Fréttablaðið - 11.06.2022, Síða 20
Boris fer
seint í
sögu-
bækurn-
ar sem
einn af
hinum
stóru.
Heill sé
Bjart-
mari
sjö-
tugum
og takk
fyrir alla
tónlist-
ina.
Á morgun, sunnudag, verður
loks haldið almennilega upp
á sjómannadaginn með til-
heyrandi hátíðarhöldum um
allt land.
bjork@frettabladid.is
Hátíðardagskrá sjómannadagsins
Harpa
n Kl. 10.00 athöfn við
Minningaröldur
sjómannadagsins í
Fossvogskirkjugarði.
Sr. Sveinn Valgeirsson
flytur minningarorð
og bæn. Heiðursvörð
standa starfsmenn
Landhelgisgæslunnar.
Dómkirkjan
n Kl. 11.00 Hátíðarmessa
í Dómkirkjunni þar sem
biskup Íslands, Agnes
M. Sigurðardóttir,
prédikar og séra Sveinn
Valgeirsson, sóknarprestur
Dómkirkjunnar, þjónar.
Dómkórinn syngur undir
stjórn Kára Þormar
dómorganista, sem einnig
leikur á orgelið. Bryndís
Guðjónsdóttir syngur
einsöng. Lesarar frá
Landhelgisgæslunni. Meðan á
guðsþjónustu stendur verður
lagður blómsveigur á leiði
óþekkta sjómannsins.
Harpa
n Kl. 14.00 Sjómenn heiðraðir í
Hörpuhorni í Hörpu. Gerður
G. Bjarklind er kynnir og
Karlakórinn Fóstbræður
syngur.
Stóra sviðið hjá Brimi
Norðurgarði 1
n 13.00-13.15 Eva Ruza og
Hjálmar kynnar á stóra sviði.
n 13.15-13.30 Bríet.
n 13.30-13.50 Ávaxtakarfan.
n 13.50-14.10 Eva Ruza og
Hjálmar.
n 14.10-14.40 Björgun á sjó.
n 14.45-15.00 Emilía Hugrún,
sigurvegari söngkeppni
framhaldsskólanna.
n 15.00-15.10 Eva Ruza og
Hjálmar.
n 15.10-15.30 Jón Arnór og
Baldur.
n 15.30-16.00 Valdimar
Guðmundsson og gítar.
Litla sviðið á Grandagarði
Grandagarði 8, við Kaffivagninn
n 13.00-13.15 Helgi Jean kynnir.
n 13.15-13.30 Latibær.
n 13.30-13.40 Helgi Jean.
n 13.40-14.10 Gömlu sjómanna-
lögin - Reynir Jónasson, Gunn-
ar Kvaran á harmóníku, Fróði
Oddsson á bassa.
n 14.40-14.40 Helgi Jean.
n 14.50-15.10 Lína Langsokkur.
n 15.10-15.35 Einar Mikael töfra-
maður.
n 15.40-16.15 Magnús Hafdal
trúbador.
Línubrú
Við Víkina, Sjóminjasafn Granda-
garði 8
Björgunarsveitin Ársæll setur
upp línubrú sem krakkar mega
prófa fyrir aftan Víkina Sjó-
minjasafn – við varðskipið
Óðinn frá klukkan 11 til 16.
Dorgveiðikeppni
Við Verbúðarbryggjuna,
Grandagarði 1
Á Verbúðarbryggjunni verður
dorgveiði fyrir krakkana frá
klukkan 13 til 14. Mælt er með
að krakkarnir komi með sínar
eigin stangir.
Andlitsmálning
Grandi
Andlitsmálning fyrir káta krakka
– frá klukkan 13 til 15.
Furðufiskasýning
Grandagarður 7
Frá klukkan 11 til 17 má skoða
fjölbreytta fiska og furðu-
skepnur í kerjum. Allt frá
algengum nytjafiskum eins
og þorski og ýsu til sjaldséðari
tegunda eins og svartdjöfuls og
bjúgtanna.
Aflraunakeppni
Við Granda Mathöll Norðurgarði 1
Fyrir framan Granda Mathöll
geta áhafnir, einstaklingar og
hópar reynt fyrir sér í alls kyns
aflraunum, eins og reynt við
Atlas-steinana, bóndagöngu,
sekkjaburð o.fl. Einnig gefst
almenningi tækifæri á að reyna
við þessar aflraunir.
Heimsókn í ísfisktogarann Viðey
Norðurgarður 1
Ísfisktogarinn Viðey mun liggja
við bryggju hjá Brimi þar sem
gestum og gangandi er boðið
að fara um borð og skoða frá
klukkan 12 til 16.
Olíumengun í hafi
Grandagarður 27
Í tilefni sjómannadagsins býður
Umhverfisstofnun til sýningar á
Grandagarði frá klukkan 11 til 17
þar sem hægt er að fræðast um
olíumengun í sjó og viðbrögð til
að lágmarka áhrif olíumengunar
á lífríki. Mengun í hafi verður oft
og tíðum skyndilega og því er
mikilvægt að grípa tafarlaust til
aðgerða.
Frítt inn í Sjóminjasafnið
Grandagarður 8
Í tilefni dagsins eru allir boðnir
velkomnir endurgjaldslaust í
Sjóminjasafnið.
Sjómannslíf, sjómannslíf,
ástir og ævintýr
Sjómannadagurinn er haldinn hátíðlegur um allt land þar sem sjómenn eru
heiðraðir og boðið upp á ýmiss konar skemmtun fyrir unga sem aldna.
n Í vikulokin
Ólafur
Arnarson
Þjóðargersemin Bjartmar Guðlaugsson
fagnar sjö áratuga afmæli á mánu-
daginn og prýðir af því tilefni forsíðu
þessa tölublaðs. Þegar falast var eftir
spjalli við Bjartmar tilkynnti hann
blaðamanni að hann væri lítið fyrir stöðluð
blaðaviðtöl um ferilinn og var honum lofað að
ekki væri lagt upp með slíkt. Útkoman er svo
sannarlega ekki staðlað viðtal heldur hressileg
lesning um vangaveltur eins ástsælasta söngva-
skálds þjóðarinnar um þunglyndi, kímnigáfu,
Bob Dylan, Sumarliða, Vesturbæinn, húmors-
lausa menn og margt fleira.
Ég kalla Bjartmar hikstalaust þjóðarger-
semi enda gaf hann okkur lög og texta eins og
Sumarliði fullur, Fimmtán ára á föstu, Ég er
ekki alki, Með vottorð í leikfimi, Súrmjólk í
hádeginu og síðast en ekki síst lagið um Týndu
kynslóðina sem eins og mörg önnur verk Bjart-
mars er magnaður samfélagsspegill. En svo
á Bjartmar líka heiðurinn af vinsælasta lagi
allra tíma að mati þjóðarinnar, Þannig týnist
tíminn, magnað ljóð um ástina og tímann.
Heill sé Bjartmari sjötugum og takk fyrir alla-
tónlistina! n
BJORK@FRETTABLADID.IS
Týnda kynslóðin
Hilduromars.is
Nýjasta viðbótin við matarbloggs-
f lóruna er grænkerasíða Hildar
Ómarsdóttur sem fór í loftið í vik-
unni. Á síðunni má finna gríðarlega
girnilegar og sumar líka einfaldar og
f ljótlegar, vegan uppskriftir, fróð-
leik og f leira fyrir grænkera og þá
sem vilja bæta meira grænu í líf sitt.
Við mælum með
B-Ruff á Röntgen
Benedikt Freyr Jónsson, betur
þekktur sem Benni B-Ruff, þeytir
skífum á Röntgen á Hverfisgötu í
kvöld. Benni er þekktur fyrir mikla
plötusnúðasnilli sína og spilar mest
RnB og hip hop frá síðustu áratug-
um. Benni spilaði sitt fyrsta „gigg“
aðeins tólf ára gamall. Það er alltaf
skemmtileg stemning á Röntgen og
þá sérstaklega um helgar en barinn
var nýlega útnefndur besti bar borg-
arinnar af tímaritinu Grapevine. n
Boris Johnson, forsætisráðherra
Bretlands, stóð af sér vantrausts-
tillögu í breska þinginu í vikunni.
Þingmenn hans eigin flokks knúðu
fram atkvæðagreiðsluna og allir 359
þingmenn Íhaldsflokksins greiddu
atkvæði.
Bor is fék k þó ek k i nema
211 atkvæði frá þingmönnum
Íhaldsflokksins, sem þýðir að innan
við 60 prósent þeirra styðja leiðtoga
flokksins. 148 íhaldsmenn greiddu
atkvæði gegn foringjanum.
Boris bar sig vel ef tir að
niðurstaðan var kunngerð, sagði
hana afgerandi. Varla hef ur
honum þó verið létt. Í sams konar
atkvæðagreiðslu 2018 fékk Theresa
May hærra hlutfall atkvæða frá
þingmönnum Íhaldsflokksins. Hálfu
ári síðar hrökklaðist hún úr embætti.
Boris fer seint í sögubækurnar
sem einn af hinum stóru. Winston
Churchill og Margaret Thatcher
eiga þar vísan stað en Borisar
verður líkast til helst minnst fyrir
að verða fyrsti forsætisráðherrann
sem er sektaður fyrir partíhald
og fyllirí, og það á tímum þegar
ríkisstjórn hans skipaði þegnum
ríkisins að halda sig heima og virða
samkomutakmarkanir.
Þá eru heldur betur að renna tvær
grímur á landsmenn yfir Brexit. Í
ljós hefur komið að ekki stendur
steinn yfir steini í málf lutningi
Borisar og annarra lýðskrumara
sem börðust fyrir útgöngu Bretlands
úr ESB.
Útópían sem lofað var finnst ekki.
Útgangan hefur ekki aðeins veikt
Bretland heldur einnig alla Evrópu
og ESB. Sundurlyndi lýðræðisþjóða
er ávísun á uppgang og uppivöðslu
l ýð sk r u m a r a o g he r sk á r r a
einræðisherra eins og nýleg dæmi
sýna.
Vafasamt er að Pútín hefði treyst
Endalokin nálgast óðfluga hjá Boris Johnson
sér til að ráðast með hernaði inn
í Úkraínu nema vegna þess að
hann skynjaði bresti í samstöðu
Evrópuríkja.
Ólíklegt er að Boris Johnson
hverfi sjálfviljugur úr embætti
forsætisráðherra þrátt fyrir að
stuðningur Íhaldsmanna við hann
sé þorrinn.
Kann það að hjálpa honum að
enginn frambærilegur eftirmaður
er í sjónmáli.
Síðustu leiðtogar Íhaldsflokksins
h a f a s í ð u r e n s vo ve r i ð
frambærilegir og hér skal því spáð
að Boris fjúki fyrr en seinna. n
20 Helgin 11. júní 2022 LAUGARDAGURFRÉTTABLAÐIÐHELGIN FRÉTTABLAÐIÐ 11. júní 2022 LAUGARDAGUR