Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 58

Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022 Móðurskipið PVH, sem stofnað var á því herrans ári 1881, hefur staðið af sér öldurnar í nú rúm 140 ár en upphaflega hönnuðu stofnendurnir og bræðurnir Moses og Endel Phillips og seldu skyrtur ætluðum kolanámumönnum Pennsylvaníu. Dótturfélög fyrirtækisins í dag eru tískuveldi á borð við Tommy Hilfiger og Calvin Klein og eru núverandi stjórnendur svo sannarlega með hugann við framtíðina. Samkvæmt upplýsingum á vefsíðu PVH hafa þeir nú í nokkur ár verið í samstarfi við finnska líftæknifyrirtækið Infinited Fiber Company (IFC), sem hefur einkaleyfi á því sem kallast náttúruleg hringrás textíls. Á vefsíðu IFC kemur fram að þeir nýti úrgang, ríkan af sellulósa sem annars væri urðaður – s.s. gamla vefnaðarvöru, pappa, uppskeruleifar á borð við hrísgrjón eða hveitstrá – og umbreyti þessu í hágæða trefjar fyrir textíliðnaðinn. Í samvinnu við PHV er svo m.a. einnig verið að reyna aðrar trefjar á borð við afganga af þrúgum vínframleiðslu. Með fullkomlega hringrænt hagkerfi á stefnuskránni Þessi einkaleyfisskylda endurgerð textíltrefja IFC, sem kallast Infinna, verður notuð í framleiðslu stuttermabola nú í sumar undir merkjum Tommy Hilfiger í Evrópu. Áætlað er að vörumerkið Calvin Klein bjóði að sama skapi upp á slíkt á næstu mánuðum, en þessi ákvörðun PVH er hluti af áframhaldandi umhverfisstefnu fyrirtækisins. Með þessari tilhögun við gerð vefnaðarvara myndast nær enginn úrgangur, engin kolefnislosun og engin hættuleg efni notuð í ferlinu – en við meðhöndlun hráefnis til framleiðslu, t.d. bómullar eru í sumum tilvikum notuð varnarefni, til að koma í veg fyrir skemmdir á plöntunni sem eru í raun ekki holl okkur mönnunum. Stefnan er að allar vörur undir merkjum PVH fylgi hringrænu hagkerfi árið 2030 og lítur allt út fyrir að fyrirtækið hafi einnig möguleika á að endurvinna eigin óseldan klæðnað sem hráefni í ferli Infinited Fiber. Gæði í hönd við gæslu umhverfis Á vefsíðu Vouge Business kemur fram að Esther Verburg, framkvæmdastjóri sjálfbærra við- skipta og nýsköpunar hjá Tommy Hilfiger á heimsvísu, auk PVH í Evrópu, hafi látið frá sér þá yfirlýsingu að þau séu staðráðin í að vera brautryðjendur og eiga í samstarfi við leiðandi fyrirtæki með svipað hugarfar sem knýja áfram nýsköpunar- og sjálfbærari vörur. Með þeirri hugmynd að breyta úrgangi í nýjar vörur geti fyrirtæki lokað hringrás framleiðsluferla án þess að fórna gæðum. Mikið er um að tískufyrirtæki samræmi sig þessu hugarfari og eru þegar umhverfisvænni valkostir við bómull, skinn og leður að sækja í sig veðrið. Í apríl síðastliðnum hóf íþróttafatafyrirtækið Pangaia samstarf við IFC um að framleiða skyrtur úr efni sem einungis var gert úr Infinna textíltrefjunum og hið ágæta danska tísku- veldi Ganni tilkynnti í nóv- ember á síðasta ári, áætlaða notkun textíl- trefjanna við framleiðslu sína við hönnun í framtíðinni. Fleiri fyrirtæki í sama báti Á síðasta ári safnaði IFC 30 milljónum evra til rannsókna sinna og var meðal annars stutt af íþróttafatarisanum Adidas og tískufyrirtækjunum Bestseller (Vero Moda, Vila, Jack&Jones, Selected, Name it) og H&M. Af öðrum fyrirtækjum sem eru á þessari braut – framleiða vörur sínar úr endurunninni bómull a.m.k. eins og er – eru t.a.m. Stella McCartney og gallafatarisinn Levi's. Á sama tíma hefur Prada einnig byrjað að skipta út sumum af þekktustu nælonvörum sínum fyrir Econyl, einnig þekkt sem Re-Nylon. Á vefsíðu Prada má finna þær upplýsingar að Prada Re-Nylon verkefnið sé afrakstur samstarfs milli Prada og Aquafil, ítalsks textílgarns-framleiðanda með yfir hálfrar aldar sérfræðiþekkingu í gerð gervitrefja. Aquafil er þekkt fyrir fjárfestingu sína í byltingarkenndum rannsóknum og þróun sjálfbærra efna, sem framleiðir nýtt úr gömlu. Nælonefni Prada, Re-Nylon er semsé gert úr ECONYL®, endurnýjuðu nælongarni sem hægt er að endurvinna nær endalaust, án þess að slíkt hafi áhrif á gæði efnisins. ECONYL® garnið er annars búið til með því að endurvinna fargað plast sem safnað er frá urðunarstöðum og höfum um alla plánetuna. /SP UMHVERFISMÁL - TÍSKA FUGLINN: HÁVELLA Hringrás úrgangs er varðar gerð textíltrefja: Samstarf IFC & móðurfyrirtækis Tommy Hilfiger Nú í sumar býður merki Tommy Hilfiger í Evrópu viðskiptavinum sínum upp á stuttermaboli unna úr úrgangi sem umbreyttur hefur verið í hágæða textíltrefjar, undir nafninu Infinna. Lely Center Ísland Reykjavík: Krókhálsi 5f – Sími 414 0000 Akureyri: Óðinsnesi 2 – Sími 464 8600 GRAFAGRINDUR GOTT ÚRVAL lci.is Hávella er fremur lítil kafönd og er eina öndin okkar sem skiptir um ham eftir árstíðum. Útlitsbreytingarnar á steggnum eru sérstaklega dramatískar en hann er nánast alveg ljós á veturna og alveg dökkur á sumrin. Hávella verpir um nær allt land á láglendi og tjörnum niðri við sjó. Hávellur verpa líka inn til landsins og hefur hún verið einkennisfugl hálendisvatna og tjarna. Vetrarstöðvarnar eru síðan allt í kringum landið, bæði við strendurnar og í stórum hópum talsvert frá landi. Íslenska hávellan er staðfugl að mestu en talið er að einhver hluti þeirra dvelji við Grænland á veturna ásamt því að við Ísland bætast við vetrargestir frá norðlægari löndum. Eitt af helstu einkennum hávellunnar eru áberandi langar miðfjaðrir stéls sem steggurinn lætur standa út í loftið á pörunartíma. Það verða gjarnan mikil læti og miklar erjur milli steggja á pörunartímanum. Steggirnir keppast við að ganga í augun á kollunum með því að synda í kringum þær og kalla í sífellu nafnið sitt há-á-vella. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson Dæmi um létta tösku frá veldi Prada – gerða úr endurunna nælonefninu Re-Nylon.

x

Bændablaðið

Beinleiðis leinki

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Bændablaðið
https://timarit.is/publication/906

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.