Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 32

Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 32
32 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Hörður Kristjánsson, fráfarandi ritstjóri Bændablaðsins, hóf störf hjá blaðinu á bóndadaginn 2011. Í ritstjórnartíð Harðar hefur Bændablaðið vaxið og dafnað og er í dag eitt mest lesna blað landsins sem áunnið hefur sér traust lesenda og auglýsenda. Að sögn Harðar hefur hann lagt áherslu á að vera gagnrýninn á heiðarlegan hátt og segja sannleikann í skrifum sínum, en núna sé kominn tími til að láta öðrum eftir starfið enda sé hann að komast á virðulegan aldur. Hörður fæddist á Engjavegi 3 á Ísafirði 8. júní 1955, daginn fyrir afmælisdag móður sinnar, sem hét Jóna Örnólfsdóttir en faðir hans var Kristján J. M. Jónsson. Húsið sem Hörður fæddist í var pínulítið bárujárnsklætt timburhús, líklega innan við 50 fermetrar. „Þar bjó ég ásamt foreldrum okkar og þremur eldri bræðrum, Jóni Þorberg, Magnúsi og Indriða Arnari ásamt systur minni, Þorgerði Margréti. Þegar ég var fjögurra ára gamall, eða 1959, var flutt í nokkuð stærra húsnæði að Seljalandsvegi 54, sem er innar í hlíðinni ofan við gamla Ísafjarðarkaupstað. Þremur árum seinna bættist svo einn bróðir enn í barnahópinn, Kristján Friðrik.“ Teiknikunnátta og sagnagerð í blóð borin Hörður segir að teiknikunnátta hafi honum verið í blóð borin enda hafi móðir hans verið mjög listfeng þótt hún hafi fengið fá tækifæri til listiðkunar vegna reksturs á stóru heimili. Blaðamennska og sagnagerð má líka að verulegum hluta rekja til móðurættarinnar, þótt líka sé stutt í slíkt í föðurfjölskyldunni. Fræg eru rit langafa hans, Reinalds Kristjánssonar landpósts fyrir vestan, sem heita Á sjó og landi. Þar er meðal annars hans lýsing af vettvangi Skúlamálanna svokölluðu á Ísafirði sem ollu miklum flokkadráttum. Þakkar barnaskólakennara úr Skáleyjum áhugann á ritlist „Sem krakki man ég fyrst eftir mér þriggja til fjögurra ára með blýant í hönd og reyndi þá oft að herma eftir Jóni, elsta bróður mínum, sem var afskaplega góður teiknari.“ Ritfærni sína vill Hörður tileinka gamalli og góðri kennslukonu í Barnaskólanum á Ísafirði, Kristínu Jóhannesdóttur frá Skáleyjum á Breiðafirði. „Kristín var afskaplega snjall og skilvirkur kennari. Til að þjálfa málnotkun og textagerð í íslensku lét hún okkur krakkana reglulega gera ritgerðir, einu sinni til tvisvar í viku. Ýmist lagði hún efnisvalið fyrir eða krakkarnir áttu að skrifa ritgerðir eftir eigin höfði. Þarna byrjaði sú þjálfun í samningu texta sem reynst hefur mér afskaplega vel í gegnum tíðina. Ég held að úr þessum eina bekk hafi sprottið einir fimm nemendur sem hafa komið að blaðamennsku og ritstörfum með einum eða öðrum hætti einhvern tíma á ævinni. Það hjálpaði líka til að í Gagnfræðaskólanum á Ísafirði var svipaður háttur hafður á í íslenskukennslu fyrstu tvo bekkina. Þar kenndi Finnur Torfi Hjörleifsson um tíma af mikilli festu. Þessir kennsluhættir gátu ekki annað en kallað fram ritfærni hjá þeim sem voru á annað borð meðtækilegir fyrri slíku og fyrir það er ég afskaplega þakklátur.“ Foreldrarnir dugnaðarforkar „Það má sannarlega segja að kröfurnar í þjóðfélaginu á sjötta og sjöunda áratug síðustu aldar hafi ekki verið sérlega miklar og kaupgetan til húsnæðiskaupa heldur ekki mikil. Til að drýgja tekjurnar voru foreldrar mínir með nokkrar kindur, eins og algengt var á Ísafirði á þeim árum, og nokkrar hænur að auki. Þau voru miklir dugnaðarforkar, enda þurfti virkilega að hafa mikið fyrir lífinu til að komast af. Móðir mín, sá um heimilið og öll bústörf sem til féllu. Hún var húsmæðraskólagengin, listakokkur og bakaði og prjónaði mikið jafnframt því að sauma föt á fjölskyldumeðlimi og jafnvel aðra líka. Þessi kunnátta og listfengi voru auðvitað mikils virði fyrir fjölskylduna. Þegar eldri systkinin fóru að fljúga úr hreiðrinu og við yngstu synirnir vorum orðnir stálpaðir, fór hún auk þess í fiskvinnu til að auka tekjur heimilisins. Faðir minn vann alla daga í vinnu utan heimilis en sá um skepnuhald og heyskap á kvöldin og um helgar. Þegar ég fæddist starfaði hann hjá Vegagerðinni. Þar tók hann að sér að vera fyrsti jarðýtustjóri á Vestfjörðum í júní 1946, þá 28 ára gamall. Jarðýtan var af gerðinni Allis Chalmers Model HD 10 með vírahífingu á ýtutönn. Á þessu litla verkfæri ruddi hann Óshlíðarveg á árunum 1946-1950 og stóran hluta af veginum um Súðavíkurhlíð og víðar. Honum var nú ekki þakkað meira fyrir sitt framlag en svo, að þegar haldið var upp á 50 ára afmæli Óshlíðarvegar, sem hann ruddi á litlu ýtunni, var honum ekki einu sinni boðið í hófið sem haldið var á Hótel Ísafirði. Í boðinu voru margir af hans fyrri félögum úr Vegagerðinni til margra ára. Ég fann að honum sárnaði þetta mjög.“ Börn lærðu snemma að vinna „Það má segja að í hlíðinni hafi verið hálfgerð sveitamenning samfara lífinu í hinum mikla útgerðarbæ Ísafirði. Krakkarnir tóku þátt í öllum störfum eins og þurfti. Þar lærði maður að vinna um leið og maður var farinn að standa í lappirnar og auk þess var afi með kýr og kindur sem útheimtu líka okkar aðstoð eins og annarra af hans afkomendum. Ég og náfrændi minn, Gunnar Pétur Pétursson, og jafnaldri vorum auðvitað settir í heyskapinn eins og aðrir þótt kornungir værum. Man ég vel að hart var gengið eftir því að við héldum okkur við efnið við að rifja og raka strax frá fimm ára aldri. Þetta hét að kenna fólki að vinna og þótt okkur þætti það ekki alltaf skemmtilegt held ég að það hafi ekki gert okkur neitt illt. Þegar maður eltist áttaði maður sig þó fljótt á því að með því að komast í fiskvinnu væri hægt að komast á tímakaup sem var allt annar hlutur. Tíu eða ellefu ára gamall fór ég því að líta í kringum mig og faðir eins vinar míns var með fiskvinnslu sem mér þótti eftirsóknarvert að komast í. Hann hét Þórður Júlíusson og fór ég því á hans fund og sótti um vinnu eins og fleiri jafnaldrar mínir og var ráðinn í vinnslu á hörpudiski sem veiddur var í Ísafjarðardjúpi. Fljótlega fékk maður svo að fara og taka þátt í útskipun á frosnum fiski í flutningaskip. Það leiddi mann svo áfram í vinnu hjá Íshúsfélagi Ísfirðinga þar sem maður vann á sumrin og meðfram námi í gagnfræðaskóla á vetrum. Maður átti því fyrir flestum eigin þörfum og þurfti ekki á vasapening frá foreldrum að halda, enda ekki mikið um slíkt að ræða. LÍF&STARF „Hef lagt mest upp úr að vera gagnrýninn, heiðarlegur og að segja fólki sannleikann“ – segir Hörður Kristjánsson, eftir að hafa starfað rúman áratug sem ritstjóri Bændablaðsins Vilmundur Hansen vilmundur@bondi.is Fráfarandi ritstjóri, Hörður Kristjánsson, ásamt eiginkonu sinni, Björk Guðlaugsdóttur, á góðri stund. Mynd / ghp Engjavegur 3 á Ísafirði þar sem Hörður fæddist árið 1955. Bekkurinn hennar Kristínar Jóhannesdóttur, kennara í Barnaskólanum á Ísafirði, af árgangi 1955. Hörður Kristjánsson er í annarri röð lengst til vinstri.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.