Fréttablaðið - 11.06.2022, Page 12

Fréttablaðið - 11.06.2022, Page 12
Nýtt athvarf var opnað í vikunni fyrir úkraínska flóttamenn. Þrír Úkraínu- menn með ólíkan bakgrunn segja sögu sína: vélstjóri, athafnamaður og fyrrum framkvæmdastjóri. tsh@frettabladid.is Fréttablaðið leit inn í nýtt athvarf fyrir úkraínskt f lóttafólk sem var opnað í vikunni á Aflagranda 40. Að framtakinu standa samtökin Flóttafólk, sem ráku áður mötu- neyti í Guðrúnartúni 8, og Reykja- víkurborg sem skaffar húsnæðið. Sveinn Rúnar Sigurðs son læknir er einn skipuleggjenda ásamt Valgeiri Magnússyni, og segir hann starf- semina vera mjög umfangsmikla. „Þetta starf rammar inn vinnu um 300 sjálf boðaliða sem hefur bara í einu og öllu verið sú fótfesta sem þessi risavaxni hópur, 1.100 manns, hefur nýtt sér til þess að ná hér landi frá fyrsta degi.“ Ýmisleg þjónusta er í boði fyrir f lóttafólkið á Aflagranda, allt frá afþreyingu upp í sálgæslu og læknis- þjónustu á móðurmáli þess. „Við munum halda þessu úti eins lengi og þörf er á. Við verðum bara að hafa dug til og getu til þess að stan- dast þessa óvissu, ekki bara við, held- ur landsmenn allir, því við höfum aldrei staðið frammi fyrir viðlíka vanda,“ segir Sveinn og bætir við að þótt álagið sé mikið þá sé hópurinn þannig úr garði gerður að hann næri sjálfboðaliðana hvern einasta dag. Hér á eftir má lesa sögur þriggja úkraínskra flóttamanna sem komu hingað til lands eftir að Rússar réðust inn í heimaland þeirra 24. febrúar. n Raddir frá Úkraínu Bi rt m eð fy rir va ra u m p re nt vil lu r. He im sfe rð ir ás kil ja sé r r ét t t il l eið ré tti ng a á sl íku . A th . a ð v er ð g et ur b re ys t á n fyr irv ar a. 595 1000 www.heimsferdir.is Verona Láttu Ítalska drauminn rætast! 19.950 Flug aðra leið frá Flugsæti Rúmlega 1100 Úkraínumenn hafa komið hingað til lands og er ýmisleg þjónusta í boði fyrir þá í sam- félagshúsinu á Aflagranda. FRÉTTABLAÐIÐ/ ANTON BRINK Alexandr Khreupeak 37 ára frá Tsjerkasy, athafnamaður Hvað gerðirðu áður en þú komst til Íslands? „Ég flutti fyrst frá Úkraínu þegar ég var 19 ára gamall. Ég fór til Kína og lærði bitakeðjutækni við háskólann í Shenzhen. Ég bjó þar í um tíu ár og flutti svo til Spánar þar sem ég bjó í um sex ár. Síðan flutti ég aftur til Úkraínu og stofnaði fyrirtæki sem flutti inn rafbíla.“ Af hverju ákvaðstu að koma til Íslands? „Í fyrsta lagi þá talar fólk ensku hér, þannig að ef ég myndi fara eitthvert annað, eins og til Frakk- lands eða Þýskalands, þá myndi ég þurfa að byrja alveg frá grunni að læra tungumálið. Ég vissi líka að á Íslandi eru mörg atvinnutækifæri, auðvelt að fá vinnu og koma sér fyrir, auk þess sem það er öruggur staður. Maður veit aldrei hvað verður næsta skrefið hjá herra Pútín, kannski mun hann senda kjarnorkuvopn eða eitthvað þvíumlíkt.“ Hvernig hefur stríðið haft áhrif á þig? „Tja, ég missti fyrirtækið mitt. Ég vann við það að flytja rafbíla frá Kína til Úkraínu. Gaurinn sem var milliliður á milli mín og söluaðilans í Kína tók allt. Þannig að ég tapaði miklum peningum og var nánast allslaus. 37 ára gamall þurfti ég að hefja nýtt líf.“ Eru fjölskylda þín og vinir enn í Úkraínu? „Mamma mín er enn í Úkraínu, hún er tæplega sextug. Það er nú mikið atvinnuleysi og margir eru ekki með neina vinnu. Það er mjög erfitt að verða sér úti um mat í búðum, fólk getur kannski keypt kíló af sykri, kíló af salti og kíló af hveiti, ekki mikið meira. Þannig að ástandið er mjög erfitt.“ Þú vinnur nú sem ísgerðarmaður hjá Valdísi, er það ekki svolítið ólíkt því sem þú gerðir áður? „Gjörsamlega ólíkt en mér finnst gaman að gera mismunandi hluti. Mér finnst ekkert svo erfitt að fá svona nýtt tækifæri, nýtt starf og nýtt líf. Ég bý til ís og fæ að gleðja börn og ég veit að Íslendingum finnst ís mjög góður.“ Kateryna Kostyuchenko 37 ára frá Dnípró, framkvæmdastjóri Hvað gerðirðu áður en þú komst til Íslands? „Ég vann í tíu ár sem fram- kvæmdastjóri innflutnings og útflutnings í fæðubirgðakeðju frá Kína, Banda- ríkjunum og Evrópu til Úkraínu. Vörurnar sem um var að ræða eru meðal annars efnaafurðir og áburður til nota í landbúnaði.“ Hvernig komstu til Íslands? „24. febrúar yfirgáfum við borgina og eyddum nokkrum dögum í skúr úti í sveit. Ég og systir mín flúðum með tvö börn, tvo hunda og tvo ketti. Við keyrðum í gegnum Rúmeníu og Búlg- aríu. Systir mín endaði í Portúgal og tveimur vikum síðar fór ég til Íslands.“ Var vel tekið á móti þér hér? „Já, ég upplifði mig meira en velkomna! Stuðningur og hjálp alls staðar að, frá hverri einustu manneskju í raun, á Facebook-grúppum og úti á götu. Allt fólkið er svo hlýlegt og núna vorum ég og sonur minn að flytja inn í íbúð á Seltjarnarnesi.“ Ertu komin með vinnu? „Nei, ekki enn. Sonur minn er sex ára gamall og í dag var fyrsti dagurinn hans á íslenskum leik- skóla. Ég ákvað að byrja á því að koma honum á leikskóla og svo fer hann á sumarnámskeið og þá get ég byrjað að vinna af því ég er ekki með neina barnapíu.“ Myndirðu vilja búa á Íslandi til frambúðar? „Já, mig langar að vera hér. Mér finnst veðrið hérna og hitastigið henta mér vel. Það kemur reyndar betur í ljós í vetur en núna er það fínt.“ Er einhver úr fjölskyldunni þinni ennþá í Úkraínu? „Sá eini sem er eftir í Úkraínu er maðurinn minn sem vinnur við lestarsamgöngur. Systir mín og foreldrar mínir eru öll farin. Foreldrar mínir fluttu frá Búlgaríu til Skotlands. Í raun er lítið eftir fyrir mig í Úkraínu.“ Roman Drahulov 22 ára frá Kherson, vélstjóri Hvað gerðirðu áður en þú komst til Íslands? „Ég stundaði nám í skipaverk- fræði og starfaði sem vélstjóri. 23. febrúar átti ég að fara í siglingu frá Odesa til Alexandríu í Egyptalandi, en vegna þess að stríði var lýst yfir í Úkraínu var karlmönnum ekki leyft að fara úr landi þannig að samningnum mínum var frestað. En eitt leiddi af öðru og ég endaði á að yfirgefa Úkraínu.“ Þú vildir ekki verða eftir og berjast í stríðinu? „Ég er ekki atvinnuhermaður. Ég átti að gegna tímabundinni herþjónustu, hver og einn karlmaður á aldrinum 18 til 27 ára þarf að sinna herskyldu, en það eru ýmsar undantekningar. Ég er enn í námi þannig að ég gat frestað minni herskyldu.“ Hvaða starf fékkstu á Íslandi? „Sama og ég vann við áður. Ég vinn hjá Faxaflóa- höfnum. Mér líkar það mjög vel, starfsandinn er svipaður og mér líkar vel við samstarfsfólk mitt.“ Myndirðu vilja búa á Íslandi til frambúðar? „Já, ég var búinn að stefna á að koma hingað í fjögur ár. Menningin og tungumálið eru stór partur af því af hverju mig langar að búa hér.“ Heldurðu að Úkraína muni vinna stríðið? „Það er erfitt að segja hvað framtíðin ber í skauti sér. Eitt get ég sagt, það skiptir ekki máli hvernig stríðið mun enda, landið okkar verður í slæmu standi í minnst fimm ár. Margt fólk mun flýja um heim allan, bara til þess að deyja ekki úr hungri. Við eigum fallega jörð, við eigum fallega staði og við eigum fallegar náttúruauðlindir. En í gegnum tíðina höfum við verið öfundarefni annarra landa. Allir vilja bút af Úkraínu. Ég veit ekki hvernig stríðið mun enda en það eru erfiðir tímar fram undan.“ INNRÁS Í ÚKRAÍNU FRÉTTABLAÐIÐ 11. júní 2022 LAUGARDAGUR
Page 1
Page 2
Page 3
Page 4
Page 5
Page 6
Page 7
Page 8
Page 9
Page 10
Page 11
Page 12
Page 13
Page 14
Page 15
Page 16
Page 17
Page 18
Page 19
Page 20
Page 21
Page 22
Page 23
Page 24
Page 25
Page 26
Page 27
Page 28
Page 29
Page 30
Page 31
Page 32
Page 33
Page 34
Page 35
Page 36
Page 37
Page 38
Page 39
Page 40
Page 41
Page 42
Page 43
Page 44
Page 45
Page 46
Page 47
Page 48
Page 49
Page 50
Page 51
Page 52
Page 53
Page 54
Page 55
Page 56
Page 57
Page 58
Page 59
Page 60
Page 61
Page 62
Page 63
Page 64
Page 65
Page 66
Page 67
Page 68
Page 69
Page 70
Page 71
Page 72
Page 73
Page 74
Page 75
Page 76
Page 77
Page 78
Page 79
Page 80
Page 81
Page 82
Page 83
Page 84
Page 85
Page 86
Page 87
Page 88
Page 89
Page 90
Page 91
Page 92
Page 93
Page 94
Page 95
Page 96
Page 97
Page 98
Page 99
Page 100
Page 101
Page 102
Page 103
Page 104

x

Fréttablaðið

Direct Links

If you want to link to this newspaper/magazine, please use these links:

Link to this newspaper/magazine: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link to this issue:

Link to this page:

Link to this article:

Please do not link directly to images or PDFs on Timarit.is as such URLs may change without warning. Please use the URLs provided above for linking to the website.