Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 47
47Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
Smiðjuvellir 9 300 Akranes 430 6600 akur@akur.is
AKURShús - timbureiningahús
íslensk hönnun
& framleiðsla
Afhent samsett á byggingarstað eða ósamsett í einingum
– Við allra hæfi –
„
Kannaðu málið á
akur.is
og pantaðu frían
húsabækling
Margar stærðir
og gerðir frá
93 - 227m2
Scanice er komið í samstarf við fyrirtækið Lark, einn stærsta framleiðanda á stöðuhýsum og
öðru tilheyrandi. Við bjóðum upp á ýmsar útgáfur húsa til dæmis sérstakra húsa sem hönnuð
eru með ferðaþjónustu í huga. Möguleikarnir eru margir og flestar óskir hægt að uppfylla.
Heyrið í okkur!
Scanice
I n n f l u t t a f
www.scan ice . i s +354-8985469
Vallargata 1, 580 Siglufjörður · s. 898 5469 · info@scaniceexport.com · www.scanice.is
Eins og flestir kannast við þá var
hætt við helstu mannamót víða um
heim þegar Covid-19 breiddist út
og það átti svo sannarlega líka
við um landbúnaðarsýningar í
Evrópu.
Nú snúa hins vegar aftur tvær
af þeim þekktari á meðal íslenskra
bænda, þ.e. EuroTier í Þýskalandi
og Agromek í Danmörku. Sú
fyrrnefnda verður haldin á sínum
stað, í Hanover, dagana 15. til 18.
nóvember nk. og Agromek sýningin,
sem haldin er í Herning á Jótlandi,
verður haldin 29. nóvember til 2.
desember nk. Nú þegar eru helstu
véla- og tækjaframleiðendur innan
landbúnaðar búnir að tilkynna
þátttöku sína á þessum frægu
sýningum sem er einkar góðs viti, en
báðar þessar sýningar, sem venjulega
eru haldnar annað hvert ár, hafa ekki
verið haldnar í fjögur ár eða síðan
árið 2018. Reiknað er með að hina
þýsku EuroTier sýningu muni um
150–200.000 manns sækja og að um
40–50.000 gestir mæti á Agromek.
/SNS
Alþjóðlegu landbúnaðar-
sýningarnar snúa aftur
Kalla eftir þátttöku á
Terra Madre Nordic
Slow Food hreyfingin á
Norðurlöndunum mun halda
matarhátíðina Terra Madre
Nordic 1.–3. september nk. í
Stokkhólmi, í samvinnu við
Eldrimner, sem eru þarlend
samtök smáframleiðenda.
Samtök smáframleiðenda
matvæla kalla eftir þátttöku
félagsmanna á hátíðinni.
Á Terra Madre Nordic
felst dagskráin í málstofum,
vinnusmiðjum, smökkunum og
uppákomum á svæðinu.
Samhliða þeirri matarhátíð
verður keppt í matarhandverki
á viðburðinum Nordic Artisan
Food Awards, sem er óformleg
Norðurlandakeppni.
Terra Madre á Norðurlöndunum
ber svipmót alþjóðlegu Terra Madre
hátíðarinnar sem haldin er í Tórínó á
Ítalíu annað hvert haust. Síðast voru
slíkar hátíðir haldnar árið 2018, en
féllu niður árið 2020 vegna Covid-
19-faraldursins.
Samkvæmt upplýsingum frá
Samtökum smáframleiðenda
matvæla stendur Íslendingum
til boða að taka þátt í nokkrum
viðburðum hátíðarinnar en
áhugasömum er bent á að hafa
samband við Slow Food á Íslandi
fyrir nánari upplýsingar. /smh
ALLAR GERÐIR
TJAKKA
SMÍÐUM FRÁ GRUNNI OG GERUM VIÐ
VHE • Melabraut 27 Hafnarfjörður • Hraun 5 Reyðarfirði
Sími 843 8804 • Fax 575 9701 • www.vhe.is • sala@vhe.is