Faxi - 01.12.2021, Page 9
FAXI 9
Síðan var að finna út hvað lög féllu að
atburðarásinni og þau lög voru svo valin í
söngleikinn.
Voruð þið allan tímann ákveðin
í að leika sjálf í sýningunni?
Guðlaugur er fljótur að svara. „Nei, ég
vildi upprunalega bara sjá þetta verða að
veruleika, en svo þegar fór að nálgast prufur
þá hugsaði ég, ég verð að fá að vera með.“
Brynja var hins vegar ákveðin frá upphafi
að vilja leika í verkinu. „Ég hugsa að ég
hefði ekki geta setið úti í sal.“ Guðlaugur
tengir við þá reynslu, segist oft hafa ætlað
að sitja hjá en alltaf hætt við og viljað vera
með. „Þetta er náttúrulega það besta sem
maður gerir.“
Svífa á bleiku skýi
Viðtökur á leikritinu hafa verið einstaklega
góðar og parið segist svífa um á bleiku skýi.
Þau höfðu ólíkar væntingar aðspurð um
hvort viðtökurnar hafi komið á óvart eða
þau orðið hissa á þeim? „Ég get ekki sagt að
ég sé hissa, ég hafði alltaf mikla trú á þessu
verki og ég er mjög ánægð með viðtökurn-
ar. Maður vissi það bara strax þegar við
byrjuðum þetta samstarf við leikfélagið að
þetta væri eitthvað annað,“ segir Brynja Ýr.
„Ég ætla að segja að það hafi komið mér á
óvart hvað þetta sló í gegn, vegna þess að
frumsamin verk hjá áhugaleikhúsum eru
ekki endilega að draga áhorfendur að vegna
þess að fólk sækir í það sem það þekkir. Ég
held að krækjan hafi verið tónlistin sem
margir þekkja en svo kemur fólk á þessa
sýningu sem er mjög stórbrotin, hún er það
miðað við uppsetningu í svo litlu leikhúsi
og ég held að það hafi hjálpað áhuganum.
En ég bjóst ekki við þessu,“ segir Guðlaugur
sem lýsir yfir ánægju með viðtökurnar.
Við getum ekki sagt skilið við þetta
atorkusama par öðruvísi en að hlera hvort
eitthvað annað sé á döfinni hjá þeim. „Já,
það eru alltaf einhverjar hugmyndir í gangi.
Við erum með ákveðið verk í vinnslu núna
en settum það á ís meðan við erum að sýna
þetta.“ Guðlaugur segist hafa áttað sig á
ástríðunni við að semja þegar Fyrsti kossinn
var í smíðum og það verður sannarlega
gaman að fylgjast með afrekstri þeirra
Brynju Ýrar og Guðlaugs Ómars í framtíð-
inni.
Heimildir
Faxi 9. tbl. 21. árg. 1961
Faxi 10. tbl. 21. árg. 1961
Faxi 5. tbl. 22. árg. 1962
Faxi 4. tbl. 26. árg. 1966
Faxi 8. tbl. 48. árg. 1988
Faxi 3. tbl. 51. árg. 1991
Fyrsti kossinn leikskrá. Leikfélag
Keflavíkur haust 2021
Viðtöl
Brynja Ýr Júlíusdóttir og
Guðlaugur Ómar Guðmundsson
Erna Sigurbergsdóttir
Guðný Kristjánsdóttir
Guðlaugur Ómar og Brynja Ýr eru leikfélagspar sem gaman verður að fylgjast með í fram-
tíðinni. Ljósm. Svanhildur Eiríks
Brynja Ýr í hlutverki söngkonunnar Hönnu. Hér borin af Lísu Einarsdóttur, Andra Sævari
Arnarssyni og Elmari Aron Hannah í sínum hlutverkum. Ljósm. Eyþór Jónsson