Faxi

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Faxi - 01.12.2021, Qupperneq 28

Faxi - 01.12.2021, Qupperneq 28
28 FAXI Keflavíkurkirkja hefur endurnýjað helgiklæðin með kaupum á fjórum gullfallegum klæðum ofnum af Elínu Stefánsdóttur mynd- og veflistarkonu og eiginmanni hennar, Gert Madsen. Þau fyrstu, hvít að lit, voru afhent kirkjunni í desember 2018 og vígð við aftansöng á aðfangadag. Fjólubláu klæðin voru afhent í nóvember 2019 og vígð á jólaföstu það ár og grænu og rauðu klæðin voru afhent í júní 2021 og vígð við orgelvígslu í kirkjunni 3. október sl. Svanhildur Eiríksdóttir hitti tvo úr sóknarnefnd kirkjunnar og prestana tvo til þess að fræðast um klæðin. Ívar Valbergsson sem sæti á í sóknarnefnd Keflavíkurkirkju uppgötvaði handverk Elínar Stefánsdóttur við undirbúning útfarar móður sinnar Rítu Prigge Helgason sem gerð var frá Kálfatjarnarkirkju árið 2018. Séra Erla Guð- mundsdóttir sóknarprestur í Keflavíkurkirkju jarðsöng Rítu og fékk við athöfnina lánaða svarta stólu sem unnin var af Elínu. „Þarna sá ég handbragð Elínar og heillaðist af því. Ég fór í framhaldi að grennslast fyrir um hvaða listakona þetta væri og komst þá að því hvað hún er rosalega fær og hefur hannað mikið fyrir kirkjur,“ segir Ívar. Í framhaldi gáfu hann og bræður hans Reynir og Haraldur Valbergs- synir svarta stólu eftir Elínu til minningar um móður þeirra. Nýju helgiklæðin mun þægilegri en þau gömlu Ragnheiður Ásta Magnúsdóttir formaður sóknarnefndar segir nefndina ekki hafa verið lengi að sannfærast um þá hugmynd að fá ný helgiklæði. Þörf hafi verið á þeim, ekki síst þegar kirkjan öll hafði verið endurgerð. „Við erum svo þakklát fyrir að hafa komist í kynni við Elínu. Ívar kveikti neistann þegar hann og bræður hans komu færandi hendi með svarta stólu og í framhaldi höfðum við í sóknarnefnd samband við Elínu.“ Fritz Már Jörgensson prestur grípur orðið og segir hluta af gömlu helgiklæðunum hafa verið ónothæfan og því hafi prestarnir tekið þeim nýju fegins hendi. „Það er fátt eins vont og vera í óþægilegum helgiklæðum, ekki síst í hita en undir þeim erum við prestar í skrúða. Nýju helgiklæðin eru miklu þægilegri. Þau eru bæði léttari og það andar vel um þau, auk þess að vera svo falleg.“ 15 kílómetrar af silkiþráðum og 16 af örfínum ullarþráðum Elín kom í heimsókn í Keflavíkurkirkju til þess að skoða umgjörð hennar áður en hún hófst handa við hönnun helgiklæðanna. Sóknarnefndin fékk sjálf að velja táknin á klæðin og hefur hvert þeirra sérstaka merk- ingu. Erla vekur athygli á krossunum sem prýða bakhluta helgiklæðanna, stólurnar og prédikunarstólsklæðin. „Þannig er að það er enginn kross í kirkjunni, en kirkjubyggingin sjálf myndar kross og við erum með krossa í klæðunum.“ Um latneska krossinn aftan á helgiklæðun- um segir Elín: „Latneskur kross með hringboga ber vitni um að við hér erum kristin. Krossinn sjálfur er gullofinn. Tæknin er damaskvefnað- ur. Uppistaðan er sérlitað silki – einnig fóður. Ull er í ívafi og gullþráður þar sem við á.“ Ný helgiklæði í Keflavíkurkirkju Séra Erla, Ragnheiður Ásta, Ívar og Sr. Fritz með og í helgiklæðunum fjórum sem Keflavíkurkirkja á eftir Elínu. Ljósm. Svanhildur Eiríks

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.