Faxi - 01.12.2021, Page 20
20 FAXI
Boga Adolfssyni formanni Björgunar-
sveitarinnar Þorbjörns í Grindavík
óraði ekki fyrir því í byrjun árs að árið 2021
yrði eins og það þróaðist. Engan veginn
var hægt að sjá fyrir hvaða verkefni kæmu
í fang björgunarsveitarfólks þegar eldgos
hófst í Geldingadölum 19. mars enda segir
Bogi í samtali við Svanhildi Eiríksdóttur að
allar línulegar aðgerðaáætlanir hafi farið í
vaskinn. Við tók spírallaga atburðarás.
„Það kom alltaf upp nýtt verkefni
þegar einu var lokið. Við þurftum að gera
gönguleið eða merkja gönguleið og það
var ekki varanlegt nema í stutta stund. Þá
þurfti að byrja upp á nýtt. Aðgerðaáætlunin
gat því ekki verið línuleg, heldur hringur,
því við þurftum að gera aftur og aftur það
sama. Við gátum eiginlega ekki gert ráð
fyrir neinu, verkefnin komu manni alltaf í
opna skjöldu,“ segir Bogi.
Áttuðum okkur ekki á að gosið hefði
þetta aðdráttarafl
Verkefnin hafa verið umfangsmikil og krefj-
andi fyrir alla þá fjölmörgu viðbragðsaðila
sem hafa komið að gosinu. Bogi segir að-
stoð hafa borist víða að, frá fjörðum lengst
í vestri og austri. Í Þorbirni eru sjálfboða-
liðar í kringum 40. „Við settum bara niður
vaktafyrirkomulag strax og menn skráðu sig
niður á vaktir. Við ákváðum á fyrsta degi að
við myndum aldrei ráða við þetta ein.“
Bogi segir tvo björgunarsveitarmenn hafa
alla jafna séð um skipulagshliðina á verk-
efninu, aðrir voru á vettvangi og skiptu með
sér verkum þar. Alltaf hafi einhver stigið
inn í þegar á þurfti að halda. „Við vorum vel
undirbúin fyrir eldgos eftir alla ólguna sem
hafði verið á svæðinu, áttum mæla og grím-
ur og annan búnað en við vorum ekki búin
að undirbúa okkur undir allt þetta fólk.
Áttuðum okkur ekki á því að gosið myndi
hafa þetta gríðarlega aðdráttarafl. Fyrstu
dagarnir voru bara rugl. Við vorum fyrst og
fremst að hugsa um hættuna sem vofði yfir
„Ákváðum á fyrsta degi að við
myndum aldrei ráða við þetta ein“