Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 57
57 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
Heklaðir hattar eru að koma aftur
í tísku og er þessi hattur heklaður
úr 2 þráðum af DROPS Belle.
Ég heklaði hatt á dóttur mína eftir
þessari uppskrift en skipti um garn til
að fá rétta lúkkið. Dóttirin er mikill
aðdáandi Eurovision og sló úkraínska
atriðið rækilega í gegn hjá henni.
Hattinn hennar heklaði ég úr tveimur
þráðum af DROPS Safran og einum
þræði af DROPS Kid-Silk. Allar þrjár
tegundir af upptöldu DROPS garni
eru á 30 prósent afslætti hjá okkur
til og með 15. júní.
DROPS Design: Mynstur vs-083
Stærð: S/M - L/XL. Höfuðmál: ca 54/56 - 58/60 cm
Garn: DROPS Belle, 200-200 g, litur á mynd nr
25, skógarbrúnn
Bleikur hattur: DROPS Safran 100-100g, litur nr.
55 Cerise, DROPS Kid-Silk 25-25g, litur nr 13 kirsuber
Heklunál: 5,5mm
Heklfesta: 14 fastalykkjur og 16 umferðir = 10x10
cm.
STUTT ÚTSKÝRING Á STYKKI:
Hatturinn er heklaður í hring ofan frá og niður.
Hatturinn er ekki heklaður í spíral heldur er snúið
við í byrjun hverrar umferðar. Hver umferð byrjar
á 1 loftlykkju, þessi loftlykkja kemur ekki í stað 1.
fastalykkju. Umerðin endar með 1 keðjulykkju í 1.
fastapinna umferðar.
HATTUR:
Með heklunál 5,5 með 2 þráðum DROPS Belle.
Heklið 4 loftlykkjur og tengið saman í hring með
1 keðjulykkju í fyrstu loftlykkju.
1. umf: Heklið 1 loftlykkju (telst ekki með), heklið
6 fastalykkjur um loftlykkjuhringinn, lokið umferð
með 1 keðjulykkju í 1. Fastapinna. Snúið við.
2. umf: Heklið 2 fastalykkjur í hverja fastalykkju.
Snúið við. = 12 fastalykkjur.
3. umf: Heklið *2 fastalykkjur í fyrstu fastalykkju,
1 fastalykkja í næstu fastalykkju*, heklið frá *-* út
umferðina. Snúið við. = 18 fastalykkjur.
4. umf: Heklið *2 fastalykkjur í næstu fastalykkju,
1 fastalykkja í næstu 2 fastalykkjur *, heklið frá *-*
út umferðina. Snúið við. = 24 fastalykkjur.
ATHUGIÐ HEKLFESTUNA!
Haldið svona áfram og aukið út um 6 lykkjur í
hverri umferð, en í hverri umferð er hekluð 1
fleiri fastalykkja á milli hverra útaukninga. Þegar
heklaðar hafa verið 12 umferðir eru komnar 72
fastalykkjur. Í stærð M/L er hekluð 1 umferð til
viðbótar þar sem aukið er út um 2 fastalykkjur
jafnt yfir = 74 lykkjur.
BÁÐAR STÆRÐIR:
Heklið eina umferð frá réttu þannig: Heklið 1
fastalykkju utan um hverja fastalykkju, þ.e.a.s.
ekki er heklað í lykkjuna sjálfa, heldur er heklað
utan um lykkjuna. Endið umferð með 1 keðjulykkju
í fyrstu fastalykkju.
Haldið áfram að hekla fastalykkju í hverja
fastalykkju þar til stykkið mælist ca. 10-11 cm.
Mælt er frá umferðinni þar sem fastalykkjurnar
voru heklaðar utan um fastalykkjur fyrri umferðar.
Munið að snúa við í lok hverrar umferðar. Heklið
barð.
BARÐ:
Heklið 1 umferð með 1 fastalykkju í hverja lykkju
og aukið út um 3-6 lykkjur jafnt yfir = 75-80
lykkjur. Munið eftir að það er snúið við í lok hverrar
umferðar í barðinu líka.
Nú eru sett 5 prjónamerki í stykkið með 15-16
lykkjur á milli prjónamerkja.
Haldið er áfram að hekla fastalykkjur í hring,
jafnframt er aukið út um 1 lykkju á eftir hverju
prjónamerki með því að hekla 2 fastalykkjur í sömu
lykkjuna. (= 5 fastalykkjur fleiri í hverri umferð).
Haldið áfram útaukningu í hverri umferð þar til
heklaðar hafa verið 6 umferðir með útaukningum
= 105-110 fastalykkjur. Nú eru prjónamerkin
færð þannig að þau verði staðsett mitt á milli
fyrri útaukninga (þetta er gert til að formið á
barðinu verði meira hringlaga). Haldið áfram
með útaukningar við hvert prjónamerki (= 5
lykkjur fleiri í hverri umferð) 3 sinnum til viðbótar,
jafnframt í síðustu umferð er jafnframt aukið út um
0-1 fastalykkju = 120-126 fastalykkjur.
KANTUR:
Heklið 1 fastalykkju í byrjun á umferð, *3
loftlykkjur, 1 keðjulykkja í 1. loftlykkju (hnútur
gerður), sleppið 1 fastalykkju, heklið 1 fastalykkju
í næstu lykkju*, heklið frá *-* út umferðina, en
endið með 1 keðjulykkju í 1. fastalykkju í umferðar í
stað þess að hekla 1 fastalykkju. Slítið frá og gangið
frá endum.
Heklkveðjur,
Mæðgurnar í Handverkskúnst, www.GARN.is
Sumarlegur hattur
HANNYRÐAHORNIÐ
Galdurinn við Sudokuþrautirnar er að setja inn réttar tölur, frá 1–9, í eyðurn ar. Sama talan má ekki koma
fyrir tvisvar í línu lárétt og lóð rétt og heldur ekki innan hvers reits sem afmarkaður er af sverari lín um.
Létt
Þung
Miðlungs
6 9 5 8
3 7 4 5
1 8 3
8 1 5 6 7
3 7 9 4
9 1 2 6 5
6 5 1
4 2 1 3
8 4 2 9
Þyngst
1 3
6 3 5 8
3 9 7 4
8 7 3 1 2
5 9
7 5 9 2 8
1 2 3 7
9 6 8 2
6 4
3 5 4
6 1 7 5
7 9 1
2 8
3 7
4 9
5 9 6
7 4 8 5
1 3 4
1 9 2
4
9 8 3
4 8 7
6 2
2 1 4
3 8 6
2
5 9 7
Uppáhaldsdýrin eru
hestar og kindin mín
FÓLKIÐ SEM ERFIR LANDIÐ
Hamrahlíð 17
Hús Blindrafélagsins
Sími • 552-2002
ÓDÝR
Margskipt gleraugu
Verð 39.900 kr
Margskipt gler frá Essilor (afgreiðslutími +/- tvær vikur)
Gleraugu með glampa og rispuvörn
Sérsmíðum samdægurs í
styrk +/- 6,0 með cyl. til 2,0
19.900 kr.
Margskipt gleraugu
Margskipt gler frá Essilor
(afgreiðslutími +/- tv r vikur)
39.900 kr.
gleraugu
umgjörð og gler
Vigdís Anna er hestastelpa og
finnst fátt skemmtilegra en
að hleypa á stökk og hoppa á
trampólíni.
Nafn: 8 ára.
Aldur: Naut.
Stjörnumerki: Naut.
Búseta: Hofsstaðir, Borgarbyggð.
Skóli: Kleppjárnsreykjaskóli.
Hvað finnst þér skemmtilegast í
skólanum? Frímínútur.
Hvert er uppáhaldsdýrið þitt?
Hestar og Kría, kindin mín.
Uppáhaldsmatur: Pitsa.
Uppáhaldshljómsveit: Disco.
Uppáhaldskvikmynd: Zombie.
Fyrsta minning þín? Þegar við
fengum nýtt trampólín.
Æfir þú íþróttir eða spilarðu á
hljóðfæri? Nei.
Hvað ætlar þú að verða þegar þú
verður stór? Veit ekki.
Hvað er það klikkaðasta sem
þú hefur gert? Kenndi hesti
hindrunarstökk og reið berbakt.
Gerir þú eitthvað skemmtilegt í
sumar? Fer til Svíþjóðar.
Næst » Ég skora á Valgerði Karin
systur mína að svara næst.
SUDOKUÞRAUTIR Bændablaðsins