Bændablaðið - 09.06.2022, Qupperneq 6

Bændablaðið - 09.06.2022, Qupperneq 6
6 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Í upphafi þessa leiðara vil ég koma á framfæri þökkum til Harðar Kristjánssonar, fráfarandi ritstjóra Bændablaðsins til 15 ára, fyrir vel unnin störf. Hörður hefur stýrt ritstjórn blaðsins með miklum sóma og gert okkar blað bænda að eftirsóttu lesefni fyrir alla landsmenn. Einnig vil ég bjóða velkomna í stól ritstjóra Guðrúnu Huldu Pálsdóttur, sem tekið hefur við sem ritstjóri og er þetta fyrsta blað á hennar ábyrgð. Fæðuöryggi Talsverð vinna hefur farið fram á skrifstofu Bændasamtakanna í að fylgjast með þróun markaða með aðföng til bænda og einnig þær aðgerðir sem nágrannalönd okkar eru að gera til að tryggja fæðuöryggi sinna þjóða í samningum við bændur. Nú hefur ráðherra matvæla skipað svokallaðan spretthóp til að móta tillögur til ráðherra um aðgerðir vegna þróunar á mörkuðum. Ég vil fagna því að ráðherra skipi þennan hóp en hann fær ekki marga daga til að skoða þessi mál, sem eru ansi umfangsmikil. Vinnan sem fram hefur farið af okkar hálfu nýtist vonandi inn í þessa umræðu og tekið verði tillit til þeirra atriða sem við höfum haft mestar áhyggjur af. En við sem framleiðendur verðum einnig að leita allra leiða til að hagræða í rekstri í flóknu umhverfi aðfangakerfisins. Þar er af mörgu að taka; olíuhækkanir, umbúðahækkanir, flutningshækkanir, fasteignaskattshækkanir og svo mætti lengi telja, svo ekki sé talað um verðbólgu og vaxtahækkanir, en allt þetta hefur áhrif á afkomu íslenskra bænda. En enn og aftur þá er ábyrgð okkar sem frumframleiðendur mikil. Bændur og búalið Ég tel að bændur séu nokkuð bjartsýnir þrátt fyrir allt og ekki skemmir tíðarfarið, sem hefur verið með eindæmum gott meira og minna um allt land. Þetta kemur upp á móti hækkandi áburðarverði þar sem uppskera virðist stefna í sæmilegar afurðir. En sumarið er nú ekki búið en nauðsynlegt að horfa á það jákvæða í þessari stöðu. Annað verkefni sem við höfum verið að vinna að er í samstarfi við laxeldisbændur sem ætla sér að framleiða lax á landi. En það er hvernig við getum nýtt þeirra afurðir sem falla til við framleiðsluna í hringrásarhagkerfi Íslands. Það er mjög athyglisverð nálgun á þeim vettvangi sem mikilvægt er að við sem bændur komum að til að nýta þau verðmæti sem falla til við þessa framleiðslu. Bændablaðið kemur út 24 sinnum á ári. Því er dreift ókeypis á yfir 400 stöðum á landinu og á öll lögbýli landsins. Lesendur geta einnig gerst áskrifendur að blaðinu og fengið það sent heim í pósti gegn greiðslu burðargjalds. Árgangurinn (24. tölublöð) kostar þá kr. 12.200 með vsk. (innheimt í tvennu lagi). Ársáskrift fyrir eldri borgara og öryrkja kostar 8.000 með vsk. Heimilisfang: Bændablaðið, Bændahöll við Hagatorg, 107 Reykjavík. Sími: 563 0300 – Fax: 562 3058 – Kt: 631294–2279 Bændablaðið er í eigu Bændasamtaka Íslands. − Málgagn bænda og landsbyggðar − SKOÐUN Traust og „chill“ Það hlýtur að heyra til undantekninga að landbúnaðarmiðaður prentmiðill sé sá stærsti meðal fréttamiðla hjá einni þjóð. Lestrartölur sýna, svo ekki verður um villst, að Bændablaðið er leiðandi miðill sem lesinn er um allt land, í reynd sá víðlesnasti á landsbyggðinni og í öðru sæti yfir mest lesnu prentmiðla á landsvísu. Lesturinn hefur aukist verulega innan borgarmarkanna, svo að Vesturbæingar jafnt sem Vestfirðingar virðast skófla efni blaðsins í sig. Varla er hægt að nefna starfsvettvang sinn án þess að lenda í stórskemmtilegum og vel þegnum samræðum um hið mæta Bændablað. Þetta kemur ekki af sjálfu sér. Inntak og ímynd blaðsins byggir á mannauðinum sem að því stendur og Bændablaðið hefur verið svo heppið að hafa sannkallaða hamhleypu í brúnni. Það er mikill sjónarsviptir af Herði okkar Kristjánssyni í starfsmannahópnum. Hann hefur haldið vel utan um okkur sem hér vinnum, verið bæði fyrirmyndarleiðtogi og traustur vinur. En um leið og hann er yfirmáta dagfarsprúður þá gegnir öðru máli við ritstörfin; hann mundaði skarpan penna og tókst gjarnan að varpa einstakri sýn á málefni með slíkum hætti að fáir gátu leikið það eftir. Í viðtali hér í blaðinu segist Hörður hafa lagt mest upp úr því að beita gagnrýninni hugsun á öll viðfangsefni og umfram allt að vera heiðarlegur og segja fólki sannleikann með skrifum sínum og efnistökum. „Ég hef forðast að elta skrif annarra fjölmiðla og upplýsa frekar um áhugaverða hluti sem aðrir leggja sig ekki eftir, eða nenna ekki að sinna. Ég held að þetta sé lykillinn að velgengni Bændablaðsins undanfarin ár. Slíkt gerist þó ekki nema að allt starfsfólkið rói í sömu átt,“ segir Hörður. Það er varla hægt að fylla í fótspor Harðar. Í ræðu minni í kveðjuhófi fráfarandi ritstjóra óskaði ég eftir áskrift að „chillpillunni“ sem hann virðist eiga botnlausan forða af. En við vinnslu á þessu fyrsta blaði mínu sem ritstjóri þá átta ég mig á að „pillan“ er í raun það frábæra fólk sem vinnur hér á blaðinu. Á undanförnum árum hefur Bændablaðið leitt umræður um brýn málefni sem varða okkur öll. Hér má nefna fæðuöryggi í landinu, orkumál, umhverfis- og auðlindamál sem og heilbrigðisógnina sem fylgir sýklalyfjaónæmi. Lengi vel var blaðið nær eitt um að fjalla um þessi viðfangsefni af þekkingu og gagnrýni. En allt eru þetta mál sem hafa á síðustu misserum komist í sviðsljós almennrar fjölmiðlaumræðu og ekki að ósekju. Þetta eru mál málanna. Þau tengjast grunnþáttum lífsins og lífsgæða okkar. Þetta eru málefni sem allir ættu að láta sig varða. Auðmjúk tek ég því við starfi Harðar og mun af heilindum vinna að því að halda áfram á þeirri vegferð sem hann hefur leitt í yfir áratug. Við munum halda áfram að fjalla um grunnstoðir samfélagsins á gagnrýninn hátt, byggja upplýsingar á okkar trausta þekkingarbrunni og leitast eftir því að varpa skýrri og skiljanlegri sýn á fjölbreytt efnistök okkar. Ætlun okkar er að stunda áfram metnaðarfulla upplýsingagjöf sem mark er á takandi og tilgangurinn er ávallt að lesandi Bændablaðsins geti myndað sér upplýsta skoðun að lestri loknum. /ghp Íslenskur landbúnaður grunnstoð fæðuöryggis Gunnar Þorgeirsson formaður Bændasamtaka Íslands gunnar@bondi.is GAMLA MYNDIN Ritstjóri: Guðrún Hulda Pálsdóttir (ábm.) gudrunhulda@bondi.is – Sími: 563 0318 – Blaðamenn: Ástvaldur Lárusson astvaldur@bondi.is – Hulda Finnsdóttir hulda@bondi.is – Margrét Þóra Þórsdóttir mth@bondi.is – Sigrún Pétursdóttir sigrunpeturs@bondi.is – Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is – Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Auglýsingastjóri: Þórdís Una Gunnarsdóttir thordis@bondi.is – Sími: 563 0303 Netfang auglýsinga: augl@bondi.is − Sími smáauglýsinga: 563 0300 – Vefur blaðsins: www.bbl.is − Netfang blaðsins: (fréttir og annað efni) er bbl@bondi.is Frágangur fyrir prentun: Sigrún Pétursdóttir – Prentun: Landsprent ehf. – Upplag: sjá forsíðu – Dreifing: Landsprent og Íslandspóstur. ISSN 1025-5621 Bændaskólinn í Ólafsdal Torfi Bjarnason skólastjóri á tröppunum en Áskell Ingimundarson við húsgaflinn. Myndin er tekin milli 1905 til 1910. Ólafsdalsskólinn var fyrsti bændaskóli á Íslandi og tilgangur með stofnun hans að kenna bændum verklega og bóklega jarðrækt. Torfi Bjarnason, sem síðar var skólastjóri skólans, fór til Skotlands til að læra jarðyrkju fyrstur Íslendinga og hafði hann meðferðis til baka búfræðiþekkingu frá Skotlandi. Skólinn var settur i fyrsta sinn 1. júní 1880 og hófu fimm ungir menn þar nám. Námsárið var frá vori til vors og námstíminn tvö ár. Áhersla í námi var á notkun hestaverkfæra við jarðræktarstörf og heyskap og komu nemendur jafnframt að smíði á verkfærum. Bókleg kennsla var í reikningi, efnafræði, grasa- og jarðræktarfræði, hagfræði og teikningu, húsdýrafræði og eðlisfræði. /VH Kýrnar á Daufá. Mynd / Guðrún Björg Egilsdóttir
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.