Bændablaðið - 25.05.2022, Side 39
Bændablaðið | Miðvikudagur 25. maí 2022 39
LOFTSLAGSVÆNN LANDBÚNAÐUR
Auglýst er eftir nýjum þátttakendum í nautgriparækt
Loftslagsvænn landbúnaður er hluti af aðgerðaáætlun stjórnvalda í
-asúhruðórg nusol rú agard ða re snisinfekrev ðimkraM .mulám sgalstfol
lofttegunda og auka kolefnisbindingu.
Auglýst er eftir mm ára,
hrinda markmiðum í framkvæmd og vera virkir þátttakendur í vegferð
landbúnaðarins að loftslagsvænum lausnum.
Verkefnastjórn áskilur sér rétt til að velja þátttakendur, verði umsækjendur
haldskröfur sbr. 4. gr. reglugerðar um stuðning við nautgriparækt.
Þátttakendur fá heildstæða ráðgjöf, fræðslu og aðhald frá RML, Land-
græðslunni og Skógræktinni. Auk þessa þátttökustyrk, styrk til efnagrein-
inga og þegar líður á verkefnið aðgerða- og árangurstengdar greiðslur.
Verkefnið hefst í ágúst/sept 2022 og er umsóknarfrestur til 20. júní n.k.
Umsóknareyðublað má nálgast á heimasíðu RML, www.rml.is.
Nánari upplýsingar veitir Berglind Ósk Alfreðsdóttir verkefnastjóri,
berglind@rml.is og í síma 516-5000.
HECHT jarðvegsþjöppur
Frá 63 kg til 117 kg.
HECHT 59399
Rafmagnsfjórhjólin komin aftur!
SARIS PA 42 flutningskerra
Burðargeta 2.758 kg. Verð 890.þ + vsk.
Helluhraun 4, Hafnarfirði
sími 565 2727 & 892 7502
www.rag.is
LÍF&STARF
Helga Bjarnadóttir í Varmahlíð, en hún hlaut Samfélagsverðlaun Skagafjarðar
fyrir árið 2022. Hér er hún í hópi fjölskyldu sinnar.
Helga Bjarnadóttir í Varmahlíð:
Hlaut Samfélagsverðlaun Skagafjarðar
Helga Bjarnadóttir í Varmahlíð
hlaut Samfélagsverðlaun Skaga
fjarðar fyrir árið 2022, en þau voru
veitt á dögunum í sjöunda sinn.
Samfélagsverðlaunin eru veitt
árlega þeim einstaklingi, fyrirtæki,
stofnun eða félagasamtökum í
Skagafirði sem hafa með störfum
sínum lagt mikið til þess að efla
skagfirskt samfélag. Að þessu sinni
bárust alls 33 tilnefningar og voru 14
aðilar tilnefndir.
„Á langri ævi hefur Helga auðgað
skagfirskt samfélag með margvíslegu
móti þótt það hafi ekki alltaf farið
hátt, enda Helga lítið fyrir að hreykja
sér af verkum sínum,“ segir í umsögn
um Helgu og samfélagsverðlaunin.
Hún á að baki farsælan feril sem
barnakennari og skólastjóri og hafði
einstaklega góð og mótandi áhrif á
nemendur sína. Margir þeirra halda
mikilli tryggð við hana æ síðan.
Hún hefur verið og er enn virk í
starfi kvenfélaganna í Skagafirði, og
sat meðal annars um árabil í stjórn
Kvenfélagssambands Skagafjarðar.
Helga hefur komið að bókaútgáfu
og um árabil hefur hún haft forgöngu
um vinsælt félagsstarf aldraðra
Skagfirðinga að Löngumýri og enn
heldur hún því starfi uppi af miklum
krafti með vinkonum sínum.
„Helga Bjarnadóttir er fulltrúi
þeirrar kynslóðar sem ekki telur
mikla þörf á að láta bera á þeim
óeigingjörnu sjálfboðaliðastörfum
sem raunverulega skipta svo miklu
máli í að skapa það góða samfélag
sem við Skagfirðingar búum í,“
segir á vefsíðu Sveitarfélagsins
Skagafjarðar. /MÞÞ