Bændablaðið - 09.06.2022, Side 34
34 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
„Trjáfellingar í görðum og við hús
eða önnur mannvirki geta verið
mjög vandasamar.
Fyrirtækið hefur í tímans rás
þróast í þá átt að sérhæfa sig í að
fella tré við erfiðar aðstæður, þar
sem aðgengi að trjám er örðugt
eða flókið á einhvern hátt að fella
tréð,“ segir Jón Heiðar Rúnarsson,
sem á félagið Skógarmenn ehf., sem
býður upp á margvíslega þjónustu í
tengslum við trjávinnu. Jón Rúnar
lærði rekstrarfræði við Háskólann
á Akureyri á sínum tíma og starfaði
um nokkurt skeið við rekstur lítilla
og meðalstórra fyrirtækja.
„Ég var á milli starfa sumarið
2005 þegar félagi minn bað mig um
að hjálpa sér við gróðursetningar yfir
sumarið. Ég vissi ekki einu sinni þá
að hægt væri að starfa við það, að
yfirleitt væri verið að gróðursetja í
stórum stíl hér og hvar.
En þetta hentaði mér vel á þeim
tíma og ég er sjálfsagt líka einn af
þeim sem endist ekki lengi inni á
skrifstofum. Í kjölfarið á þessu
sumarstarfi sá ég tækifæri á að stofna
eigið fyrirtæki um starfsemi af þessu
tagi, því það var víða orðin mikil
þörf á að grisja skóga og einnig var
talsvert líka verið að gróðursetja,“
segir Jón Heiðar.
Dustaði rykið af kennitölunni
þegar fór að rofa til eftir hrun
Hann stofnaði félagið og fékk fljótt
fjölmörg verkefni, flest í kringum
grisjun og gróðursetningar, en hann
starfaði einkum á Norðurlandi. „Það
var allt í ágætum gír og mikið að
gera, en þá skall hrunið yfir okkur
og það gjörbreytti öllu. Fótunum var
kippt undan starfsemi af þessu tagi,
það fór bara allt í rugl. Ástandið var
erfitt, dregið var úr fjárframlögum
og greinin hafði úr litlu sem engu
að spila þannig að öll verkefni
drógust verulega saman,“ segir Jón
Heiðar. Hann reri á önnur mið, en
sleit ekki félaginu, heldur lagði það
í dvala. Þegar fór að rofa til á ný
dustaði hann rykið af kennitölunni
og byrjaði á að taka eitt og eitt
tilfallandi verkefni. „Þetta byrjaði
rólega, en smám saman náðist að
keyra félagið á ný upp.“
Hin síðari ár hefur mikið
verið að gera og eru allt upp í 5
starfsmenn hjá félaginu þegar mest
er umleikis, en Jón Heiðar segir
að í skógarbransanum séu margir
einyrkjar og þeir hói hver í annan
eftir stærð verkefna hverju sinni.
Gróðursetningar heyra að mestu
leyti sögunni til hjá Skógarmönnum,
en þess meira er að gera við grisjun
eða trjáfellingar. Hvað grisjun varðar
fara skógfræðingar um og taka út
skógana og meta grisjunarþörf
og ákveða hversu mörg tré skuli
standa eftir þegar grisjun lýkur.
„Við förum síðan inn í skóginn
og fellum lélegustu trén úr frá því
hversu bein þau eru, vaxtarlagi þeirra
eða hvernig toppurinn lítur út,“ segir
hann. „Það hefur sem betur fer orðið
vakning í því að grisja þarf skóga og
skógarreiti, ekki síður en að slá gras
og klippa runna, en í eina tíð var lítið
verið að velta því fyrir sér. Þannig að
víða þarf að taka til hendinni.“
Reynsla í klifri og línubjörgun
Jón Heiðar segir að nú hin síðari ár
hafi félagið sérhæft sig í trjáfellingum
við erfiðar aðstæður og hafi komið
sér upp bæði góðri þekkingu og
búnaði til að vera sem best í stakk
búin til að taka slík verkefni að sér.
„Við náum að blanda saman við
skógarhöggsreynsluna mismunandi
menntun og sérhæfingu, allt frá
skógfræðinámi til skyndihjálpar, og
þá búum við yfir þekkingu og reynslu
í klifri og í línubjörgun,“ segir hann,
en Jón Heiðar hefur undanfarin ár
annast námskeið fyrir Landsbjörg í
fjallamennsku og fjallaklifri.
Hann segir að færst hafi í vöxt
að félagið taki að sér verkefni við
að fjarlægja stór tré úr görðum í
þéttbýli. „Við erum talsvert í erfiðum
og flóknum trjáfellingum, þar sem
allt þarf að hugsa út vandlega áður
en hafist er handa,“ segir hann. „Fólk
er að vakna við það að trén séu fyrir,
engan óraði fyrir því fyrir mörgum
áratugum þegar gróðursett var að
þau yrðu svo stór eins og raunin er,
þau eru fyrir af ýmsum ástæðum eða
skerða útsýni umtalsvert og menn
vilja losa sig við þau.
Stundum er hægt að minnka
umfangið með því að snyrta trén en
svo eru önnur tilfelli þar sem eini
kosturinn er að fella þau.“
Hann segir að í mörgum tilvikum
þurfi kunnáttu og réttan búnað til að
fást við þessi erfiðu viðfangsefni.
„Það getur orðið býsna flókið að
fella há og stór tré inni í miðju
íbúðarhverfi og alls ekki sama
hvernig það er gert,“ segir hann. „Við
eigum góðan búnað og höfum mikla
reynslu í þessum efnum, það verður
að gæta fyllsta öryggis, ekki bara að
þeir sem eru að fella tréð haldi lífi,
heldur þarf líka að tryggja nánasta
umhverfið. Við reynum alltaf að
sinna öllum okkar verkefnum, sem
eru mjög fjölbreytt, af metnaði og
alúð,“ segir Jón Heiðar. / MÞÞ
LÍF & STARF
Margrét Þóra Þórsdóttir
mth@bondi.is
Skógarmenn sérhæfa sig í að fella tré við erfiðar aðstæður:
Þarf kunnáttu og réttan búnað
til að fást við erfið viðfangsefni
– Flókið að fella há tré inni í miðju íbúðarhverfi
Jón Heiðar Rúnarsson, eigandi
Skógarmanna.
Jón Heiðar að búta og fleyga niður þriggja stofna ösp við Einholt á Akureyri.
Starfsmaður Skógræktar ríkisins í Vaglaskógi sækir birki sem er búið að
saga niður til eldiviðarframleiðslu.
Johan Holst stígur hér niður frá stóru lerkitré sem er að falla í stígnum á
milli Vaðlaheiðarganga og Skógarbaðanna.
Jón Heiðar bútar niður ösp sem búið var að smíða hús í kringum og því
þurfti að gæta vel að því hvert hvert bútarnir féllu.
HURÐIR
Tunguháls 10, 110 Reykjavík, sími 567 3440, vagnar@vagnar.is, vagnar.is
• Stuttur afhendingartími
• Hágæða íslensk
framleiðsla
• Val um fjölda lita í
RAL-litakerfinu
• Vindstyrktar hurðir
Bílskúrs- og iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir
Iðnaðarhurðir með gönguhurð
Bílskúrshurðir
Hurðir í trékarma
Tvískiptar hurðir
Smíðað eftir máli
Fyrsta flokks þjónusta og ráðgjöf