Skessuhorn - 26.01.2022, Blaðsíða 11
MIÐVIKUDAGUR 26. JANÚAR 2022 11
faxafloahafnir.is
Faxaflóahafnir sf. eru með starfsemi í Reykjavík, á Akranesi, á Grundartanga og í Borgarnesi.
Öll kyn eru hvött til að sækja um en fyrirtækið hefur skýr jafnréttismarkmið og vill auka fjölbreytileika í starfsliði sínu.
Starfsstöð beggja starfanna er í Reykjavík.
Nánari upplýsingar um starfið gefur Gísli Jóhann Hallsson yfirhafnsögumaður gisli@faxafloahafnir.is
Umsókn ásamt ferilskrá sendist til Faxaflóahafna sf., á netfangið olafur@faxafloahafnir.is, eigi síðar en sunnudaginn 6. febrúar n.k.
Faxaflóahafnir sf. óska eftir að ráða réttindamanneskjur til starfa í hafnarþjónustu.
Störfin í hafnarþjónustu felast í leið- og hafnsögu skipa, skipstjórn og vélstjórn
á dráttarbátum, einnig hafnarvörslu, móttöku skipa og öðrum tilfallandi störfum.
Hjá Faxaflóahöfnum starfa 70 manns, en fyrirtækið leggur áherslu á að vera
leiðandi í umhverfismálum og að þróa snjallar og grænar hafnir. Einnig felst
í starfsemi fyrirtækisins þróun lands, umsýslu og skipulagi lóða, hafnarþjónustu
og gæðavottunum.
Unnið er samkvæmt fyrirliggjandi vaktaplani.
Erum við að leita að þér?
Skipstjóri / Hafnsögumaður
Hæfniskröfur
Skipstjórnarréttindi D (3 stig)
Slysavarnaskóli sjómanna
Góð tölvukunnátta
Góð íslensku- og ensku kunnátta
Kunnátta í einu norðurlandamáli æskileg
Vélstjóri
Hæfniskröfur
Vélstjórnarréttindi VF.1
Slysavarnaskóli sjómanna
Góð tölvukunnátta
Góð íslensku- og ensku kunnátta
•
•
•
•
•
•
•
•
•
SK
ES
SU
H
O
R
N
2
02
2
Tillaga um sameiningu
Helgafellssveitar og
Stykkishólmsbæjar
Samstarfsnefnd um sameiningu Helgafellssveitar og
Stykkishólmsbæjar hefur lagt álit sitt og helstu forsendur til
tveggja umræðna í sveitarstjórnum. Það álit nefndarinnar að
fram skuli fara atkvæðagreiðsla meðal íbúa sveitarfélaganna um
sameiningu þeirra í eitt.
Álit nefndarinnar og helstu forsendur hafa fengið tvær umræður í
sveitarstjórnum sveitarfélaganna, án atkvæðagreiðslu, samkvæmt
2. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Atkvæðagreiðsla um tillögu um sameiningu sveitarfélaganna
fer fram laugardaginn 26. mars í báðum sveitarfélögunum. Við
ákvörðun um kjördag hefur þess verið gætt að tillagan verði
kynnt íbúum með a.m.k. tveggja mánaða fyrirvara eins og áskilið
er í 4. mgr. 119. gr. sveitarstjórnarlaga nr. 138/2011.
Nánari upplýsingar er hægt að sjá á vefsíðunni
www.helgafellssveit.is/
25. janúar 2022
Jakob Björgvin Jakobsson, bæjarstjóri Stykkishólmsbæjar
og formaður Samstarfsnefndar
Fréttaveita Vesturlands
www.skessuhorn.is
Elsa Lára Arnardóttir, fyrrver-
andi þingmaður og núverandi odd-
viti Framsóknar og frjálsra á Akra-
nesi og formaður bæjarráðs, sendi í
liðinni viku frá sér yfirlýsingu þess
efnis að hún hyggist ekki gefa kost
á sér sem oddviti listans fyrir bæjar-
stjórnarkosningarnar 14. maí næst-
komandi. Flokkurinn á nú tvo full-
trúa í bæjarstjórn, en Ragnar B Sæ-
mundsson skipaði annað sæti list-
ans og er formaður skipulags- og
umhverfisráðs. Elsa Lára segir
skýringuna fyrir þessari ákvörðun
sinni vera að á kjörtímabilinu hafi
hún verið ráðin í starf aðstoðar-
skólastjóra Brekkubæjarskóla og
hafi það verið áskorun að sinna
þessum tveimur krefjandi störfum
samhliða.
Framsókn og frjálsir á Akranesi
hafa nú auglýst eftir áhugasömu
fólki á öllum aldri til að taka sæti á
lista framboðsins fyrir kosningarn-
ar í vor. Ákvörðun um framboð og
fyrirkomulag á vali á framboðslista
verður tekin á félagsfundi 7. febr-
úar nk.
mm
Fyrr í mánuðinum bárust Borgar-
byggð tveir úrskurðir samgöngu-
og sveitarstjórnaráðuneytisins
vegna ákvarðana slökkviliðsstjóra
Borgarbyggðar í málefnum Ikan
ehf., um lokun húsnæðis að Brákar-
braut 27, innsiglun húsnæðis Ikan
ehf. og synjun um afhendingu frek-
ari gagna. Ákvarðanir slökkviliðs-
stjóra voru staðfestar af hálfu ráðu-
neytis í báðum tilfellum.
„Í úrskurði samgöngu- og sveit-
arstjórnarráðuneytisins er staðfest
að aðgerðir slökkviliðsstjóra vegna
Brákarbrautar 25-27, um bæði lok-
un húsnæðisins og innsiglun hús-
næðis Ikan ehf. hafi verið í sam-
ræmi við valdheimildir slökkviliðs-
stjóra og stjórnsýslureglur. Byggð-
arráð telur mikilvægt að með þessu
liggi fyrir afstaða æðra stjórnvalds
til lögmætis umræddra aðgerða
sem hafa verið umdeildar af hálfu
þeirra leigutaka sem í eigninni hafi
verið sem og annarra íbúa sveitar-
félagsins. Niðurstaðan er því sú að
eldvarnarfulltrúi sveitarfélagsins,
Húsnæðis- og mannvirkjastofn-
un og samgöngu- og sveitar-
stjórnarráðuneytið hafa komist
að sömu niðurstöðu um aðgerðir
vegna Brákarbrautar 25-27,“ seg-
ir í bókun byggðarráðs síðastliðinn
fimmtudag. mm
Elsa Lára úr bæjarpólitíkinni
Staðfestir ákvörðun um lokun
mannvirkja í Brákarey