Fréttablaðið - 11.06.2022, Síða 70
ÓSKUM SJÓMÖNNUM
og fjölskyldum þeirra
TIL HAMINGJU
með sjómannadaginn
Sigurður Ólafsson vélstjóri starfaði sem sjómaður og hjá Faxaflóahöfnum í
mörg ár. Hann verður 71 árs á sjómannadaginn. FRÉTTABLAÐIÐ/ANTON
Pabbi Sigurðar Ólafssonar, Ólafur Sigurðsson, var yfirvélstjóri á M/S Kötlu. Sigurður fór fimm ára í fyrstu ferðina.
Dísarfell var eitt af skipum Sambandsins.
Siglufjörður, Leníngrad, Jan
Mayen og þorskastríðið,
skipa stóran sess í lífi Sig-
urðar Ólafssonar vélstjóra,
sem hefur verið viðloðandi
sjómennsku stóran hluta
ævi sinnar.
starri@frettabladid.is
Einn þeirra fjölmörgu Íslendinga
sem hafa varið stærstum hluta
starfsævinnar á sjó eða við störf
sem tengjast sjávarútvegi með
einhverjum hætti, er Sigurður
Ólafsson vélstjóri, sem bæði
starfaði sem sjómaður og hjá
Faxaflóahöfnum í mörg ár.
Sigurður fæddist 12. júní 1951
og verður því 71 árs gamall á sjó-
mannadaginn á morgun. Hann
hefur dundað sér við það undan-
farin ár að skrifa æviminningar
sínar á blað og var svo indæll að
leyfa lesendum Fréttablaðsins að
lesa nokkur minningabrot frá fyrri
tíð.
Byrjaði ungur á sjó
„Það má segja að sjómennskan
hafi byrjað þegar ég var fimm ára
gamall á fraktskipinu M/S Kötlu.
Pabbi minn, Ólafur Sigurðsson,
var yfirvélstjóri á Kötlunni og tók
mig með í siglingar yfir sumar-
tímann. Yfirleitt var þetta einn
túr en hann var oft langur. Ég fór
víða með honum, t.d. til Álaborgar
til að sækja Portlands-sement, til
Rússlands að sækja timbur, bæði
Komið víða við
á löngum starfsferli
Sigurður starfaði sem smyrjari á Haf-
erninum árin 1967-1969 á Siglufirði.
til Arkangelsk og Leníngrad, og
margra annarra hafna í Eystrasalt-
inu. Alltaf var komið við í Kaup-
mannahöfn að sækja kost og olíu,
svo var siglt áfram til Leníngrad.“
Hann lenti í ýmsum ævintýrum
í þessum ferðum. „Eitt skiptið
heimsóttum við súkkulaðiverk-
smiðju í Leníngrad og þegar það
uppgötvaðist að ég átti afmæli var
hlaðið á mig heilum ósköpum af
súkkulaði þannig að ég átti birgðir
allt sumarið. Eitt skiptið þegar
við vorum á sjómannaheimilinu í
Leníngrad var kallað á okkur feðga
og pabbi spurður hvort þeir mættu
taka mynd af stráknum til að eiga
ef það kæmi eitthvað fyrir mig.
Hann sagði það væri nú í lagi en
honum var tjáð að þessar myndir
yrðu sendar til Moskvu og við
fengjum ekki eintak af þeim. Þann-
ig komst ég í skjalasafn hinnar
frægu leyniþjónustu KGB. Þessar
sumarferðir stóðu yfir þangað til
foreldrar mínir sendu mig í sveit í
Eyjafjörðinn.“
Níu mánaða ævintýri
„Þegar leið á haustið 1967 kallaði
pabbi í mig norður á Siglufjörð og
réð mig sem smyrjara á Haförninn
frá Siglufirði. Þar var ég þangað til
ég hóf nám í Vélskóla Íslands árið
1969. Þetta voru 2-3 túrar á viku og
við sigldum m.a. til Jan Mayen.
Þegar síldarævintýrinu lauk
og skipinu var lagt í einhverja
mánuði á Siglufirði var áhöfn-
inni ekki sagt upp. Ákveðið var
að leigja skipið til A.P. Moller í
f lutninga á eldsneyti á milli borga
í Evrópu en einnig f luttum við
jurtaolíu til Alsír. Þetta ævintýri
tók níu mánuði og þá kom skipið
heim til Reykjavíkur.
Seinna meir var skipið selt til
Ítalíu og fórum við feðgar þangað
en þá var pabbi hættur til sjós enda
orðinn 70 ára. Þessi skiparekstur
Síldarverksmiðju ríkisins er
rifjaður upp á Síldarminjasafninu
á Siglufirði en þar er líkan af Haf-
erninum og mappa með myndum
af áhöfninni á skipinu.“
Þorskastríðið eftirminnilegt
„Ég var í Vélskólanum haustið 1969
fram til loka febrúar 1970. Þá lauk
ég undirbúningsstigi og við feðgar
fórum niður í Héðin til koma mér á
samning í vélvirkjun. Ég var settur
á suðuverkstæðið til Togga og lærði
að sjóða, bæði logsuðu og rafsuðu.
Þar var ég fram á haust þangað til
ég fór í skólann aftur og tók fyrsta
stigið haustið 1970 en ég kláraði
Vélskólann 1973.
Ég starfaði hjá Héðni á milli
anna eða sem vélstjóri á varðskip-
um í 50 mílna þorskastríðinu, sem
var mjög viðburðaríkur tími. Þar
lenti ég svo sannarlega í ýmsum
atvikum. Eftir skólann fór ég að
klára smiðjuna svo ég gæti fengið
full vélstjóraréttindi.“ n
12 kynningarblað 11. júní 2022 LAUGARDAGURSJÓMANNADAGURINN