Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 54
54 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
Nýlega fór sá er þetta skrifar
á stúfana og prufukeyrði hinn
margverðlaunaða Peugeot Partner
sendibíl sem Brimborg selur.
Ástæðan fyrir áhuga mínum á að
prufa þennan bíl frekar en annan er
vegna þess hve mörg verðlaun bíllinn
hefur hlotið. Hann ber meðal annars
titilinn International Van of the Year
2019, sem eru verðlaun fjölþjóðlegs
hóps bílablaðamanna, auk þess sem
breska tímaritið Parker setti þá á
toppinn yfir bestu litlu sendibílana
í nokkur ár.
Bíllinn sem ég prufukeyrði var
L1-Van Pro útgáfan. L1 stendur
fyrir styttra hjólabil, en hægt er að
fá aðeins lengri L2 útgáfu.
Pro stendur fyrir aukahlutapakka
og þrjú sæti, þannig að umræddur bíll
var vel útbúinn.
Stór ættbogi sendibifreiða
Peugeot Partner tilheyrir fjölskyldu
sendibíla sem allir eru í raun sami
bíllinn fyrir utan smá blæbrigðamun
á útliti og búnaði. Systkini Peugeot
Partner eru Citroën Berlingo, Opel
Combo og Toyota Proace City. Það
er því hægt að yfirfæra margt af því
sem hér kemur fram yfir á hina bílana.
Að þessu sinni keyrði ég 1,5
l dísilvél, en allir áðurnefndir
bílar munu koma til landsins sem
rafmagnsbílar á næstu vikum eða
mánuðum og mun ég eflaust reyna
einhvern þeirra til samanburðar.
Ökumannshúsið
Í ökumannshúsinu má finna ýmsar
sniðugar lausnir hvað varðar hirslur
og notagildi rýmisins afar gott.
Ég vil sérstaklega nefna
hliðarborðið sem er staðalbúnaður
í Pro útfærslunni. Með því að fella
niður sætisbakið á miðjusætinu
dregur maður fram lítið borð sem er
mátulega stórt til þess að vera með
fartölvu eða spjaldamöppu. Ég hef oft
rekið mig á að handfrjálsi búnaðurinn
í sendibílum sem þessum er svo
lélegur að hann er alveg ónothæfur.
Ég prufaði hins vegar að tengja
símann í gegnum Bluetooth sem var
mjög fljótlegt og einfalt og heyrðist
rödd mín hátt og skýrt við notkun.
Pro útfærslan er líka með sniðuga
lausn í farþegasætinu. Ýmist er
hægt að lyfta sessunni upp til þess
að fá pláss fyrir háan kassa inni
í ökumannshúsinu. Þá er einnig
hægt að draga sætisbakið fram
og fella sætið niður í gólfið. Fyrir
aftan sætisbakið leynist lúga aftur í
farangursrýmið og með hana opna
lengist farangursrýmið um 1,2 metra.
Farangursrýmið
Farangursrýmið er eins og við er að
búast af sendibíl af þessari stærð;
rúmgóður og einfaldur kassi sem
rúmar auðveldlega tvö vörubretti.
Rýmið er með góðu aðgengi frá öllum
hliðum, með rennihurðum beggja
vegna og afturhlerum sem hægt er
að opna í 180 gráður. Peugeot býður
upp á topplúgu að aftan sem getur
verið gagnleg ef flytja þarf langar
fjalir eða stiga. Hins vegar er ekki
hægt að fá bæði, svo velja þarf annað
hvort topplúgu eða tvær rennihurðir.
Ég tel þó algjöran óþarfa að
vera með topplúgu á Pro bílnum
vegna áðurnefndrar lúgu yfir í
ökumannshúsið. Afturhlerarnir eru
þannig útbúnir að hægt er að hafa
annan þeirra opinn í akstri. Því
er hægt að flytja hluti sem ná frá
mælaborðinu og út um afturhlerann.
Styttri L1 bíllinn er með 559 kg
hleðslugetu á meðan lengri útgáfan
L2 má bera 843 kg.
Aksturseiginleikar
Á þeim tíma sem reynsluakstur fór
fram lagði ég mig fram við að prufa
bílinn við sem flestar aðstæður sem
standa til boða snemma sumars;
akstur í þungri umferð, á þjóðvegi
og á grófum malarvegi.
Ég fann það strax að bíllinn er ekki
hugsaður til langferða en við akstur
heyrast mikil veg- og vindhljóð ásamt
því að ökumannssætið er ekki það
þægilegasta. Þar af leiðandi má gera
ráð fyrir að maður verði þreyttur í
eyrunum og skrokknum eftir langa
bílferð. Fjöðrunin á þessum Peugeot
er hins vegar mjög mjúk og þegar
ég ók á malarveginum tók ég eftir
því hversu vel bíllinn tókst á við gróf
þvottabretti og holur. Lausamölin
virtist ekki valda miklum vandræðum
heldur. Þó svo að þetta sé smár bíll
þá jafnast aksturseiginleikar bílsins á
malarvegi á við jeppling eða jeppa,
fyrir utan áðurnefnt veghljóð.
Á þjóðvegum er bíllinn fljótur að
ná upp aksturshraða og gírkassinn
léttur og þægilegur í meðförum.
Ég er sjálfur 191 á hæð og mér
fannst gírstöngin vera heldur langt frá
mér eins og ég var með sætið stillt.
Það sem skilur þennan Peugeot
Partner frá áðurnefndum systkinum
sínum er smágert stýrið og smekkleg
innréttingin. Stýrið er það lítið og
mælarnir það hátt uppi að maður
horfir á hraðamælinn fyrir ofan
stýrið, ekki í gegnum það eins og
gengur og gerist. Mér þykir það mjög
þægileg uppsetning og smátt stýrið
ákjósanlegt í innanbæjarakstri.
Samantekt
Peugeot Partner er smár og knár
sendibíll með mjög vel útfærða
innréttingu. Farangursrýmið er
rúmgott og nytsemi þess eykst
umtalsvert vegna lúgu inn í
ökumannshúsið. Bíllinn er með
mjúka fjöðrun og er þægilegur í
keyrslu. Helsti gallinn er veg- og
vindhljóð við akstur, en það sama
á líklegast við um flesta sendibíla í
þessum stærðarflokki.
Listaverðið á Peugeot Partner
L1 er 3.990.000 krónur með vsk.
Bíllinn sem ég prufaði var af Pro
útgáfunni með nokkrum aukahlutum,
eins og rennihurðum báðum
megin og margmiðlunarskjá með
bakkmyndavél. Sá bíll kostar
4.525.000 krónur með vsk.
VÉLABÁSINN
Ástvaldur Lárusson
astvaldur@bondi.is
Nytsamlegt farangursrými.Farþegasætið lagt niður og lúgan aftur í farangursrýmið opin. Með þessu
lengist farangursrýmið um 1,2 metra.
Lúgan góða.
Skrifborð sem hentar undir fartölvu eða spjaldamöppu. Smátt stýri sem er einkennandi fyrir Peugeot.
Peugeot Partner er smár og knár sendibíll með mjög vel útfærða innréttingu og smekklegur í útliti. Myndir / ÁL