Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 38

Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 38
38 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Sumarsýning Heimilissafnsins á Blönduósi ber heitið Þráðlag og er þar að finna verk eftir Ragnheiði Björk Þórsdóttur. Verkin á sýningunni eru unnin í gagnbindingar-vefstól, stafrænum TC2 vefstól og pappír og flest unnin á þessu og síðasta ári. Viðfangsefni Ragnheiðar á þessari sýningu er uppbygging og áferð vefnaðarins og hvernig þáttur uppistöðu og ívafs breytist við val á aðferðum sem notaðar eru í ferlinu. Hún nýtir sér bæði hliðrænar og stafrænar aðferðir við vef inn og ferðast frá hinu einfalda til hins flókna. Ragnheiður hefur lengi rannsakað vefn- aðarmunstur og uppbyggingu þeirra og að þessu sinni hafa sum verkin tengingu við safnmuni á Heimilisiðnaðarsafninu og einnig við Halldóru Bjarnadóttur og ævi hennar. Ragnheiður er með vinnustofu á Grenivík og er í hlutastarfi sem sérfræðingur á sviði vefnaðar og hjá Textílmiðstöð Íslands á Blönduósi. Sýningin stendur yfir til 31. ágúst og er opin frá klukkan 10 til 17 alla daga. /MÞÞ „Nú er allt að smella saman og við finnum fyrir miklum áhuga og eftirvæntingu,“ segir Svanhildur Pálsdóttir, viðburða- og markaðsstjóri hjá Textílmiðstöð Íslands, um Prjónagleðina 2022, sem haldin verður á Blönduósi dagana 10. til 12. júní næstkomandi. Fjöldi viðburða er á dagskrá, fjölbreytt námskeið og fyrirlestrar um prjónatengd efni, prjónakvöldvaka, prjónamessa og þá er Garntorgið á sínum stað í íþróttahúsinu. Fyrsta Prjónagleðin var haldin árið 2016 og þetta er í sjötta sinn sem hátíðin er haldin. „Það verður að venju margt í boði, fróðleg námskeið og fyrirlestrar og svo skemmta þátttakendur sér auðvitað vel inn á milli og njóta þess að eiga góðar stundir saman yfir prjónaskapnum,“ segir hún. Kaupa þarf námskeið á vefverslun Textílmiðstöðvarinnar, þar eru einnig helgararmbönd til sölu en þeim þarf að framvísa á fyrirlestra hátíðarinnar. Frítt er inn á Garntorgið og á ýmsa viðburði nægir að mæta bara á svæðið. Markmiðið að sameina prjónafólk „Markmiðið með prjónagleðinni hefur alltaf verið að sameina prjónafólk og skapa því vettvang til að hittast og miðla prjónasögum, nýjum hugmyndum og aðferðum, gömlum hefðum og síðast en ekki síst hinni almennu prjónagleði í öllum sínum fjölbreytileika,“ segir Svanhildur. „Við sköpum hlýlegan og notalegan vettvang fyrir fólk að koma saman og prjóna, spjalla, deila reynslu sinni, læra eitthvað nýtt eða gamalt og njóta samverunnar með öðrum ástríðufullum prjónurum.“ Fjölbreytt úrval námskeiða og fyrirlestra Úrval námskeiða er í boði nú á komandi Prjónagleði, en þar má nefna námskeið um prjónatækni, hvernig hægt er að nýta afganga, námskeið í prjónahönnun, í skapandi prjóni og um litatilfinningar en einnig er námskeið í hefðbundnu lopapeysuprjóni en það er í boði á ensku, enda hafa útlendingar mikinn áhuga á íslensku lopapeysunni, að sögn Svanhildar. Að venju verða nokkrir fyrirlestrar á hátíðinni, en sem dæmi segir Thelma Steimann, ungur íslenskur prjónahönnuður, frá sér og sinni hönnun sem er að slá í gegn í prjónaheiminum um þessar mundir. Helga Thoroddsen heldur fyrirlestur um það hvers vegna allir ættu að prjóna og einnig mun Árný Björg Ósvaldsdóttir halda fyrirlestur um prjónaskap og umhverfismál, sem er mjög brýnt málefni nú um stundir. Auk námskeiða og fyrirlestra er sitthvað í boði til skemmtunar. Heimafólk efnir til pjónakvöldvöku í félagsheimilinu á Blönduósi á laugardagskvöldinu 11. júní, þar sem boðið verður upp á smárétti, lifandi tónlist og skemmtilega samveru. Þessi viðburður er spennandi nýjung og Svanhildur væntir þess að gestir hátíðarinnar taki þessu framtaki opnum örmum og fjölmenni á kvöldvökuna. Prjónamessa verður í Blönduóskirkju og gengið verður prjónandi frá Kvennaskólanum til messu eins og gert var fyrr á öldum. Einnig má nefna að opið hús verður í ullarþvottastöðinni á Blönduósi föstudaginn 10. júní. Garnveisla á Garntorgi Garntorgið verður á sínum stað í íþróttahúsinu en það hefur að sögn Svanhildar skipað stóran sess á Prjónagleðinni undanfarin ár. Mjög góð þátttaka verður að þessu sinni, um 30 söluaðilar með sínar vörur, handlitarar, smáspunaverksmiðjur, hand- verksfólk og verslanir með garn og prjónatengdan varning. „Garntorgið er stór viðburður í sjálfu sér, ég er viss um að annað eins vöruúrval fyrir prjónafólk hefur ekki sést undir sama þaki í Íslandssögunni, þvílíka garnveislan. Það er ótrúlega spennandi fyrir okkur garnfíklana,“ segir hún með glampa í augum. /MÞÞ LÍF&STARF Lely Center Ísland Reykjavík: Krókháls 5f – Sími 414 0000 – www.LCI.is Akureyri: Óðinsnes 2 – Sími 464 8600 ALTERNATORAR gerðir dráttarvéla Sýning á ljósmyndum og kjólum verður í gamla Iðnskólanum á Akranesi dagana 17. og 18. júní. Kjólarnir eru með myndum sem flestar eru teknar á Vesturlandi og þeir eru framleiddir undir heitinu LAUFEY. Efnið í kjólunum er unnið úr endurnýttum plastflöskum! Áskell Þórisson ljósmyndari tók myndirnar sem eru á kjólunum og sömuleiðis myndirnar sem munu hanga á veggjum gamla Iðnskólans. Það eru þau feðgin Laufey Dóra og Áskell sem annast hönnun og markaðssetningu kjólanna en Sjöfn Magnúsdóttir, klæðskeri á Akranesi, sér um saumaskapinn. Hver kjóll er sérsaumaður eftir málum kaupenda. Sýningin í gamla Iðnskólanum, Skólabraut 9, verður opin frá kl. 11 til 17.30 báða dagana. Áhugasamir um kjóla geta hitt þær Laufeyju og Sjöfn á staðnum þann 17. júní frá kl. 14 til 16 en Áskell verður þarna báða dagana. Myndirnar eru til sölu en kjólana þarf að sérpanta. Gamli Iðnskólinn á Akranesi: Sýning á ljósmyndum og kjólum 17.–18. júní Prjónagleði á Blönduósi aðra helgina í júní: Allt að smella saman og mikil eftirvænting Svanhildur Pálsdóttir, viðburða- og markaðsstjóri hjá Textílmiðstöð Íslands, er í óða önn að undirbúa Prjónagleðina 2022, sem fram fer á Blönduósi aðra helgina í júní. Þráðlag í Heimilissafninu Það eru þau feðgin Laufey Dóra og Áskell sem annast hönnun og markaðssetningu kjólanna. Reykhólahreppur: Handverksmarkaður í Króksfjarðarnesi Þeir sem leggja leið sína í Reykhólahrepp í sumar ættu alls ekki að sleppa því að koma við á handverksmarkaðnum í Króksfjarðarnesi í gamla kaupfélagshúsinu. Þar eru vörur frá hressum og skemmtilegum konum á svæðinu, allt handunnið, eins og lopapeysur, sokkar, vettlingar og húfur og aðrar prjónavörur, munir úr tré og horni, glermunir, leirmunir, skartgripir, textílvörur, málverk, leðurvörur, jólavörur og fleira og fleira. Ekki má gleyma eina karlmanninum í hópnum en það er Arnór Grímsson, sem sér um að sjóða rabarbarasultuna fyrir veitingastaðinn í kaupfélagshúsinu. Þar er góð aðstaða til að tylla sér niður og njóta þess sem er í boði. /MHH Ingibjörg Kristjánsdóttir og Jóna Valgerður Kristjánsdóttir (t.v.), fyrrverandi alþingismaður, eiga heiðurinn af stofnun markaðarins á sínum tíma. Þær eru duglegar að standa vaktina, alltaf brosandi og kátar. Mynd / MHH

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.