Faxi

Árgangur

Faxi - 01.12.2021, Blaðsíða 27

Faxi - 01.12.2021, Blaðsíða 27
FAXI 27 að fara svona oft í gegnum þetta í hugan- um, þá veit maður hvað maður er að fara út í og alls ekki eins og verið sé að gera þetta í fyrsta skipti, þó það sé raunin.“ Í síðasta mánuði tók Elsa þátt í bik- armóti hér heima og lauk þar með keppn- istörn þessa árs. Hún gerði sér lítið fyrir og bætti eigið heimsmet í hnébeygju um 2,5 kíló, lyfti 135 kílóum sem er nýtt Íslands- met. Í mars 2022 verður Evrópumót í Lit- háen sem hún segir líklegt að hún taki þátt í. Óvissa sé hins vegar með heimsmeist- aramótið á næsta ári því það fari fram á Nýfundnalandi. „Mér finnst það hins vegar heillandi tilhugsun að viðhalda þeim árangri sem ég hef náð. Árið í ár þróaðist með allt öðrum hætti en ég átti von á svo ég er bara á einhverri óvissuleið. Þetta er óvænt upplifun en mjög skemmtileg.“ Ég get ekki sleppt Elsu lausri úr við- talinu öðruvísi en að tala aðeins um bræður hennar og föður sem ég minnist úr æsku sem mjög kraftalegra og sterkra manna. Hún sem eina systirin í hópnum hefur greinilega fengið góðan skammt af kröftum og þegar við ræðum þetta er ljóst að kraftarnir eru ekki síður úr móðurfjöl- skyldunni, bæði líkamlegir og andlegir því það þarf dug til að ryðja braut. „Elsa móðuramma mín rak dekkjaverkstæði í Reykjavík í mörg ár og það þótti mjög merkilegt enda var hún ekki með neina karlmenn í vinnu heldur gerði þetta allt sjálf svo eitthvað hef ég sennilega fengið í arf með nafninu. En ég segi þó alltaf, að þó maður hafi eitthvað gott í grunninn, byggir árangurinn alltaf á því hvað þú leggur í þetta. Þú uppskerð eins og þú sáir.“ Elsa á verðlaunapallinum á Evrópumótinu í Tékklandi. Ljósm. European Powerlifting Federation óskar starfsmönnum sínum og öllum bæjarbúum gleðilegra jóla og farsældar á komandi ári. Þökkum liðið ár. Reykjanesbær gleðilegra jóla og farsæls komandi árs, með þakklæti fyrir viðskiptin á undanförnum árum. Óskum Suðurnesjamönnum Ve s t u r b r a u t 8 • 2 3 0 R e y k j a n e s b æ r S í m i 4 2 1 4 3 8 8

x

Faxi

Beinir tenglar

Ef þú vilt tengja á þennan titil, vinsamlegast notaðu þessa tengla:

Tengja á þennan titil: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Tengja á þetta tölublað:

Tengja á þessa síðu:

Tengja á þessa grein:

Vinsamlegast ekki tengja beint á myndir eða PDF skjöl á Tímarit.is þar sem slíkar slóðir geta breyst án fyrirvara. Notið slóðirnar hér fyrir ofan til að tengja á vefinn.