Bændablaðið - 09.06.2022, Side 29
29Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
HLIÐGRINDUR
Grindur og fylgihlutir
MARGAR STÆRÐIR Í BOÐI Á FLOTTU VERÐI!
Sjáverðlista álandstolpi.is“Úti á túni”
og kom hún því ekkert fram aftur fyrr
en á Landsmótinu.
Ógleymanleg á Landsmóti
Landsmótið í Reykjavík árið 2000
er eftirminnilegt fyrir margra hluta
sakir. Fáir gleyma afkvæmasýningum
heiðursverðlaunastóðhestanna.
Sleipnisbikarhafinn Orri frá Þúfu
kom þar fram knapalaus með
glæstan niðjahóp, þar á meðal
soninn Markús frá Langholtsparti
sem vann B-flokkinn og ófáir hváðu
við skeiðsprettum afkvæma Kolfinns
frá Kjarnholtum. Ormur frá Dallandi
og Atli Guðmundsson sigruðu
A-flokk gæðinga með miklum brag.
Einkunnarmet voru slegin í mörgum
flokkum á kynbótasýningum, meðal
annars var Gleði frá Prestsbakka hæst
dæmda hrossið og Holtsmúlabúið
átti efstu kynbótahrossin í báðum
flokkum fjögurra vetra hrossa.
Og svo var það ungstirnið Álfadís.
Sýning hennar á mótinu er mörgum
ógleymanleg.
Þar hækkaði hún einkunnir sínar
í vel flestum liðum í fordómi og það
sem meira er, hún sýndi skeið.
„Það var okkur deginum ljósara
frá upphafi að hún var með galopið
skeið, þó svo að um hana var talað
sem létta klárhryssu. Það var auðvitað
ekki búið að reyna á það þar sem
síðasti mánuðurinn fyrir sýningu
var eyddur á feti. Á mótinu sjálfu
sagði Christina hins vegar við mig
að hún hefði prófað að leggja hana
og að hún teldi sig geta sýnt það á
yfirlitssýningunni. Hún bar það undir
mig og mér fannst sjálfsagt að láta
reyna á það. Svo sýndi hún bara
þennan laglega sprett og var síður en
svo ofgefið fyrir hann,“ segir Olil en
Álfadís varð næsthæst dæmda hryssa
í flokknum.
Fyrir skeiðið hlaut hún 7,0 og
hæfileikadómur Álfadísar varð
8,66. Það reyndist vera hæsti dómur
fyrir kosti sem fjögurra vetra hryssa
hafði nokkuð tímann fengið og þetta
dómamet hélt hún í þónokkur ár.
Margföldunaráhrifin
Eftir Landsmót var Álfadísi haldið
við Keili frá Miðsitju og varð þá
til Álfasteinn frá Selfossi. Næst
kom Álfur, undan Orra frá Þúfu.
Báðir þessir stóðhestar hafa náð
heiðursverðlaunum fyrir afkvæmi.
Álfur hlaut Sleipnisbikarinn næst þegar
Landmót var haldið í Reykjavík, tólf
árum eftir sýningu Álfadísar, árið 2012
og þá aðeins tíu vetra gamall.
„Álffinnur sonur hennar var
fyrstur stóðhesta til að ná lágmörkum
til fyrstu verðlauna fyrir afkvæmi
aðeins 8 vetra gamall. Álfhildur
dóttir hennar varð efst í flokki 6 vetra
hryssna á Landsmóti 2014 með 8,52
í aðaleinkunn, þar af 10 fyrir tölt og
vilja. Álfaklettur sonur hennar er meðal
hæst dæmdu hestum sögunnar, hann
fékk 8,94 í aðaleinkunn, aðeins einni
kommu frá heimsmeti,“ segir Olil.
Álfadís hefur átt 20 afkvæmi, 19
komust á legg og hafa 14 þeirra hlotið
kynbótadóm. Þrettán þeirra hafa fengið
fyrstu verðlaun. Þrjú afkvæmi eru enn
ósýnd, 4 vetra hryssa og veturgamall
hestur undan Stála frá Kjarri og 3 vetra
foli undan Arði frá Brautarholti.
Undan afkvæmum Álfadísar hafa
svo komið fram hundruð gæðinga
og reiknast Olil til að um 25% þeirra
kynbótahrossa sem fram hafa komið
á síðustu tveimur Landsmótum séu
út af þessari miklu stólpahryssu. Alls
eru afkomendur Álfadísar nú 18.630
talsins samkvæmt tölum Worldfengs.
Hún segir Álfadísi sína stærstu
gæfu sem hrossaræktanda. „Þótt þú
eigir góða hryssu með háan dóm
þá er ekki þar með sagt að hún sé
gott ræktunarhross. Hvað þá að hún
gefi nánast hvert einasta afkvæmi
framúrskarandi.“
Heima í húsi á Syðri-Gegnishólum,
þar sem Olil býr ásamt manni sínum,
Bergi Jónssyni, eru sjö afkvæmi
Álfadísar nú í tamningu og þjálfun.
Munu nokkur þeirra koma fram í
kynbótasýningum og keppnum í ár
og jafnvel slá í gegn á Landsmóti eins
og móðir þeirra forðum.
Álfadís í fallegu sólarlagi. Mynd / Heidi Benson