Skessuhorn


Skessuhorn - 27.10.2021, Qupperneq 6

Skessuhorn - 27.10.2021, Qupperneq 6
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 20216 Tuttugu í ein- angrun og 146 í sóttkví VESTURLAND: Vaxandi fjöldi smitaðra er nú í einangr- un með Covid-19 á Vestur- landi. Lögreglan á Vesturlandi er hætt að birta tölfræði skipt upp eftir heilsugæsluumdæm- um, en vísar á Covid-19 vef- inn. Þar mátti á sunnu- daginn sjá að 20 manns voru í einangrun á Vesturlandi með Covid-19 og 146 í sóttkví. Á landinu öllu voru þá 653 í ein- angrun og 1.418 í sóttkví. Ný- gengi smita innanlands var 187,1 af hverjum 100 þúsund íbúum síðustu 14 daga. -mm Landinn farinn að ferðast LANDIÐ: Heildar greiðslu- kortavelta í september síð- astliðnum nam tæpum 94 milljörðum króna. Veltan dróst saman um 7,1% á milli mánaða en jókst um 32,5% samanborið við september 2020. Ferðahugur landans eft- ir afléttingu kórónaveiruhafta kemur skýrt fram í septem- ber gögnum Rannsóknaseturs verslunarinnar um innlenda kortaveltu. Erlend kortavelta hér á landi nam rúmum 18,5 milljörðum kr. í september sl. og dróst saman um 24% á milli mánaða. -mm Netspjall um innflutning gæludýra MAST: Matvælastofnun hef- ur opnað netspjall og reikni- vél til að auðvelda dýraeigend- um undirbúning innflutnings hunda og katta. Á netspjall- inu er spurningum um inn- og útflutning hunda og katta svarað. Reiknivélin tekur mið af útflutningslandi og komu- degi og birtir tímasetta áætlun um bólusetningar, sýnatökur og önnur heilbrigðisskilyrði. Jafnframt hafa leiðbeiningar á vef Matvælastofnunar verið uppfærðar og sett í þrep til að leiða innflytjendur í gegnum ferlið skref fyrir skref. Net- spjallið er eingöngu sýnilegt á opnunartíma stofnunarinnar virka daga kl. 9-12 og 13-15. -mm Haustmarkaður Gleym mér ei GRUNDARFJ: Kvenfélag- ið Gleym mér ei verður með haustmarkað í Sögumiðstöð- inni í Grundarfirði á morgun, fimmtudag, og hefst klukkan 17. Boðið er upp á vöfflur og heitt súkkulaði til sölu, brauð, kökur, prjónavöru, sultur og fleira heimatilbúið frá kvenfé- lagskonum. Þá verða tvær sýn- ingar á hinni sívinsælu mynd Mamma Mia, klukkan 18 og 20:15. Sala dagsins rennur til Krabbameinsfélags Snæfells- ness. -vaks Árgangamót ÍA í nóvember AKRANES: Árgangamót ÍA í knattspyrnu verður haldið laugardaginn 20. nóvem- ber næstkomandi og fer fram í Akraneshöllinni. Þar etja kappi knattspyrnumenn og konur sem eru 30 ára og eldri en fresta varð mótinu í fyrra vegna kórónufar- aldursins. Fyrsta árgangamót ÍA var haldið árið 2011 og ljóst að gamlir knattspyrnumenn af Skaganum þurfa að fara að setja sig í startholurnar, pússa skóna og koma sér í form. -vaks Söguskilti í Saurbæ HVALFJ.SV: Agnes M. Sig- urðardóttir biskup Íslands mun í dag, miðvikudag, klukkan 16:30 afhjúpa söguskilti við Hall- grímskirkju í Saurbæ, á Hall- grímsmessu. Að afhjúpun lok- inni verður athöfn í kirkjunni. Á skiltinu er farið yfir sögu Hallgrímskirkju, Hallgríms Péturssonar og Guðríðar Sím- onardóttur. Þetta er fyrsti lið- ur í verkefninu „Merking sögu og merkisstaða í Hvalfjarðar- sveit“ en það er unnið í sam- starfi við Markaðsstofu Vest- urlands og byggir á samstarfi þriggja sveitarfélaga við Hval- fjörð sem eru Kjósarhreppur, Hvalfjarðarsveit og Akranes og gengur út á þróun ferðaleiða um Hvalfjörð. -mm Þessa dagana er að hefjast vinna við nýtt íþróttahús á Jaðarsbökk- um á Akranesi. Í fyrsta áfanga mun Vélaleiga Halldórs Sigurðs- sonar sjá um gröft fyrir mannvirk- inu og breytingar á lögnum í jörðu ásamt því að girða af vinnusvæðið. Við þá framkvæmd mun allt bíla- stæðið framan við innganginn að sundlauginni verða lokuð almenn- ingi. Einnig munu gönguleiðir að Íþróttamiðstöðinni og Akraneshöll verða afmarkaðar. Fyrsta verkefni á svæðinu verður að setja upp vinnu- girðingu um framkvæmdasvæðið. Áætlað var að frá þriðjudeginum 26. október, í gær, yrði aðgengi að bílastæðinu lokað. Almenningi er bent á bílastæðin norðan íþrótta- húss og austan Akraneshallar. vaks Nú er unnið við efnistöku fyr- ir væntanlega vegagerð innarlega í Skorradal. Verktaki við vega- gerðina er Þróttur en undirverk- taki við efnisvinnsluna er Borgar- virki. Efnið er m.a. sótt í klappir í Fossabrekku, sem er milli bæjanna Syðstu-Fossa í Andakíl og Hálsa í Skorradal. Eftir að myrkur skall á síðastliðið fimmtudagskvöld var unnið við sprengingar við veginn og virðist sem reglur um verklag við slíkar framkvæmdir hafi verið brotnar. Lögreglu var til að mynda ekki gert viðvart, veginum var ekki lokað né settar upp viðvaranir og nágrannar heldur ekki varaðar við. Svo öflug var sprengingin að sum- ir nágrannanna héldu hreinlega að stífla Andakílsár hefði brostið. Í sprengingunni fór mikið af stór- grýti yfir veginn og lokaði hon- um. Vegfarendur sem leið áttu um gátu því ekki áttað sig á hætt- unni og óku utan í grjót á vegin- um. Þeir sluppu blessunarlega við meiðsli en var mjög brugðið. Seint um kvöldið, eftir að lögreglu og Vegagerð hafði verið gert við- vart, var rudd rás í veginn og sett- ar upp merkingar. Um nóttina var svo unnið við að fjarlægja marga rúmmetra af grjóti af veginum. Lögreglan á Vesturlandi fer með rannsókn málsins. mm/ Ljósm. kj Aðgengi að bílastæði lokað Óvarlega var staðið að sprengingum í Fossabrekku

x

Skessuhorn

Direct Links

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.