Bændablaðið - 09.06.2022, Blaðsíða 33
33Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
Eftir útskrift úr grunnskóla 1972,
þar sem ég tók meðal annars pungapróf
sem fylgdi réttur til að stjórna 35
tonna bát, var ég búinn að ákveða
að fara í Myndlista- og handíðaskóa
Íslands. Engin námslán voru í boði né
fjárstyrkir af öðru tagi svo ég ákvað
að taka mér árshlé frá skóla til að þéna
fyrir námsdvöl í Reykjavík. Vann ég
þá hjá Vegagerðinni um sumarið og
veturinn eftir og fram á haust 1973. Þá
um vorið fór ég í inntökupróf og var
á meðal 20 sem náðu því prófi af um
120 sem það þreyttu.
Það fór nú svo að fjárhagur leyfði
ekki nema tveggja ára nám í skólanum
og þá tók við byggingarvinna vestur á
Ísafirði. Nýrnakvilli olli því svo að ég
þoldi illa kulda og vosbúð, sem eðlilega
fylgir stundum slíkri vinnu, svo ég greip
tækifærið 1976 þegar snillingurinn
Leo Jóhannsson, ljósmyndameistari
á Ísafirði, óskaði eftir að fá nema á
fjögurra ára samning. Var það nám í
Iðnskólanum á Ísafirði, sem hluti af
Tækniskólanum, tekið með vinnunni
og kláraði ég sveinsprófið í Reykjavík.
Eftir það ákvað ég að breyta örlítið til
að nýju og fór í málningarvinnu í tvö ár
á Ísafirði. Fékk síðan meistararéttindi
í ljósmyndun 1982.“
Í málningarvinnu og
myndasögumálun
„Það var mjög skemmtilegur tími
í málningarvinnunni og við tveir
félagar í þeirri vinnu, sem báðir
höfðum verið í Myndlista- og
handíðaskólanum, fengum meðal
annars það verkefni að myndskreyta
stigahús í Íshúsfélagi Ísfirðinga hf.
í tilefni af 80 ára afmæli félagsins.
Við máluðum fjölda verka þar sem
við lýstum sögu félagsins í myndum
upp allan stigaganginn. Sagan hefst
á jarðhæð á myndum sem lýstu
upphafinu 1912 og endar á þeirri
fjórðu. Verkið tók nokkra mánuði og
var afskaplega skemmtilegt að vinna
í félagsskap með frábæru starfs-
fólki Íshúsfélagsins.“
Ráðinn til Sjónvarpsins
Haustið 1981 sá Hörður auglýsingu
þar sem starf ljósmyndara í tæknideild
Sjónvarpsins var auglýst laust til
umsóknar. Hann sótti um og var ráðinn
í ársbyrjun 1982 og flutti suður með
konu og þrjú börn.
„Við vorum þrír ljósmyndararnir
sem unnum þar á „róterandi“
vöktum alla daga ársins. Einn var
þá á fréttavakt og annar á vakt við
filmuframköllun á meðan sá þriðji var í
fríi. Það var mikið tekið af ljósmyndum
fyrir fréttastofuna á þessum tíma og
eins til notkunar við þáttagerð og
kynningar. Í framköllunardeildinni
sáum við um að framkalla allar
slides-filmur sem tekið var á og allar
16 millimetra kvikmyndafilmurnar,
líka fyrir kvikmyndagerðarfólk
utan stofnunarinnar. Vídeó var þá
nýlega byrjað að ryðja sér til rúms í
kvikmyndatöku fyrir fréttastofuna.
Samhliða þessum störfum var ég með
stúdíó í auglýsingaljósmyndun úti í bæ
og tók kynningarmyndir, meðal annars
fyrir Íslensku óperuna.“
Fréttaritari og í dómnefnd
Eurovision
Hörður lét af störfum hjá Sjón-
varpinu vorið 1985 í kjölfar
vinnudeilna félaganna þriggja á
ljósmyndadeildinni við yfirmenn
Sjónvarpsins. Flutti hann þá með
fjölskyldunni aftur til Ísafjarðar þar
sem þau áttu íbúð og honum hafði
boðist starf sem offsetljósmyndari í
prentsmiðjunni Ísrúnu. Tengslum við
sjónvarpið lauk þó ekki alveg þar sem
hann tók að sér að vera fréttaritari á
Ísafirði, auk þess að stýra dómnefnd
vestra fyrir Eurovision.
„Sinnti ég þessum hlutverkum
í nokkur ár meðfram prentsmiðju-
störfunum. Þá var Finnbogi
Her manns son svo elskulegur að fá
mig nokkrum sinnum til að aðstoða
sig við hljóðupptökur á viðtölum
fyrir Útvarpið þar sem hann
var svæðisstjóri.
Ég man að fréttir af slysum á
þessum tíma þótti mér allra verst að
sinna. Mörg skemmtileg verkefni
fékk ég þó líka upp í hendurnar og
stundum kom Ómar Ragnarsson
fljúgandi vestur til að sækja mig þegar
það vantaði tökumann í Ísflug við
Hornstrandir, í stóðréttir fyrir norðan,
eða eitthvað annað.“
Sogaðist hægt og rólega
inn í blaðamennskuna
„Á Ísafirði voru á þessum árum
gefin út ýmis flokksblöð og
héraðsfréttablöð. Þar sem ég átti
tiltölulega auðvelt með að semja
texta kom það oft fyrir að ég var
fenginn til að redda málum þegar
klára þurfti blöð fyrir prentun.
Þetta ágerðist og smám saman
fór blaðamennskan að verða stærri
hluti af mínum störfum. Þar má
helst nefna blöð eins og Vestfirska
fréttablaðið, Forsíðuna og Vestra,
auk nokkurra annarra blaða sem ég
hjálpaði til að vinna. Reyndar má
segja að fyrsta blaðið sem ég tók
þátt í að skrifa, myndskreyta og
ritstýra hafi verið skólablaðið Þróun
í Gagnfræðaskólanum á Ísafirði. Það
var gefið út m.a. til að fjármagna
skólaferðalag vorið 1972.
Undir lok tíunda áratugarins var
blaðaútgáfu og prentsmiðjustarfsemi
farið mjög að hnigna á Ísafirði og
hafði ég þá verið að senda DV fréttir
annað slagið. Varð úr að ég sótti þar
um starf hjá Óla Birni Kárasyni,
núverandi alþingismanni, og flutti
suður á ný með hluta af fjölskyldunni,
sem var orðin einum dreng ríkari og
einum sonarsyni, þann 17. júní árið
1999. Þá hafði ég eignast fjóra syni
með fyrri konunni minni, Fríðu K.
Albertsdóttur, en þeir heita Haukur
Már, Jón Albert, Hörður Páll og
Auðunn Birgir. Hörður Páll hafði
þá eignast soninn Róbert Snæ með
Ingibjörgu Hákonardóttur.
Á DV lágu fljótlega saman leiðir
okkar Vilmundar Hansen, núverandi
blaðamanns á Bændablaðinu.
DV lifði til ársloka 2003 og eftir
lausamennsku í einn mánuð eða svo
var ég ráðinn til Viðskiptablaðsins.
Þar starfaði ég líka eitthvað við
afleysingar hjá Fiskifréttum með
snillingunum Guðjóni Einarssyni
og Kjartani Stefánssyni. Rekstur
Viðskiptablaðsins komst í þrot og var
strax endurreistur þar sem ég fékk
áfram starf og í gegnum allt þetta ferli
fylgdumst við Vilmundur að.“
Hóf störf á Bændablaðinu
á bóndadaginn 2011
„Undir árslok 2010 benti góður vinur
minn, Rögnvaldur Bjarnason, mér á
að verið væri að auglýsa eftir ritstjóra
hjá Bændablaðinu. Í fyrstu taldi ég
mig ekki hafa mikið í það starf að
gera, en að áeggjan vina og núverandi
eiginkonu, Bjarkar Guðlaugsdóttur,
lét ég til leiðast að sækja um. Eftir
að hafa farið í gegnum samtöl við
Tjörva Bjarnason sviðsstjóra og
Eirík Blöndal framkvæmdastjóra,
afréðu þeir að ráða mig í þetta starf
úr hópi 27 umsækjenda. Ég sagði
því upp á Viðskiptablaðinu, að mig
minnir á Þorláksmessu 2010, og fékk
mig fljótt lausan. Byrjaði ég að skrifa
fyrir Bændablaðið strax í fyrsta blað
ársins 2011, þótt mér þætti betur við
hæfi að hefja ekki formlega störf fyrr
en föstudaginn 25. janúar, sem var
sjálfur bóndadagurinn.
Ég tók ráðningunni mjög alvarlega
og var staðfastur í að gera allt sem ég
gæti til að auka veg Bændablaðsins
og virðingu. Það leið samt ekki á
löngu þar til ég óskaði eftir liðsinni
Vilmundar við það verkefni.
Það kostaði auðvitað fórnir ef
maður ætlaði að gera þetta vel og maður
var í vinnunni alla daga ársins, líka í
sumarfríum og á ferðalögum erlendis.
Flest annað en vinnan var einfaldlega
látið sitja á hakanum. Ef eiginkonan
væri ekki svona skilningsrík hefði þetta
aldrei gengið upp. Það vildi til að hún er
fædd og uppalin í sveitinni í Eyjafirði
og hafði því ekkert síður en ég gaman
af að heimsækja bændur á þvælingi
okkar um landið og í útlöndum.
Síðan hefur tíminn verið afskap-
lega fljótur að líða í krefjandi og
áhugaverðri vinnu með skemmtilegu
fólki hjá Bændasamtökum Íslands.“
Að vera gagnrýninn, heiðarlegur
og segja fólki sannleikann
„Það sem ég hef lagt mest upp úr hjá
Bændablaðinu er að beita gagnrýnni
hugsun á öll viðfangsefni og umfram
allt að vera heiðarlegur og segja fólki
sannleikann með mínum skrifum og
efnistökum blaðsins. Ég hef forðast að
elta skrif annarra fjölmiðla og upplýsa
frekar um áhugaverða hluti sem aðrir
leggja sig ekki eftir, eða nenna ekki að
sinna. Ég held að þetta sé lykillinn að
velgengni Bændablaðsins undanfarin
ár. Slíkt gerist þó ekki nema að allt
starfsfólkið rói í sömu átt.“
Hörður segir að flest fólk kunni
að meta það ef maður kemur fram
af hreinskilni og segir einfaldlega
sannleikann. Maður eigi aldrei að láta
aðra stýra ferðinni, hversu auðugir sem
þeir eru, eða hátt þeir þykjast settir í
þjóðfélaginu.
„Eins og gengur þykir ekki alltaf
gott að segja suma hluti opinberlega
þótt sannir séu. Það hefur stundum
orðið til þess að ýmsum hefur þótt
á sínar tær troðið. Ég hef þá notið
þess að sviðsstjóri og yfirstjórn
Bændasamtakanna hafa alltaf staðið
þétt við bakið á mér og fyrir það er
ég afar þakklátur.“
Bestu óskir
„Ég vil svo að lokum óska
Bændablaðinu velfarnaðar og
samstarfsfólki mínu þar, Guðrúnu
Huldu Pálsdóttur, nýjum ritstjóra,
Vilmundi Hansen, Sigrúnu Péturs-
dóttur, Sigurði Má Harðarsyni,
Margréti Þóru Þórsdóttur, Þórdísi Unu
Gunnarsdóttur auglýsingastjóra og
öllum öðrum sem tengjast starfseminni
beint í dag, eins og Gylfa Þór Orrasyni
fjármálastjóra, Sigríði Þorkelsdóttur
og Jóhönnu Lúðvíksdóttur. Einnig
fjölmörgum verktökum sem hafa
komið að útgáfunni á Íslandi og
erlendis á þessum rúma áratug.
Þá þakka ég Bændasamtökum
Íslands fyrir að hafa sýnt mér það
traust að stýra þessum miðli og óska
Gunnari Þorgeirssyni formanni og
Vigdísi Häsler framkvæmdastjóra,
stjórn og starfsmönnum velfarnaðar
í þeirra flóknu störfum.
Það hefur verið einstaklega gaman
og lærdómsríkt og mikill heiður að fá
að kynnast öllu því góða fólki sem þar
hefur starfað á þessum árum. Það á ekki
síður við starfsmenn sem nú tilheyra
Ráðgjafarmiðstöð landbúnaðarins,
Nautastöð BÍ og annarra tengdra
stofnana landbúnaðarins. Einnig
þess góða fólks sem fluttist með
Búnaðarstofu yfir í núverandi
matvælaráðuneyti.
Af öðrum ólöstuðum vil ég
sérstaklega nefna dr. Ólaf Rúnar
Dýrmundsson og Sigurð Kristjánsson,
sem reynst hafa mér og Bændablaðinu
ómetanlegar hjálparhellur.
Þá vona ég að bændum og búaliði í
öllum búgreinum vegni sem allra best
á komandi árum. Þjóðin væri virkilega
í vondum málum ef ykkar nyti ekki
við og þakka ég kærlega fyrir frábært
samstarf. Án ykkar góðu vinnu væri
tilgangur Bændablaðsins líka harla
lítill,“ sagði Hörður Kristjánsson
að lokum.
Sárt saknað
Starfsmenn Bændablaðsins þakka
Herði samvinnuna á liðum árum.
Annað eins ljúfmenni og dugnaðar-
forkur er fátíður fugl.
Það mun taka tíma að venjast
því að hitta hann ekki reglulega og
bjóða góðan daginn, eftir öll þessi
góðu ár sem við höfum unnið saman.
Takk fyrir mig Hörður.
Síðasta tölublað Bændablaðsins farið í prentun 24. maí 2022 og starfsmannahópurinn á ritstjórninni undir stjórn
Harðar. Sigurður Már Harðarson blaðamaður, Þórdís Una Gunnarsdóttir auglýsingastjóri, Sigrún Pétursdóttir
blaðamaður, Guðrún Hulda Pálsdóttir, blaðamaður og verðandi ritstjóri, Vilmundur Hansen blaðamaður og Hörður
Kristjánsson ritstjóri. Mynd / Erla Hjördís Gunnarsdóttir
Með síðasta Bændablað sitt úr prentun hjá Landsprenti, talið frá vinstri: Guðbrandur Magnússon, framkvæmdastjóri
Landsprents, Gylfi Geir Guðjónsson prentari, Hörður Kristjánsson ritstjóri og Stefán Stefánsson prentari. Mynd / Guðmundur Gíslason
Fyrsta frétt Harðar á forsíðu fyrsta tölublaðs Bændablaðsins 2011
og forsíða síðasta tölublaðsins í hans stjórn 24. maí 2022.