Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 43

Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 43
43Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Fyrsta beikonilmvatnið var hannað af slátrara í París árið 1920 Sagan segir að Edward Bernays, sem var gyðingur, frændi Sigmund Freud og kallaður faðir almannatengsla, eigi heiðurinn að því að gera egg og beikon að vinsælasta morgunmat í heimi. Beikonbitar voru meðal þess sem geimfarar um borð í Apollo sjöunda fengu í morgunmat og telst því 1968 árið sem beikon fór fyrst út í geiminn. Síðar var haft eftir Jim Lowell, leiðangursstjóra Apollo áttunda, að hamingjan felist í að fá beikonbita í morgunmat úti í geimnum. Bestu beikonsvína- stofnar í dag eru sagðir vera Berkshire, Duroc, Hampshire, Poland China, Spot og Yorkshire. Orðsifjar Á gamalli hollensku kallaðist beikon baken en á tólftu öld kallaðist allt svínakjöt bacoun á Bretlandseyjum. Enska heitið bacon er sams konar og í fornri frönsku en það heiti er rakið til fornrar háþýsku, bacho eða bahho, sem þýðir þjór eða læri og mun vera af sama stofni og orðið bak. Nytjar Fyrir neyslu er beikon yfirleitt skorið í þunnar sneiðar og steikt á pönnu og oftar en ekki borið fram með steiktum eða hrærðum eggjum, bökuðum baunum, pönnukökum, ristuðu brauði og ýmsu grænmeti. Það er einnig notað í samlokur, á hamborgara eða skorið í bita og sett út í pottrétti, súpur og salat. Ekki er mælt með því að borða beikon hrátt. Auk þess að steikja beikon og borða það með spældu eggi suðu Rómverjar beikon, sem þeir kölluðu petaso, með fíkjum og brúnuðu síðan á pönnu og borðuðu með piparsósu. Fyrstu hamborgararnir með beikoni komu á markað um 1960. Árið 2007 var sett á markað vodka með beikonbragði og er það sagt fyrirtak sem grunnhráefni í kokteila fyrir staðfastar kjötætur. Sama ár voru settar á markað ýmsar aðrar vörur með beikonbragði, eins og beikonsalt, beikonsleipiefni, beikonvarasalvi, súkkulaði og ís svo fátt eitt sé nefnt. Svo er hægt að fá beikonilmssvitalyktaeyði, beikonrakspíra og beikon- lyktarspjöld. Einnig má geta þess að leikarinn Kevin Bacon er fæddur árið 1958. Beikon á Íslandi Smekkur fyrir beikoni er misjafn. Sumir vilja sitt beikon örþunnt og svo vel steikt að það hrekkur í sundur en aðrir kjósa þykkari sneiðar og beikonið mýkra undir tönn. Ekki eru allir heldur sammála um hvernig er best að steikja beikon og hvort best er að gera það á pönnu, í ofni eða að öbba það. Hollusta beikons hefur lengi verið á milli tannanna á fólki og án efa rétt að beikon er ekki heilsufæða og margir sem láta það ekki inn fyrir sínar varir. Aðrir kjósa að neyta þess í hófi og jafnvel til hátíðabrigða. Árið 1958 auglýsir verslunin Borg í Framsóknarblaðinu Allt, sem fáanlegt er í matvöru á sama stað og er þar á meðal að finna mör í plastpokum, beikon, súrhval, niðursoðna og þurrkaða ávexti, sígarettur og vindla. Auk þess sem bent er á að gufustraujárnin séu komin aftur. Ári síðar, 1959, er frétt á baksíðu Tímans með fyrirsögninni Svínasíður vantar eiganda. „18 svínasíður, beikon hver síða 8-9 pund, eru nú í vörzlu sakadómaraembættisins í Reykjavík. Þessir gómsætu bitar fundust rétt fyrir jólin í tveim trékössum á Stapanum á Reykjanesi rétt við veginn. Finnandinn kom þessu í kæligeymslu og hefir lítinn áhuga sýnt á að hafa uppi á eiganda. Tilfellið flokkast undir ólöglega meðferð á fundnum verðmætum. Eftirlitsmenn frá borgarlækni komu auga á þetta í kæligeymslunni, og sjá, þar var amerískur stimpill.“ Á Íslandi eins og víða annars staðar um heim hafa verið haldnar beikonhátíðir, sem hafa það að markmiði að kynna beikon fyrir almenningi og auka vinsældir þess. Beikon í uppskriftum var vinsælt efni í fjölmiðlum upp úr 1970 og hefur verið það síðan þá. Árið 2018 var staddur hér á landi í tengslum við beikonhátíð beikontrúboðinn John Whitteside en hann er jafnframt stofnandi beikonkirkjunnar, United Church of Bacon, árið 2010 og telur yfir 25 þúsund meðlimi. Samkvæmt fjórða boðorði kirkjunnar eiga meðlimir hennar að njóta lífsins, skemmta sér og vera óhrædd við að gera grín að sjálfum sér og muna að Guð er ekki beikon. Saltað. Feitt. Amerískt beikon unnið úr slögum. Slátrarar á miðöldum. Blóð-María með beikon. Steikt. Vodki með beikonbragði. Beikonilmur til að eyða svitalykt.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.