Bændablaðið - 09.06.2022, Qupperneq 20

Bændablaðið - 09.06.2022, Qupperneq 20
20 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 FRÉTTASKÝRING Ógnarástand er á erlendum mörk­ uðum með kornvörur og hráefni til fóðurgerðar. Verðhækkanir höfðu orðið nokkrar í lok síðasta árs – meðal annars samhliða hækkunum á jarðgasi og öðru jarðefnaeldsneyti – og eftir að stríðsátök brutust út í Úkraínu í lok febrúar hafa hækkanir nar stigmagnast. Mat vælaverð hefur sömuleiðis hækkað mikið í mörgum löndum sem ógnar lífsafkomu hinna fátæku þjóða – þeirra sem treysta mjög á innflutning á matvælum – og fátæku fólki hinna velmegandi þjóða. Framboð á hráefni til fóðurframleiðslu virðist að vissu leyti vera ótryggt og einhverjir hnökrar hafa komið upp hjá íslenskum fóðursölum við afgreiðslu á þeirra pöntunum. Að sögn Hólmgeirs Karlssonar, framkvæmdastjóri Bústólpa, hefur komið upp sú staða hjá þeim nú þegar að ekki hafi fengist það hráefni sem ætlunin var að kaupa. Hann segir að bygg hafi til dæmis alveg verið ófáanlegt um tíma en það hafi verið hægt að leysa með breytingum á fóðuruppskriftum. Meira hafi hlutfallslega verið notað af hveiti til að spara byggið, sem var til á lager hjá þeim. Hann segir að þetta sé mögulegt upp að vissu marki, en hefur aukinn kostnað í för með sér þar sem hveiti er að jafnaði dýrara en bygg. Óvissa með fóðurframboð næstu mánuði Hólmgeir segir að fóðurfram­ leiðendur hafi enga tryggingu fyrir að fá næg hráefni til fóður­ framleiðslunnar út þetta ár. Margir óvissuþættir spili þar inn í, til dæmis hvað varðar þær birgðir af korni sem eru í Úkraínu núna. Eins hvort eitthvað verði opnað á viðskipti með nýja uppskeru í haust frá Úkraínu og Rússlandi. Ef það gerist ekki sé ljóst að mikið vanti upp á það magn sem Evrópa þarf af korni. Söguleg hækkun áburðarverðs komst í hámæli í byrjun árs þegar íslenskir bændur þurftu að takast á við allt að 120 prósenta hækkun og nú virðist sem verðhækkun á tilteknu fóðurhráefni sé farið að nálgast 50 prósent í einhverjum tilvikum frá því í haust. Mestar eru hækkanirnar á einstöku hráefni eins og byggi, hveiti, sojamjöli og maís, en algengustu og mest seldu kjarnfóðurblöndurnar hafa hækkað heldur minna. Snefilefni hafa í einhverjum tilvikum hækkað um 70 prósent í verði. Styrking íslensku krónunnar á þessu ári hefur hins vegar hægt aðeins á verðhækkunum gagnvart íslenskum bændum. Svigrúm er lítið til að hagræða hlutföllum og innihaldi í fóður­ blöndum, þar sem verið er að sækjast eftir ákveðnum eiginleikum fyrir hvert og eitt hráefni. Allar greinarnar háðar innfluttu fóðri Helstu hráefnin sem notuð eru almennt í fóðurframleiðslu er bygg, hveiti, sojamjöl og maís ásamt innlendu fiskimjöli. Önnur lykilhráefni eru sykurrófuhrat, repjumjöl, melassi og ýmis snefilefni og vítamín. Fóðursalar og ­framleiðendur selja kjarn fóður blöndur fyrir mjólkur bændur, nautgripabændur, sauðfjárbændur, eggjaframleiðendur og alifuglabændur. Svínabændum er seld hrávara sem þeir blanda á staðnum sem fóður í svínaeldinu. Bygg, hveiti og sojamjöl er uppistaðan í þessu fóðri. Mjólkur­ og nautgripabændur eru einnig háðir innfluttu kjarnfóðrinu til að halda uppi afurðamagni þó svo að gróffóður sé aðalfóðrið í þeim greinum. Áætlað hefur verið að kjarn­ fóðurgjöfin í mjólkurframleiðslunni skili á bilinu 30­40 prósent af því mjólkurmagni sem framleitt er í dag. Mjólkurframleiðslan er nú um 150 milljónir lítra á ári og gerir ekki meira en að anna eftirspurn. Talið er að mikill skaði hlytist fyrir greinina ef þar yrði samdráttur. Sauðfjárbændur nota hlutfallslega minnst af kjarnfóðri, en fóðrið er þeim þó mikilvægt á fengitíma og fyrst eftir burð ánna. Fyrirboði um verri þróun Telja má að þær hækkanir sem eru sýnilegar í dag séu aðeins fyrirboði um enn verri þróun, ef stríðsátökin halda áfram í Úkraínu – þar sem eitt stærsta ræktarland Evrópu er að finna. Vegna stríðsástandsins í landinu er nú þegar ljóst að framboð af korni frá Úkraínu á alþjóðlega markaði í haust verður lítið sem ekkert í samanburði við venjulegt ræktunarsumar, hvernig svo sem átökin þróast, en það er eitt allra helsta útflutningsland heims á kornvörum. Þá eru í gildi viðskiptaþvinganir á Rússland, annað stórveldi í kornrækt, sem torveldar þeim að markaðssetja sínar vörur í Evrópu. Talið er að nálægt 25 milljónir tonna af korni frá uppskeru síðasta árs komist ekki á markaði frá Úkraínu. En fari ræktunin – uppskera og geymsla – forgörðum þetta árið bætast mögulega 50 milljónir tonna við. Bandamenn Úkraínumanna vinna hins vegar að því nú sem mest þeir mega að finna lausnir til að koma korninu út úr landinu. Þrengt að afkomu almennings og bænda Matvæla­ og landbúnaðarstofnun Sameinuðu þjóðanna og Alþjóðabankinn hafa áætlað að ástandið muni stigmagnast á næstu mánuðum og jafnvel árum. Uppskerubrestur hefur aukinheldur víða orðið í vanþróuðum löndum – til að mynda í Afríku – sem eykur enn á hættuna á alvarlegum fæðuskorti í heiminum og hungursneyð. Á Íslandi finnur almenn ingur verulega fyrir matvöruverðs­ hækkunum um þessar mundir, en frumframleiðendur matvæla ekki síður fyrir verðhækkunum á aðföngum – ekki síst kjöt­ og eggjaframleiðendur fyrir verðhækkunum á innfluttu fóðri. Í nýlegu minnisblaði matvæla­ ráðherra var staðan metin þannig, að ekki væri talin hætta á matvæla­ eða vöruskorti á Íslandi á næstunni en vöntun á tilteknu hráefni til matvælaframleiðslu gæti orðið til lengri tíma. Það er betra að vera skjó r en skjóur Skoðun dagsins: Sími 570 9090 • www.frumherji.is Nældu þér í óumdeildari skoðun, komdu með hestakerruna á næs skoðunarstöð og hafðu hana klára rir vorið og sumarið. Miklar hækkanir á alþjóðlegum mörkuðum með fóðurvörur: Framboð hráefna til fóður­ framleiðslu á Íslandi ótryggt – Ástandið er mikil ógn við íslenskar matvælaframleiðslugreinar Sigurður Már Harðarson smh@bondi.is Úkraínskur hveitiakur. Mynd / Eugene - Unsplash
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.