Skessuhorn


Skessuhorn - 27.10.2021, Side 31

Skessuhorn - 27.10.2021, Side 31
MIÐVIKUDAGUR 27. OKTÓBER 2021 víkur,“ rifjar Louise upp. „Þenn- an dag var mjög vindasamt svo við ákváðum að athuga með færðina á vegum. Þá kom í ljós að vegurinn var lokaður,“ bætir hún við og hlær. „Við vorum í raun strandaglópar í Borgarnesi og húsið var langt í frá tilbúið. Við ákváðum að bíða aðeins og sjá hvort veðrinu slotaði. Fórum og fengum okkur kvöldmat áður en við skoðuðum veðurspánna og færðina aftur. Hún var hvergi nærri því að breytast.“ Tjölduðu í stofunni Þá voru góð ráð dýr hjá þeim hjón- um. Þau mundu eftir að hafa fært eitthvað af dótinu sínu í geymslu í nýja húsinu í Borgarnesi og vildi svo til að einn kassanna var með úti- legudóti í. „Við settum saman tvo og tvo og ákváðum að tjalda í stof- unni. Tókum svefnpokana fram og dýnur sömuleiðis sem voru að vísu gamlar og loftlausar en dugðu til. Fórum á bensínstöðina til að eiga snarl fyrir morguninn eftir,“ segir Louise. „Í raun var þetta svo allt í lagi og við áttuðum okkur þarna á að við gætum í rauninni gist í hús- inu í eina til tvær nætur þegar við værum að vinna í húsinu, og sparað okkur þannig smá akstur.“ Þau enduðu á að nýta sér tjaldið í langan tíma og var það í raun svefnherbergið þeirra í um hálft ár. „Þetta var skemmtilegur tími. Svo var tjaldið í rauninni frekar hentugt því það komst ekkert ryk í tjaldið þar sem við gátum alltaf rennt því aftur og lokað,“ segir Louise. Halda í gamla stíl hússins Eins og fyrr segir þá var það núm- er eitt, tvö og þrjú hjá Louise og Boga að koma húsinu í stand svo þau gætu flutt inn sem þau svo gerðu í desember 2019. „Fyrstu sex mánuðina var markmiðið meðal annars að gera húsið vatnshelt, setja gler í gluggana og einangra þakið til að halda hita inni í húsinu,“ byrj- ar Louise að telja upp. „Við lög- uðum veggina, gerðum gólfin ör- uggari, skiptum húsinu niður eft- ir okkar þörfum en þó með gamlar teikningar af því til hliðsjónar. Við fengum að auki eitt barnabarn fyrr- um eiganda hússins til að koma og segja okkur frá hvernig allt saman hefði verið inni í húsinu. Það var gífurleg hjálp í því,“ segir Louise þakklát en þau Bogi leggja mikla áherslu á að útlitið sé sem næst upprunalega stíl hússins en þó sam- kvæmt nútíma byggingar viðmið- um. „Við breyttum til dæmis stig- anum hægra megin við húsið. Upp- runalega var hann mjög brattur og í raun bara hættulegur. Líklega þótti þetta töff á sínum tíma og mér skilst að það sé þekkt í sögu hússins að þarna voru margir sem kútveltust niður. Við gerðum því stigann not- hæfan og fyrst og fremst öruggan,“ bætir hún við. „Svo er víst gos- brunnur sem fylgir húsinu sem við vissum ekki af þegar við eignuðu- mst það. Hann er núna úti í Brákar- ey og við ætlum að setja hann aftur á sinn gamla stað. Við eigum bara eftir að ákveða hvort við látum vatn renna í gegnum hann eða ekki,“ bætir hún við. Húsið er á þremur hæðum. Á efstu hæðinni verður eldhús og stofa ásamt litlu baðherbergi og hægt að ganga þaðan út á verönd sem er bak við húsið. Á miðhæð- inni verður svefnálman. En enn þá er óráðið hvað verður gert við jarðhæðina og hafa Louise og Bogi íhugað að breyta hæðinni í sér íbúð til að leigja út eða jafnvel skrif- stofurými fyrir fyrirtæki þeirra, LBE ehf. „Eins og staðan er núna þá erum við ekki að gera neitt við neðstu hæðina,“ segir Louise. LBE ehf. Louise og Bogi eru verktakar og vinna þar sem verkefnin eru hverju sinni. Þau reka saman fyrirtækið sitt LBE ehf. sem þau stofnuðu í kjölfar kaupanna á 1919 húsinu undir lok 2018. Þau taka að sér lítil og meðal- stór verk við nýsmíði og endurbæt- ur fyrir heimili og fyrirtæki. „Við vorum í raun að vinna saman áður en við formlega stofnuðum rekstur- inn en viðskipta módelið hafði ekki verið til staðar. Þarna var kominn grundvöllur fyrir því að hafa ein- hvers konar umgjörð fyrir rekstur,“ útskýrir Louise. Eins og fyrr seg- ir þá er Louise innanhússarkitekt FHI og Bogi verktaki. Saman hafa þau mikla reynslu af viðgerðum, viðhaldi og endurbótum. „Í hnot- skurn þá er hægt að hafa samband við okkur, sama hversu stórar eða smáar framkvæmdirnar eru. Hvort sem um ræðir nýtt þvottahús, endurhönnun verslunarrýmis eða heila húseign, þá sjáum við um allt utanumhald hvað það varðar. Þá erum við að tala um samskipti við verktaka, sköffun efnis og þar fram eftir götum. Hugmyndin er að fólk þarf eingöngu að vera í samskiptum við okkur hvað varðar framkvæmd- ir og engan annan. Þannig ein- földum við ferlið,“ útskýrir Lou- ise. „Fólk misskilur oft og telur að það að ráða hönnuð sé dýrt þegar í raun þú ert að spara þér pening. Með því að ráða innanhússarki- tekt þá færðu einhvern sem býr yfir mikilli þekkingu og sér ekki ein- göngu til þess að hlutirnir séu fal- legir heldur fúnkeri og eru varan- legir. Þegar þú ferð í framkvæmd- ir, þá viltu bara gera það einu sinni. Þar hjálpum við,“ útskýrir Louise. „Flest verkefnin okkar eru á höfuð- borgarsvæðinu og við höfum unnið nokkur verkefni í Borgarnesi en við erum virkilega áhugasöm að taka að okkur fleiri verkefni þar og í raun á Vesturlandi öllu. Við erum mjög spennt fyrir því og hvetjum fólk til að hafa samband við okkur,“ bæt- ir Louise við að lokum. Hægt er að setja sig í samband við þau Louise og Boga inn á Facebook síðu LBE ehf glh/ Ljósm. aðsendar. Efsta hæðin í dag þar sem verður stofa, eldhús og gestabaðherbergi. Gömul mynd sem Louise og Bogi fylgja eftir varðandi útlit en þau leggja mikla áherslu á að útlitið sé sem næst upprunalega stíl hússins. Verð 990,- Verð 890,-Verð 690,- Verð 890,- Verð 590,-Verð 890,- Verð 990,- Verð 690,-Verð frá 490,- LENGRI OPNUN: 27. OKT - 29. OKT 13:00 - 20:00 SMIÐJUVÖLLUM 32 •AKRANESI WWW.DOTARI .IS•WWW.SMAPRENT.IS Verð 690,- Verð 590,- Verð 2.490,-Verð 590,- Verð 590,- Verð 990,- Verð 590,- Verð 390,- ERTU KLÁR Í HREKKJA- VÖKUNA?

x

Skessuhorn

Direkte link

Hvis du vil linke til denne avis/magasin, skal du bruge disse links:

Link til denne avis/magasin: Skessuhorn
https://timarit.is/publication/1096

Link til dette eksemplar:

Link til denne side:

Link til denne artikel:

Venligst ikke link direkte til billeder eller PDfs på Timarit.is, da sådanne webadresser kan ændres uden advarsel. Brug venligst de angivne webadresser for at linke til sitet.