Bændablaðið - 09.06.2022, Page 37
37Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
ÆÐARBÆNDUR!
Hreinsun er komin í fullan gang!
Getum bætt við okkur æðardúni í hreinsun og sölu.
Greiðum flutningskostnað.
Allar nánari upplýsingar veitir:
Erla Friðriksdóttir í síma 899 8369 & erla@kingeider.is Dúnhreinsun - Nesvegur 13 - 340 Stykkishólmi
Meirapróf
Nýi Ökuskólinn - Kle�agörðum 11 - 104 Rvík - meiraprof.is - meiraprof@meiraprof.is
Ré�ndin gilda
í Evrópu
Auknir atvinnumöguleikar
Íslensk og ensk námskeið
D-D1-C-CE-C1-C1E-B/FarKíktu á meiraprof.is og skráðu þig á námskeið
Grunnnámskeið um rétta og örugga meðferð
á hífibúnaði.
Nánari upplýsingar og skráning eru á:
isfell.is/course eða skannaðu kóðann.
Þekking og þjónusta
Óseyrarbraut 28
Sími 5200 500
NETNÁMSKEIÐ
í meðferð á hífibúnaði
Íslensk framleiðsla
á Bílskúrs- og Iðnaðarhurðum
564-0013 | 865-1237
Kengúrur á Indlandi. Mynd / deccanherald.com
Ólögleg verslun með villt dýr:
Yfirgefnar kengúrur
vekja furðu á Indlandi
Nýverið var lögreglu í vesturhluta
Bengal-ríkis á Indlandi tilkynnt
um þrjár kengúrur sem væru að
tefja umferð.
Eins og flestir vita eru kengúrur
upprunnar í Ástralíu og því vakti
talsverða furðu að þær skyldu
finnast á umferðargötu á Indlandi.
Kengúrurnar þrjár eru sagðar
varpa ljósi á sívaxandi vandamál á
Indlandi og víðar um heim sem felst
í ólöglegri verslun með villt dýr
og ekki síst dýr í útrýmingarhættu.
Stöðutákn ósmekklegra
meðaljóna
Talið er að kengúrunum hafi verið
smyglað til Indlands með viðkomu
í Nepal. Kengúrurnar voru mjög
illa á sig komnar og vannærðar
þegar tvær þeirra voru fluttar í
dýragarð, þar sem þær munu dvelja
í framtíðinni, en ein lést.
Líkt og víðar um heim eru
framandi og sjaldgæf dýr og
plöntur stöðutákn á Indlandi og
vinsældir sem slík vaxandi meðal
ósmekklegra nýríkra meðaljóna.
Samkvæmt opinberum tölum
Traffic, stofnunar sem greinir
ólöglega verslun með lífverur,
lögðu tollayfirvöld á Indlandi hönd
á yfir 70.000 framandi dýr af 84
mismunandi tegundum á árunum
2011 til 2020, sem smygla átti til
landsins eða til annarra landa með
viðkomu á Indlandi.
Ólögleg verslun með framandi
og sjaldgæfar dýrategundir og
plöntur er vaxandi vandamál um
allan heim og hátt verð fæst fyrir
lífverurnar og skiptir þá engu
hvort um er að ræða sjaldgæfar
skjaldbökur, páfagauka, lemúra,
slöngur smáapa, orkideur eða
kögurpálma.
Út á guð og gaddinn
Annað vandamál sem fylgir dýra-
og plöntuversluninni er að þeir sem
ásælast lífverurnar kunna sjaldnast
að fara með þær né hafa við-
eigandi aðstæður til að sinna þeim
sem skyldi.
Dýrunum er líka iðulega sleppt
út í náttúruna þar sem þeirra bíður
ekkert annað en dauði. Einnig geta
borist með lífverunum sjúkdómar
og sníkjudýr sem ekki þekkjast í
aðkomulandinu. /VH