Bændablaðið - 09.06.2022, Qupperneq 21

Bændablaðið - 09.06.2022, Qupperneq 21
21Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Dregið úr framleiðsluvilja Þótt fæðuöryggi Íslendinga sé líklega ekki ógnað alveg í bráð má telja líklegt að dregið hafi mjög úr framleiðsluvilja bænda í tilteknum búgreinum, eins og Bændasamtök Íslands (BÍ) hafa bent á. Versnandi afkomuhorfur eru til dæmis hjá kúabændum og sauðfjárbændum þar sem afurðaverð hefur ekki haldið í við verðhækkanir á ýmsum liðum búrekstrarins. Í flestum tilvikum eru svína-, eggja fram leiðendur og alifuglabændur algjörlega háðir því að fá innflutta fóðrið þar sem þessi dýr fá ekkert annað fóður. Örfáar undantekningar eru meðal svínabænda þar sem heimafengið fóður er hluti af fóðursamsetningunni. Bændur í þessum búgreinum hljóta því að vera mjög uggandi um framtíð sína – ef einhver óvissa er um fóðurframboð næstu mánaða. Í tillögum matvælaráðherra til fæðuöryggis Íslands, sem lagðar voru fyrir ríkisstjórn fyrir skemmstu, kemur fram að ein af undirstöðum fæðuöryggis sé fjárhagsleg afkoma bænda. Markvissa flokkun landbúnaðarlands þurfi til að auðvelda sveitarfélögum ákvarðanatöku í skipulagsmálum, jafnframt því að styrkja þurfi undirstöður jarðræktar. Allt virðist þetta vera knýjandi mál á þessum ógnartímum. Nautakjötsframleiðendur hættir að setja gripi á Unnsteinn Snorri Snorrason, sérfræðingur hjá BÍ og staðgengill framkvæmda stjóra, segir að þær hækkanir sem nú þegar eru komnar fram séu fordæmalausar. „Ef við bara horfum á kostnaðarhækkun á fóðri og áburði þá eru þetta að lágmarki 6-7 milljarðar í hækkun milli ára.“ Hann segir að bændur hafi í gegnum tíðina orðið að taka á sig verðhækkanir eða lækkun á afurðaverði einfaldlega með því að lækka sín laun eða jafnvel borga sér engin laun. „Nú er hins vegar staðan sú að bændur þurfa að taka ákvörðun um að borga með framleiðslunni með tekjum utan bús. Það er ljóst að það hefur enginn getu til þess til langs tíma. Enda finnum við það í samtölum við okkar bændur að nautakjötsframleiðendur eru hættir að setja gripi á og sauðfjárbændur munu draga verulega saman í ásetningi í haust. Það sama má segja um alifugla og svínabændur. Þetta er alvarleg staða því það tekur langan tíma að ná framleiðslugetunni upp aftur.“ Framleiðslan flyst úr landi Staða kjötframleiðenda er graf- alvarleg, ekki síst í ljósi þess að dregið hefur verulega úr tollvernd á síðustu árum. „Innlenda fram- leiðslan mun gefa eftir og við tekur aukinn innflutningur á kjöti. Það má ekki gleyma því að bændur eru að framleiða afurðir sem fara í frekari vinnslu hér á landi. Það er gífurlegur fjöldi starfa í húfi upp alla virðiskeðjuna. Ef það verður samdráttur í kjötframleiðslu hér á landi, sem nemur tugum prósenta, þá erum við að sjá á eftir hundruðum starfa sem flytjast úr landi. Við erum líka að horfa til þess að sú staða geti komið upp að ekki sé til nægt fóður fyrir þá framleiðslu sem er hér í gangi. Þar eru svína- og alifuglabændur í mjög erfiðri stöðu. Þær greinar eru þar að auki sérstaklega viðkvæmar fyrir þessari miklu hækkun fóðurverðs í ljósi þess að fóðurkostnaður er hlutfallslega hár kostnaður í þeirra framleiðslu,“ segir Unnsteinn Snorri. Á föstudaginn skipaði Svandís Svavarsdóttir matvæla ráðherra starfs hóp sem mun vinna að tillögum til að bregðast við afkomuvanda bænda. Gert er ráð fyrir að hópurinn skili tillögum 13. júní og í aðsendri grein í blaðinu í dag gerir hún grein fyrir ástæðum þess að vinna þurfi hratt. Þróunin á aðfangaverðshækkunum geti haft það í för með sér að matvælaframleiðsla á Íslandi kunni að dragast saman. Það hafi hún áttað sig á eftir samtöl við fjölda bænda, auk þess sem þess sjáist merki, til að mynda í fækkun nautgripa og fækkun sauðfjárbænda. Íslenskur byggakur. Í tillögum matvælaráðherra til fæðuöryggis Íslands, sem lagðar voru fyrir ríkisstjórn fyrir skemmstu, kemur fram að ein af undirstöðum fæðuöryggis sé fjárhagsleg afkoma bænda. Markvissa flokkun landbúnaðarlands þurfi til að auðvelda sveitarfélögum ákvarðanatöku í skipulagsmálum, jafnframt því að styrkja þurfi undirstöður jarðræktar. Mynd / smh Fóðurframleiðandinn Bústólpi á Akureyri. Mynd / AðsendHólmgeir Karlsson, fram kvæmda­ stjóri Bústólpa. Mynd / Aðsend Slæmt útlit er fyrir íslenska nautakjötsframleiðslu og eru bændur í mörgum tilfellum hættir að setja gripi á. Mynd / smh Unnsteinn Snorri Snorrason, sérfræðingur hjá Bændasamtökum Íslands og staðgengill framkvæmdastjóra. Hann segir að þær kostnaðarhækkanir sem bændur hafi þurft að taka á sig séu fordæmalausar. Mynd / smh
Qupperneq 1
Qupperneq 2
Qupperneq 3
Qupperneq 4
Qupperneq 5
Qupperneq 6
Qupperneq 7
Qupperneq 8
Qupperneq 9
Qupperneq 10
Qupperneq 11
Qupperneq 12
Qupperneq 13
Qupperneq 14
Qupperneq 15
Qupperneq 16
Qupperneq 17
Qupperneq 18
Qupperneq 19
Qupperneq 20
Qupperneq 21
Qupperneq 22
Qupperneq 23
Qupperneq 24
Qupperneq 25
Qupperneq 26
Qupperneq 27
Qupperneq 28
Qupperneq 29
Qupperneq 30
Qupperneq 31
Qupperneq 32
Qupperneq 33
Qupperneq 34
Qupperneq 35
Qupperneq 36
Qupperneq 37
Qupperneq 38
Qupperneq 39
Qupperneq 40
Qupperneq 41
Qupperneq 42
Qupperneq 43
Qupperneq 44
Qupperneq 45
Qupperneq 46
Qupperneq 47
Qupperneq 48
Qupperneq 49
Qupperneq 50
Qupperneq 51
Qupperneq 52
Qupperneq 53
Qupperneq 54
Qupperneq 55
Qupperneq 56
Qupperneq 57
Qupperneq 58
Qupperneq 59
Qupperneq 60
Qupperneq 61
Qupperneq 62
Qupperneq 63
Qupperneq 64

x

Bændablaðið

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.