Faxi

Ukioqatigiit
Ataaseq assigiiaat ilaat

Faxi - 01.12.2021, Qupperneq 40

Faxi - 01.12.2021, Qupperneq 40
40 FAXI Ásmundur Friðriksson - Sjálfstæðisflokki Hvaða hagsmunamál er brýnast að hljóti framgang fyrir Reykjanesið á þessu kjörtímabili? Að frumvarp til laga um framkvæmdaleyfi fyrir lagningu Suðurnesjalínu 2 sem ég er fyrsti flutningsmaður að verði samþykkt. Framkvæmdaleyfi til handa Landsneti er algjört lykilmál í okkar samfélagi og verður að gerast sem allra fyrst. Það er forsenda vaxandi byggðar sem býr við öryggi í raf- orkuflutningum, orkuskipti verða mögu- leg og fjölbreyttara atvinnulíf undirstaða velferðar. Efla Heilbrigðisstofnun Suðurnesja og fjölga tækifærum í heilbrigðisþjónustu. Vinna að lausn í framtíðarhúsnæðismál- um Fjölbrautaskóla Suðurnesja er verkefni sem ég er að skoða og vil móta þingsálykt- unartillögu um í samstarfi við þingmenn kjördæmisins. Lokakafli tvöföldunar Reykjanes- brautar í Hafnarfirði er fjármagnaður og verður verkið boðið út í byrjun árs 2022. Undirbúningur hefur tafist vegna mats á umhverfisáhrifum framkvæmdarinnar. Hafnarfjarðarbær er að ljúka við breytingar á gildandi skipulagsáætlunum á svæðinu. Breyting á aðalskipulagi svæðisins var samþykkt í bæjarstjórn Hafnarfjarðar þann 13. október sl. og er nú til meðferðar hjá Skipulagsstofnun. Þá er kaflin frá Fitjum að Flugstöð á Samgönguáætlun 2024-2029. Þar er verið að skoða stokk á leiðinni frá Fitjum að Grænási. Leggja þarf áherslu á að flýta þeirri framkvæmd. Hverju munt þú helst beita þér fyrir á þessu kjörtímabili? Fjölbreytt og sterkt atvinnulíf er grundvöllur velferðar borgaranna og aukin orkuflutningur og öryggi er forsenda vaxandi byggðar og hag- sældar fyrir íbúa á Suðurnesjum. Þessi mál, ásamt sterkari heilbrigðisþjónustu og sterkari Fjölbrautaskóla, Miðstöð símenntar og Keili, eru verkefni sem ég vil leggja á vogarskálarnar til að úr rætist. Þá vil ég beita mér í að rannsakað verði hvernig nýta megi 70 gráðu heitt kælivatn frá gagnaverum til frekari atvinnusköpunar á svæðinu. Samanber þingsályktun frá mér um sérstaka þróunaráætlun og tilraunaverkefni fyrir ræktun lyfjahamps og notkun kanna- bislyfja í lækningaskyni. Ef slíkt verkefni nær fótfestu þarf bæði mikið af heitu vatni og landi undir gróðurhús. Gamli Patterson flug- völlurinn gæti verið svæði fyrir slíka starfsemi við hlið gagnaveranna. Áframhaldandi uppbygging á Keflavíkur- flugvelli á vegum Isavia og NATO eru verkefni sem þarf að tryggja. Þá hef ég lengi haft áhuga á ræktun skjól- beltis við Reykjanesbæ og sveitarfélögin á Suðurnesjum. Gefa íbúum og fyrirtækjum tækifæri til að kolefnisjafna neyslu sína, bíla og ferðalög. Ég hef skrifað bréf og greinar um málið á undaförnum árum, flutt þings- ályktunartillögu en ekki fengið áheyrn frá neinum eða viðbrögð sem eitthvað vit er í. Merkilegt að nú eru allir að tala um þessi mál sem ég fyrir þó nokkru fór að vekja athygli á. Kannski, vonandi verð ég bænheyrður um þetta áhugamál mitt. Hversu líklegt finnst þér að stefnumál og áherslur þíns flokks fái framgang á kjörtímabilinu? Í stjórnarsáttmála ríkisstjórnarinnar má sjá að áherslur Sjálfstæðisflokksins frá síðustu kosningum birtast með mörgum hætti. Sjálfstæðisflokkurinn hefur lagt áherslu á stöðugleika í ríkisfjármálum, sterkt atvinnulíf og kaupmáttaraukningu sem er undirstaða velferðar hverrar þjóðarinn- ar. Áherslur okkar í heilbrigðismálum, samgöngum og uppbyggingu innviða verða áberandi á kjörtímabilinu. Það gekk ekki þrautalaust að koma þingi saman nú á haustmánuðum. Lyktir í talningu atkvæða í Norðvesturkjördæmi lágu ekki endanlega fyrir fyrr en undir lok síðasta mánaðar þegar Alþingi stað- festi kjörbréf þingmanna. Það mál hafði áhrif á Reykjanesið með þeim hætti að Vinstrihreyfingin - grænt framboð missti sinn þingmann og inn kom þingmaður fyrir Viðreisn. Þingkonum af Reykjanesi fækkaði jafnframt úr tveimur í eina. Þau tíðindi gerðust einnig eftir kosningar að Birgir Þórarinsson gekk úr Miðflokki yfir til Sjálfstæðisflokks. Ritstjóri Faxa hafði samband við þá sex þingmenn sem búsettir eru á Reykjanesi til þess að hlera hvaða málefni þeim þætti brýnast að vinna að fyrir svæð- ið, hverju þeir muni beita sér fyrir á nýbyrjuðu kjör- tímabili og hversu líklegt þeim þætti að áherslumál þeirra flokks næði í gegn á kjörtímabilinu. Þrír þingmannanna starfa fyrir Sjálfstæðisflokkinn, einn fyrir Samfylkinguna, einn fyrir Framsóknarflokkinn og einn fyrir Viðreisn. Þeim er hér raðað í stafrófs- röð eftir heiti. Hvaða mál telja þingmenn á Reykjanesi brýnust fyrir svæðið? Ásmundur Friðriksson

x

Faxi

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Faxi
https://timarit.is/publication/678

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.