Fréttablaðið - 11.06.2022, Side 76

Fréttablaðið - 11.06.2022, Side 76
 Þegar við fengum linkinn með myndum sem voru teknar í veislunni var mikið hlegið og dýrmætar myndir bættust við í albúmið. Sjöfn Þórðardóttir sjofn @frettabladid.is Matarbloggarinn Berglind Hreiðars hélt á dögunum glæsilega útskriftarveislu fyrir elstu dóttur sína, Hörpu Karin Hermannsdóttur. Berglind heldur úti síðunni Gotterí og gersemar og fór að venju létt með að hrista fram úr erminni undurfallega útskriftar- veislu. Kræsingarnar og umgjörð veislunnar endurspegla listræna hæfileika Berglindar, sem er ein- staklega lagin við að töfra fram glæsilegar þemaveislur. Harpa Karin var að útskrifast úr Menntaskólanum við Sund. „Hún er raungreinamegin í lífinu og fær þá gáfu klárlega frá pabba sínum, en ekki mér,“ segir Berglind og hlær. Hún bætir við að dóttir sín sé bæði samviskusöm og dugleg og hefji nám í rekstrarverkfræði við Háskólann í Reykjavík í haust. „Hún er dugleg að vinna með nám- inu svo ekki gefst mikill tími fyrir áhugamál en hún elskar að ferðast, ganga á fjöll og fara í ræktina.“ Dagurinn algjörlega hennar Mæðgurnar nutu þess að undirbúa veisluna saman. „Það er merkisáfangi að klára stúdentspróf og að mínu mati mikilvægt að fagna og hafa gaman þótt auðvitað sé töluverð vinna að skipuleggja og halda svona veislu. Dagurinn var algjörlega hennar og snerist undirbúningurinn um það að fara í hárlitun, neglur, finna kjól, panta förðun, myndatöku og allt þetta helsta fyrir hana sjálfa. Við hin mættum síðan afgangi og redd- uðum fatnaði og öðru slíku korter í veislu,“ segir Berglind og hlær. Þegar kom að því að velja þemað var það kjóllinn sem réði för. „Við biðum þess að Harpa fyndi rétta kjólinn, sem gerðist nú ekki fyrr en viku fyrir útskrift. Kjóllinn var silfurlitaður og því ákváðum við að hafa silfurþema. Við mæðgur fórum því í Balún til að sjá hvað væri til í stíl við það og úr varð silfur, svart, hvítt og gyllt þema.“ Aðspurð segir Berglind að litirnir séu ekki beinlínis uppáhaldslitir dótturinnar. „Hún á það alveg til að vera litaglöð líka og ég hafði nú upphaf- lega séð fyrir mér alls kyns vorliti í blöðrum og blómum, en svona þróaðist þetta og útkoman var klassísk og fögur.“ Veitingar við allra hæfi „Við völdum fjölbreyttar veitingar svo allir fyndu eitthvað við hæfi, að mestu girnilega smárétti frá Nomy veisluþjónustu sem voru Klassísk og undurfögur stúdentsveisla Kræsingarnar heilluðu jafnt augu, munn og maga. Veislugestir fengu notið dýrindis sælkerarétta. Fjölskyldan var alsæl með daginn sem heppnaðist vel og ljúffengar veitingarnar slógu svo sannarlega í gegn. Veisluborðið var hið glæsilegasta og fangaði augað, þar sem matur og munúð voru í forgrunni. MYNDIR/AÐSENDAR Berglind töfraði fram sæta bita á sinn fagra hátt. Myndabás var settur upp í bílskúrnum og vakti mikla kátínu hjá stúdínunni og gestum hennar. Útkoman var óborganlegar myndir og ljúfar minningar. Stúdentstertan var sannkallað lista- verk og á toppi tertunnar trónaði kökuskraut með nafni stúdínunnar. allir upp á tíu, hver öðrum betri og gestirnir höfðu orð á því hversu góður maturinn væri. Harpa elskar síðan að fara á Mandí svo við pönt- uðum líka veislubakka þaðan. Ég sá síðan um að gera eftirréttaturn fyrir utan makkarónurnar sem komu frá Gulla Arnari, enda er hann meistari á því sviði. Ég útbjó köku á toppinn með skilti frá Hlutprent og síðan voru bollakökur, kökupinnar, döðlu- gott, súkkulaðimús, kransaköku- bitar og makkarónur á hinum hæðunum. Elín Heiða, systir Hörpu, sá síðan um að gera borð fyrir krakkana með mínípitsum, ávöxtum, snakki, hrískökum og fleiru sniðugu því það má ekki gleyma þeim í svona veislum.“ Blöðrur, blóm og fánar „Stelpurnar hjá Balún aðstoðuðu okkur við að velja blöðruboga og blöðrur, diska, servíettur, fána í loftið og fleira sem passaði saman og kom ótrúlega vel út. Mig langaði að hafa mikið af blómum og keypti krúttlega vasa í Fjarðarkaupum sem fylltir voru dýrindis blómum frá Garðheimum. Þar völdum við sitt lítið af hverju, bóndarósir og alls konar hvítt og grænt.“ Mæðgunum fannst líka mikil- vægt að varðveita minningar frá deginum með því að taka myndir en það sem sló í gegn var mynda- básinn. „Við settum upp myndabás frá Instamyndum í bílskúrnum, sem vakti mikla lukku, og fengum gesti til að fara þangað að leika sér og taka myndir. Þegar við fengum linkinn sendan af þeim myndum var mikið hlegið og dýrmætar myndir bættust í albúmið.“ n 6 kynningarblað A L LT 11. júní 2022 LAUGARDAGUR
Side 1
Side 2
Side 3
Side 4
Side 5
Side 6
Side 7
Side 8
Side 9
Side 10
Side 11
Side 12
Side 13
Side 14
Side 15
Side 16
Side 17
Side 18
Side 19
Side 20
Side 21
Side 22
Side 23
Side 24
Side 25
Side 26
Side 27
Side 28
Side 29
Side 30
Side 31
Side 32
Side 33
Side 34
Side 35
Side 36
Side 37
Side 38
Side 39
Side 40
Side 41
Side 42
Side 43
Side 44
Side 45
Side 46
Side 47
Side 48
Side 49
Side 50
Side 51
Side 52
Side 53
Side 54
Side 55
Side 56
Side 57
Side 58
Side 59
Side 60
Side 61
Side 62
Side 63
Side 64
Side 65
Side 66
Side 67
Side 68
Side 69
Side 70
Side 71
Side 72
Side 73
Side 74
Side 75
Side 76
Side 77
Side 78
Side 79
Side 80
Side 81
Side 82
Side 83
Side 84
Side 85
Side 86
Side 87
Side 88
Side 89
Side 90
Side 91
Side 92
Side 93
Side 94
Side 95
Side 96
Side 97
Side 98
Side 99
Side 100
Side 101
Side 102
Side 103
Side 104

x

Fréttablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Fréttablaðið
https://timarit.is/publication/108

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.