Bændablaðið - 09.06.2022, Síða 58
58 Bændablaðið | Fimmtudagur 9. júní 2022
Móðurskipið PVH, sem stofnað var
á því herrans ári 1881, hefur staðið
af sér öldurnar í nú rúm 140 ár en
upphaflega hönnuðu stofnendurnir
og bræðurnir Moses og Endel
Phillips og seldu skyrtur ætluðum
kolanámumönnum Pennsylvaníu.
Dótturfélög fyrirtækisins í dag eru
tískuveldi á borð við Tommy Hilfiger
og Calvin Klein og eru núverandi
stjórnendur svo sannarlega með
hugann við framtíðina. Samkvæmt
upplýsingum á vefsíðu PVH hafa
þeir nú í nokkur ár verið í samstarfi
við finnska líftæknifyrirtækið
Infinited Fiber Company (IFC), sem
hefur einkaleyfi á því sem kallast
náttúruleg hringrás textíls.
Á vefsíðu IFC kemur fram að
þeir nýti úrgang, ríkan af sellulósa
sem annars væri urðaður – s.s. gamla
vefnaðarvöru, pappa, uppskeruleifar
á borð við hrísgrjón eða hveitstrá –
og umbreyti þessu í hágæða trefjar
fyrir textíliðnaðinn. Í samvinnu við
PHV er svo m.a. einnig verið að
reyna aðrar trefjar á borð við afganga
af þrúgum vínframleiðslu.
Með fullkomlega hringrænt
hagkerfi á stefnuskránni
Þessi einkaleyfisskylda endurgerð
textíltrefja IFC, sem kallast
Infinna, verður notuð í framleiðslu
stuttermabola nú í sumar undir
merkjum Tommy Hilfiger í
Evrópu. Áætlað er að vörumerkið
Calvin Klein bjóði að sama skapi
upp á slíkt á næstu mánuðum, en
þessi ákvörðun PVH er hluti af
áframhaldandi umhverfisstefnu
fyrirtækisins.
Með þessari tilhögun við gerð
vefnaðarvara myndast nær enginn
úrgangur, engin kolefnislosun og
engin hættuleg efni notuð í ferlinu
– en við meðhöndlun hráefnis til
framleiðslu, t.d. bómullar eru í
sumum tilvikum notuð varnarefni,
til að koma í veg fyrir skemmdir
á plöntunni sem eru í raun ekki
holl okkur mönnunum. Stefnan er
að allar vörur undir merkjum PVH
fylgi hringrænu hagkerfi árið 2030
og lítur allt út fyrir að fyrirtækið hafi
einnig möguleika á að endurvinna
eigin óseldan klæðnað sem hráefni
í ferli Infinited Fiber.
Gæði í hönd við gæslu umhverfis
Á vefsíðu Vouge Business
kemur fram að Esther Verburg,
framkvæmdastjóri sjálfbærra við-
skipta og nýsköpunar hjá Tommy
Hilfiger á heimsvísu, auk PVH
í Evrópu, hafi látið frá sér þá
yfirlýsingu að þau séu staðráðin í
að vera brautryðjendur og eiga í
samstarfi við leiðandi fyrirtæki með
svipað hugarfar sem knýja áfram
nýsköpunar- og sjálfbærari vörur.
Með þeirri hugmynd að breyta
úrgangi í nýjar vörur geti fyrirtæki
lokað hringrás framleiðsluferla án
þess að fórna gæðum.
Mikið er um að tískufyrirtæki
samræmi sig þessu hugarfari og eru
þegar umhverfisvænni valkostir við
bómull, skinn og leður að sækja
í sig veðrið. Í apríl síðastliðnum
hóf íþróttafatafyrirtækið Pangaia
samstarf við IFC um að framleiða
skyrtur úr efni sem
einungis var
gert úr Infinna
textíltrefjunum
og hið ágæta
danska tísku-
veldi Ganni
tilkynnti í
nóv- ember
á síðasta ári,
áætlaða notkun
textíl- trefjanna
við framleiðslu
sína við hönnun
í framtíðinni.
Fleiri fyrirtæki í sama báti
Á síðasta ári safnaði IFC 30 milljónum
evra til rannsókna sinna og var meðal
annars stutt af íþróttafatarisanum
Adidas og tískufyrirtækjunum
Bestseller (Vero Moda, Vila,
Jack&Jones, Selected, Name it) og
H&M. Af öðrum fyrirtækjum sem eru
á þessari braut – framleiða vörur sínar
úr endurunninni bómull a.m.k. eins og
er – eru t.a.m. Stella McCartney og
gallafatarisinn Levi's. Á sama tíma
hefur Prada einnig byrjað að skipta
út sumum af þekktustu nælonvörum
sínum fyrir Econyl, einnig þekkt sem
Re-Nylon.
Á vefsíðu Prada má finna þær
upplýsingar að Prada Re-Nylon
verkefnið sé afrakstur samstarfs
milli Prada og Aquafil, ítalsks
textílgarns-framleiðanda með yfir
hálfrar aldar sérfræðiþekkingu í gerð
gervitrefja. Aquafil er þekkt fyrir
fjárfestingu sína í byltingarkenndum
rannsóknum og þróun sjálfbærra
efna, sem framleiðir nýtt úr gömlu.
Nælonefni Prada, Re-Nylon er semsé
gert úr ECONYL®, endurnýjuðu
nælongarni sem hægt er að
endurvinna nær endalaust,
án þess að slíkt hafi áhrif á
gæði efnisins. ECONYL®
garnið er annars búið til
með því að endurvinna
fargað plast sem safnað
er frá urðunarstöðum og
höfum um alla plánetuna.
/SP
UMHVERFISMÁL - TÍSKA
FUGLINN: HÁVELLA
Hringrás úrgangs er varðar gerð textíltrefja:
Samstarf IFC & móðurfyrirtækis Tommy Hilfiger
Nú í sumar býður merki Tommy Hilfiger í Evrópu viðskiptavinum sínum
upp á stuttermaboli unna úr úrgangi sem umbreyttur hefur verið í hágæða
textíltrefjar, undir nafninu Infinna.
Lely Center Ísland
Reykjavík: Krókhálsi 5f – Sími 414 0000
Akureyri: Óðinsnesi 2 – Sími 464 8600
GRAFAGRINDUR
GOTT ÚRVAL
lci.is
Hávella er fremur lítil kafönd og er eina öndin okkar sem skiptir um ham eftir árstíðum. Útlitsbreytingarnar á steggnum eru sérstaklega dramatískar en hann er nánast alveg ljós á veturna og alveg
dökkur á sumrin. Hávella verpir um nær allt land á láglendi og tjörnum niðri við sjó. Hávellur verpa líka inn til landsins og hefur hún verið einkennisfugl hálendisvatna og tjarna. Vetrarstöðvarnar
eru síðan allt í kringum landið, bæði við strendurnar og í stórum hópum talsvert frá landi. Íslenska hávellan er staðfugl að mestu en talið er að einhver hluti þeirra dvelji við Grænland á veturna
ásamt því að við Ísland bætast við vetrargestir frá norðlægari löndum. Eitt af helstu einkennum hávellunnar eru áberandi langar miðfjaðrir stéls sem steggurinn lætur standa út í loftið á
pörunartíma. Það verða gjarnan mikil læti og miklar erjur milli steggja á pörunartímanum. Steggirnir keppast við að ganga í augun á kollunum með því að synda í kringum þær og kalla í sífellu
nafnið sitt há-á-vella. Mynd og texti / Óskar Andri Víðisson
Dæmi um létta tösku frá
veldi Prada – gerða úr
endurunna nælonefninu
Re-Nylon.