Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 10

Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 10
10 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 FRÉTTIR Iðnaðarhampur: Samdráttur í sölu á fræi Samkvæmt lauslegri könnun Bændablaðsins er búið að flytja inn rúm tvö tonn af fræi iðnaðar- hamps það sem af er þessu ári. Auk þess sem eitthvað er enn til af fræjum frá því á síðasta ári. Langmest er flutt inn af yrkinu Finola. Stærri innflytjendur segja söluna minni en á síðasta ári og vísa til þess að mesta nýjabrumið við ræktunina sé liðið og að samdrátturinn komi ekki á óvart. Sigurður Hólmar Jóhannesson, hjá Hemp Living, segir að hann hafi átt 250 kíló á lager frá í fyrra en að það hafi selst upp í vor. Sigurður segir að samkvæmt upplýsingum frá Mast hafi ellefu fyrirtæki og nokkrir einstaklingar fengið leyfi til að flytja inn fræ af iðnaðarhampi á þessu ári. Landstólpi flutti inn 700 kíló Rúnar Skarphéðinsson sölumaður segir að Landstólpi hafi flutt inn 700 kíló af hampfræi í vor miðað við 1,2 tonn á síðasta ári og fræin séu svo gott sem uppseld hjá þeim „Satt best að segja áttum við von á samdrætti í ár frá síðasta ári en þá var nýjungagirnin mikil og margir keyptu tvö og þrjú kíló af fræi bara til að prófa ræktunina og eiga enn þá fræ.“ Yrkið Finola, sem er finnskt, hefur reynst vel hjá okkur og við fluttum inn 350 kíló af því. Finola er fremur fljótsprottið og það tekur 100 til 120 daga að ná fullum þroska. Það er frekar lágvaxið, eða um 1,6 til 1,8 metrar að hæð, og þolir því haustveður nokkuð vel. Að sögn Rúnars er Finola með gott CBD innihald og hentar vel til teframleiðslu, en þar sem yrkið er lágvaxið hentar það yrki síður til trefja- eða hálmframleiðslu. „Svo erum við að prófa yrki sem kallast Férimon og við fluttum líka inn 350 kíló af því. Férimon er hávaxnara en Finola og hentar því betur til trefja- og hálmframleiðslu.“ Eitt og hálft tonn á lager Fóðurblanda flutti inn 1,5 tonn af Finola-fræjum í vor og er það sama magn og á síðasta ári. Halldór Gunnarsson innkaupastjóri segir að megnið af fræjunum sem flutt voru inn á þessu ári sé enn óseld. „Viðtökurnar í fyrra voru mjög góðar og ræktunin gekk vel og satt best að segja er ég hissa á því hversu dræm salan hefur verið fram til þessa í ár.“ Sala undir væntingum Lífland vildi ekki gefa upp hversu mikið af fræi fyrirtækið hefði flutt inn á þessu ári. Jóhannes Baldvin Jónsson vöruþróunarstjóri sagði að magnið hafi verið „slatti“ af Finola og að búið væri að selja tæp 140 kíló og að það væri minna en væntingar hafi staðið til miðað við að 200 kíló hafi selst á síðasta ári. /VH Iðnaðarhampsyrkið Finola er langvinsælasta yrkið í ræktun hér á landi. Mynd / Fóðurblandan Landbúnaðartæki, björgunartæki og búnaður Svansson ehf Sími : 697-4900 ● sala@svansson.is ● www.svansson.is ZipWake er bylting í stöðugleikabúnaði fyrir báta. Búnaðurinn sjálfvirkur og virkar 5 til 10 sinnum hraðar en hefðbundnir flapsar og er með innbyggðum gíró og GPS. Kjarnafæði Norðlenska: Lambakjötsvörur upprunamerktar Kjarnafæði Norðlenska hefur nú, fyrst kjötafurðastöðva, markaðssett lambakjötsvörur með upprunamerki markaðs- stofunnar Icelandic Lamb, „Íslenskt lambakjöt“. Fram til þessa hafa einungis veitingastaðir og sérverslanir skartað slíku merki, en hefð hefur verið að Icelandic Lamb heiðri árlega þá staði sem þykja hafa sýnt íslenskum lambakjötsafurðum tilhlýðilegan sóma sem hráefni á sínum matseðlum. Merkja hluta framleiðslunnar til að byrja með Kjarnafæði Norðlenska samstæðan varð til við sameiningu Kjarnafæði, Norðlenska og SAH afurða sumarið 2021. Andrés Vilhjálmsson, markaðs- stjóri Kjarnafæði Norðlenska, segir vel hafi tekist að kynna upprunamerkið, bæði fyrir innlendum viðskiptavinum sem og erlendum ferðamönnum og öðrum. „Við teljum afar mikilvægt að upplýsa viðskiptavini eins vel og okkur er kostur um uppruna og eðli þeirrar vöru sem við setjum á markað. Allt það lambakjöt sem við seljum er íslenskt, framleitt af íslenskum bændum, afurð í heimsklassa, þannig hefur það verið og þannig verður það áfram. Varðandi notkun uppruna- merkisins þá á það í raun heima á öllum lambakjötsvörum félagsins en við byrjum rólega, meðal annars vegna umbúðamála, og merkjum til að byrja með hluta framleiðslunnar en munum svo í nánustu framtíð merkja fleiri og fleiri vörur með þessu upprunamerki.“ Íslenska verndaða afurðaheitið lítið þekkt Í byrjun árs 2018 skráði Matvæla- stofnun afurðaheitið Íslenskt lamba kjöt, fyrst íslenskra afurða, sem verndað afurðaheiti á Íslandi – með vísan til uppruna. Tveimur árum síðar fékk íslenska lopapeysan sama sess. Umsókn um þekkt upprunamerki í umsóknarferli Hafliði Halldórsson, fram- kvæmdastjóri Icelandic Lamb, segir að upprunamerkið „Íslenskt lambakjöt“ sé búið að sanna sig á fyrstu fimm árum sínum. „Það leitar í reynslu sannreyndra erlenda fordæma þar sem upprunamerki standa fyrir tryggan uppruna afurða og úrvinnslu þeirra frumframleiðendum og neytendum til heilla.“ Hann segir að kjötafurðastöðvar, sem sannarlega selji upprunamerkt íslenskt lambakjöt, geti einnig notað merkið „Verndað afurðaheiti á Íslandi“ á sínar vörur. „Það merki er hins vegar lítið þekkt af almenningi og við höfum ekki notað það mikið. Heldur horfum til þess að þessi áfangi gefur okkur heimild til umsóknar á evrópskri, afar vel þekktri upprunamerkingu, „Protected Designation Of Origin“ (PDO). Umsókn okkar um PDO er í afgreiðsluferli.“ /smh Upprunamerktar lambalærissneiðar. Kynbótasýningar hrossa: Heimsmet slegin Viðar frá Skör hlaut 9,12 fyrir hæfileika og 8,89 fyrir sköpulag. Knapi er Helga Una Björnsdóttir. Myndir / Nicki Pfau Kynbótasýningar hrossa eru hafnar víða um heim en hér á landi verða haldnar ellefu vorsýningar fyrir Landsmót. Fjórar sýningar fara fram nú í vikunni og í næstu viku. Mikið hefur komið fram af nýjum og efnilegum hrossum og er flokkur fjögurra vetra stóðhesta gríðarlega sterkur. Tvö heimsmet hafa verið slegin og tvö hross hafa hlotið yfir 9,00 fyrir hæfileika og nokkur eru því nærri. Helga Una Björnsdóttir og Viðar frá Skör áttu stjörnusýningu á þriðjudaginn 7. júní á Hellu. Þau slógu fjögurra ára gamalt heimsmet Þráins frá Flagbjarnarholti þegar Viðar hlaut 9,04 í aðaleinkunn. Fyrir sköpulag hlaut hann 8,89 og fyrir hæfileika 9,12. Viðar er átta vetra undan Hrannari frá Flugumýri II og Vár frá Auðsholtshjáleigu en ræktandi Viðars er Karl Áki Sigurðsson og eigendur eru þau Gitte og Flemming Fast. Viðar er nú hæst dæmda íslenska hrossið en yfirlit er á föstudaginn og á hann enn möguleika á að hækka einkunn sína. Fyrr í vor mældist stóðhesturinn Gandi frá Rauðalæk 157 cm á herðakamb og er það hæsta kynbótahross sem hefur komið fram á sýningu. Hæst dæmda hryssa ársins er Álfamær frá Prestsbæ. Álfamær hlaut 9,02 fyrir hæfileika þar af 10 fyrir skeið. Hún á ekki langt að sækja skeiðhæfileikana en báðir foreldrar hennar hafa hlotið 10 fyrir skeið en hún er undan Spuna frá Vesturkoti og Þóru frá Prestsbæ. Álfamær hlaut fyrir sköpulag 8,59 og í aðaleinkunn 8,87. Árni Björn Pálsson sýndi hryssuna. Tían sem hún hlaut fyrir skeið var fyrsta tía ársins sem gefin var fyrir eiginleika í hæfileikum en þrjú hross hafa hlotið 10 fyrir eiginleika í sköpulagi, þrjú fyrir prúðleika; Grettir frá Ásbrú, Sindri frá Lækjamóti og Blesi frá Heysholti og ein fyrir höfuð, Valdís frá Auðsholtshjáleigu. /HF Álfamær frá Prestsbæ hlaut einkunnina 10 fyrir skeið. Knapi er Árni Björn Pálsson.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.