Bændablaðið - 09.06.2022, Side 8

Bændablaðið - 09.06.2022, Side 8
8 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 FRÉTTIR Samstarf Bændasamtaka Íslands og Matís: Stofnræktun á útsæðiskartöflum Bændasamtök Íslands og Matís hafa gert með sér samkomulag um vefjaræktun á stofnútsæði kartaflna. Í samkomulaginu felst að Matís framkvæmi verkþætti sem snúa að vefjaræktun kartaflna, meðal annars að taka vaxtarsprota, vefjaræktun, spírun þeirra og veiruprófun. Axel Snæland, formaður deildar garðyrkjubænda innan Bændasamtaka Íslands, segir að samkomulagið feli í sér að Matís taki að sér að sjá um vefjaræktun á stofnútsæðiskartöflu. „Deild garðyrkjubænda innan Bændasamtakanna stóð fyrir gerð samningsins við Matís, sem felur í sér vefjaræktunarhluta stofnræktunar útsæðiskartaflna. Verkefni Matís felur í sér að skila af sér vefjaræktuðum útsæðiskartöflum, Premier, Gullauga, Helga og Rauðar íslenskar, sem eru lausar við veirur og sjúkdóma, eins og til dæmis kláða og hringrot. Auk þess sem kartöflurnar eru valdar með tilliti til útlits.“ Tilgangurinn með vefjaræktun á kartöflum er að tryggja að við eigum áfram hér á landi sjúkdóms- fríar kartöflur. „Því miður er það svo að víða um heim eru sjúkdómar í kartöflum landlægir og margir þeirra sjúkdóma geta borist hingað til lands og valdi miklum skaða ef við gætum þess ekki að hafa vaðið fyrir neðan okkur,“ segir Axel. Yrki í almennri ræktun Guðrún Birna Brynjarsdóttir, sérfræðingur hjá Bændasamtökum Íslands, segir að fjögur yrkin sem um ræðir séu þau yrki sem hafa verið í stofnútsæðisræktun og almennri ræktun hér á landi. „Stofnútsæðisræktendur hér á landi eru þrír, Birgir Hauksson í Sigluvík og Einar Grétar Jóhannsson, Eyrarlandi við Eyjafjörð og Bjarni Hákonarson í Dilksnesi við Hornafjörð. Vinna við verkefnið er hafið þrátt fyrir að seinkanir hafi orðið, til dæmis á afhendingu ræktunarklefa.“ Stofnútsæðisbændur velja gæðakartöflu Í heild tekur stofnræktunarferlið þrjú ár og fer þannig fram að stofnútsæðisbændurnir velja bestu kartöflurnar úr sinni stofnrækt og afhenda sérfræðingum Matís, sem síðan sjá um að taka vefjasýni til áframræktunar í húsnæði Matís. „Næsta vor taka fyrrnefndir stofnræktunarbændur við um það bil 2.300 vefjaræktuðum hnýðum frá Matís til framhaldsræktunar og er miðað við að hnýðin séu að meðaltali 15 grömm. Það er síðan í þeirra höndum að fjölga þeim næstu árin og reiknað er með að þær verði í boði fyrr almenna kartöflubændur árið 2026,“ segir Axel. Vefjaræktun á æti Sæmundur Sveinsson, sérfræðingur hjá Matís, sér um verkefnið fyrir hönd Matís. „Eftir að kartöflurnar, sem vonandi eru smitfríar, komu í mínar hendur, lét ég þær spíra og tók svo spírurnar og sótthreinsaði þær og drap allar örverur sem voru utan á þeim. Því næst voru spírurnar skornar í nokkra bita með brumi og bitarnir settir á æti í glerflöskum sem inniheldur plöntuvaxtarhormón eins og auxin, giberalín og kínetín. Á þessu skeiði eru plöntuvísarnir aldir í glerskáp með lýsingu og þannig er verkefnið statt í dag. Næsta skref verður síðan að skipta plöntunum upp og athuga hvort þær séu ekki örugglega lausar við veirusmit og fjölga þeim í þann fjölda sem samningurinn gerir ráð fyrir. Ég skila svo af mér litlum plöntum í næringarhlaupi í áframræktun til stofnkartöfluræktenda til gróðurhúsaræktunar í mold næsta vor ef allt gengur eftir,“ segir Sæmundur. / VH Frá undirskrift samningsins um stofnræktun á útsæðiskartöflum. Guðrún Birna Brynjarsdóttir, sérfræðingur hjá Bændasamtökum Íslands, Axel Sæland, formaður deildar garðyrkjubænda hjá Bændasamtökum Íslands, Oddur M. Gunnarsson, forstjóri Matís og Sæmundur Sveinsson, sérfræðingur hjá Matís. Mynd / Ísey Dísa Hávarsdóttir. Vefjaræktunarklefi Matís. Mynd / Sæmundur Sveinsson. Spírur á æti. Mynd / Sæmundur Sveinsson. Geislar Gautavík: Iðnaðarhampur verðlaunaður Ábúendur í Gautavík við Berufjörð í Múlaþingi hljóta viðurkenningu Verðlaunasjóðs iðnaðarins að þessu sinni fyrir tilraunaræktun á iðnaðarhampi. Verðlaunin verða afhent 15. júní næstkomandi. Hjónin Pálmi Einarsson og Oddný Anna Björnsdóttir, bændur í Gautavík í Berufirði, hófu ræktun á iðnaðarhampi fyrir þremur árum og hafa unnið af krafti síðan þá að ræktuninni og kynningu á henni. Auk þess sem þau hafa unnið ýmiss konar vörur úr hampi og selja nú hampte í öllum helstu matvöruverslunum landsins. Tilgangurinn með ræktuninni, sem er bæði utan- og innandyra, er fyrst og fremst að koma á vitundarvakningu um notagildi hamps og möguleikum hans til að stórauka sjálfbærni á fjölmörgum sviðum. Annars vegar í gegnum ræktunina sjálfa og hins vegar með því að gera tilraunir með að framleiða ólíkar vörur úr honum, eins og trefjaplötur sem efnivið í vörur sem þau framleiða, steypu, pappír, smyrsl, te og krydd. Í fyrrasumar sóttu hátt í þúsund manns þau heim til að fá fræðslu um hamp í gegnum leiðsögn þeirra um ræktunarsvæðin og fræðslusetur um iðnaðarhamp og samrækt. Oddný Anna segir um verðlaunin að þau séu mikil viðurkenning á þeirra starfi sem og allra þeirra sem hafa barist fyrir viðurkenningu hampsins í samfélaginu á undan- förnum árum. „Áhrifin eru þau að svokölluð hampbylting hefur orðið í samfélag- inu þar sem fólk keppist við að hampa hampi og hefur komið auga á þau fjölmörgu tækifæri sem ræktun og nýting hans getur haft fyrir íslenskt samfélag. Það er því sérstaklega ánægjulegt að verðlaunin komi frá sjálfum iðnaðinum sem með þeim staðfesti að þau séu sannarlega til staðar. Stærstu skrefin voru stigin þegar reglugerð var breytt vorið 2020 og svo lögum 2021, sem varð til þess að hampur var ræktaður á um 150 hekturum sumarið 2021 hringinn í kringum landið og fjöldi tilraunaverkefna fór af stað. Útlit er fyrir áframhaldandi aukningu í ræktun og úrvinnslu vara úr hampi í ár.“ /VH Pálmi Einarsson með hluta af hampuppskeru Geisla Gautavík. Mynd / Aðsend REKI EHF ER STOLTUR UMBOÐSAÐILI DONALDSON Á ÍSLANDI. EIGUM MIKIÐ ÚRVAL AF SÍUM Á LAGER. Skemmuvegur 46 Sími: 562 2950 www.reki.is 200 KópavogurReki ehf Netfang: elfar@reki.is, kris tinn@reki.is, tryggvi@reki.is Spretthópur skipaður til að bregðast við afkomuvanda bænda Síðastliðinn föstudag var tilkynnt um það í matvælaráðuneytinu að Svandís Svavarsdóttir matvælaráðherra hefði skipað „spretthóp“ til að bregðast við afkomuvanda bænda. Hópurinn á að skila tillögum til að bregðast við slæmu ástandi varðandi síhækkandi verðlag á aðföngum til íslenskra bænda sem geti haft þær afleiðingar að matvælaframleiðsla dragist saman. Hópurinn á að skila af sér tillögum 13. júní og verður niðurstaða vinn- unnar kynnt fyrir ríkisstjórn 14. júní. „Verð á helstu aðföngum hefur hækkað gríðarlega í kjölfar innrásar Rússa í Úkraínu og litlar líkur eru á að þær hækkanir gangi til baka á næstu mánuðum eða jafnvel misserum. Þessi þróun mun, að öllu óbreyttu, kippa stoðum undan rekstri bænda, m.a. flestra sauðfjár- og nautgripabúa. Þannig kunni framboð á innlendri vöru að dragast verulega saman næstu misseri með tilheyrandi áhrifum á fæðuöryggi,“ segir í tilkynningu ráðuneytisins. Greina valkosti í stöðunni Í tilkynningunni segir að það liggi fyrir að áhrif innrásarinnar í Úkraínu verði langvinn og því ljóst að taka verði stöðuna alvarlega. Formaður hópsins verður Steingrímur J. Sigfússon, fyrrverandi ráðherra, en auk hans sitja í hópnum Vigdís Häsler, framkvæmdastjóri Bændasamtaka Íslands, og Saga Guðmundsdóttir, sérfræðingur í fjár mála- og efna- hags ráðuneytinu. Matvæla ráðu neytið verður hópnum til aðstoðar. Hóp urinn skal greina ein- staka valkosti í stöðunni. Huga þarf sér staklega að fæðu öryggi, verðlagi og hagsmunum neytenda og bænda í þessu samhengi. „Fram tíð mat- v æ l a f r a m - leiðslu á Íslandi er björt, þrátt fyrir að nú þurfum við að yfirstíga tímabundnar áskoranir sem leiða af stríðsrekstri Rússa í Úkraínu“, er haft eftir Svandísi af þessu tilefni. /smh Vigdís Häsler, fram kvæmda stjóri Bænda samtaka Íslands, situr í spretthópnum.

x

Bændablaðið

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.