin stefnu
mótasögu, sérstak
lega í tengslum við
Tinder. Hann hafi
einnig „deit að“
konur sem er u
eld r i en ha nn
og því hafi hug
m y n d i n e k k i
verið honum mjög
framandi.
„ Þ e s s ve g n a
kom þetta svona
náttúrulega og ég
skil alveg karakt
erinn og hvers
vegna hann gerir
h l u t i n a s e m
hann gerir,“ segir
Magnús.
Hlutgerður
vegna plakats
Hann segir plak
at myndarinnar
hafa opnað fyrir
honum sý n í
heim k venna
sem hann þekkti
ekki áður, þegar
fólk áreitti hann
veg na nektar
innar. „Ég er ber
að ofan á plakatinu og er að upplifa
svolítið svipaða hluti og konur hafa
upplifað mjög lengi, þegar þær eru
hlutgerðar.
Fólk hefur verið að gagnrýna
hvernig líkaminn birtist og svona,“
segir hann og bætir við að hann
sé þó glaður yfir að hafa tekið
þátt í verkefninu. Að sjálfsögðu sé
leikstjórinn að hlutgera hann á
plakatinu og geri það mjög með
vitað. Konur hafi gengið í gegnum
hið sama í gegnum tíðina og nú sé
kominn tími á breytingar.
„Mér finnst líka svo mikilvægt
að skilja konur og skilja fordómana
sem þær mæta.“
Aðspurður hvort hann telji að
hlutverk á borð við þetta hafi áhrif
á hlutverkin sem hann fái í fram
tíðinni, svarar Magnús: „Þetta hefur
örugglega áhrif. Ég er mjög oft val
inn sem „love interest“ og á að leika
einhvern sem er svona sætur. Ég fæ
oft slíkar rullur,“ segir hann. ■
Hlutgerving ungra karla
Magnús Maríu-
son er staddur
í Cannes að
fylgja eftir kvik-
myndinni The
Vagabonds.
MYND/
NILS SCHWARZ
Magnús er ber að ofan á plakati The Vagabonds og segir
nektinni fylgja athugasemdir og hlutgerving sem hann
átti ekki von á. MYND/AÐSEND
60 Lífið 21. maí 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐ