Skessuhorn - 08.06.2022, Blaðsíða 4
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 20224
Garðabraut 2a - Akranesi - Sími: 433 5500 - www.skessuhorn.is
Skessuhorn kemur út alla miðvikudaga. Skilafrestur auglýsinga er kl. 14.00 á þriðjudögum.
Auglýsendum er bent á að panta auglýsingapláss tímanlega. Skráningarfrestur smá-
auglýsinga er til kl. 12.00 á þriðjudögum.
Blaðið er gefið út í 3.700 eintökum og selt til áskrifenda og í lausasölu.
Áskriftarverð er 4.110 krónur með vsk. á mánuði. Elli- og örorkulífeyrisþegar greiða
kr. 3.550. Rafræn áskrift kostar 3.220 kr. Rafræn áskrift til elli- og örorkulífeyrisþega er 2.968 kr.
Áskrifendur blaðs fá 50% afslátt af verði rafrænnar áskriftar. Verð í lausasölu er 950 kr.
SKRIFSTOFA BLAÐSINS ER OPIN KL. 9-16 VIRKA DAGA
Útgefandi: Skessuhorn ehf. skessuhorn@skessuhorn.is
Ritstjórn:
Magnús Magnússon, ritstjóri s. 894 8998 magnus@skessuhorn.is
Gunnhildur Lind Hansdóttir glh@skessuhorn.is
Valdimar K. Sigurðsson vaks@skessuhorn.is
Guðrún Jónsdóttir gj@skessuhorn.is
Steinunn Þorvaldsdóttir sth@skessuhorn.is
Einnig skráðu efni í blaðið Kolbeinn Óttarsson Proppé
og Sigþór Eiríksson
Auglýsingar og dreifing:
Díana Ósk Heiðarsdóttir auglysingar@skessuhorn.is
Umbrot og hönnun:
Ómar Örn Sigurðsson umbrot@skessuhorn.is
Bókhald og innheimta:
Guðbjörg Ólafsdóttir bokhald@skessuhorn.is
Prentun: Landsprent ehf.
Leiðari
Hafnirnar eru lífæðin
Þótt ég sé í grunninn sveitastrákur finnst mér alltaf jafn spennandi að skoða
hafnir. Hvarvetna á ferð minni um landið reyni ég á koma því við að taka
bryggjurúnt. Skoða bátana stóra sem smáa og átta mig á eðli þeirrar útgerð-
ar sem rekin er á þessum stöðum. Hafnirnar eru vissulega lífæð þeirra byggða
sem byggja afkomu sína á útgerð. En svo eru einnig hafnir sem þjóna öðrum
atvinnugreinum og eru nauðsynlegar í öllum inn- og útflutningi, hvort sem það
er á hráefni, vörum eða fólki. Nefna má Grundartangahöfn þar sem ekki nokk-
ur fiskibátur leggur leið sína, heldur flutningaskip af sverari gerðinni. Þangað
kemur að jafnaði eitt flutningaskip á dag allt árið og þar er iðandi líf, en kannski
heldur stórskornara fyrir augað en smærri fiskiskipahafnir. Eðli hafna er því mis-
munandi; höfnin á Reykhólum er fyrst og fremst að þjóna Þörungaverksmiðj-
unni og saltvinnslu, hafnirnar á Hjalteyri og Húsavík eru hvalaskoðunarhafnir
og höfnin í Stykkishólmi er blanda af ferju- fiskiskipa- og skemmtiferðahöfn.
Mér segja heimildir að innan Hafnasambands Íslands séu 70 skráðar hafnir.
Eru þær hver og ein skilgreindar eftir hlutverkum sínum sem fiskihöfn, stór-
skipahöfn, skipahöfn, bátahöfn, smábátahöfn, farmhöfn, ferjuhöfn, iðnað-
arhöfn, skemmtibátahöfn og svo framvegis. Langflestar hafnir hér við land eru
þó enn fiskihafnir að hluta eða öllu leyti. Sumar þeirra taka að auki við fjöl-
breyttara hlutverki samhliða breyttum atvinnuháttum. Þannig er Grundar-
fjarðarhöfn jöfnum höndum fiskihöfn útgerða á staðnum og útgerða annars-
staðar sem kjósa að landa þar og aka með aflann, en einnig er þar vaxandi mót-
tökuhöfn fyrir skemmtiferðaskip allt sumarið. Þannig er hún sístækkandi lífæð
byggðarinnar til útgerðar og fiskvinnslu, en að auki koma um hana þúsundir
ferðamanna.
Hafnir eru dýr mannvirki en mikilvæg. Nýting þeirra ræðst þó talsvert af
vilja samfélaganna til að efla þær og hlúa að starfseminni sem þar er eða ætti
að vera. Því kom það mér skemmtilega á óvart að sjá ofarlega í nýjum sáttmála
meirihlutaflokkanna í bæjarstjórn Akraneskaupstaðar, þar sem segir: „Stækka
og bæta Akraneshöfn sem lífæð í atvinnulífi bæjarins.“ Auðvitað, ég segi ekki
annað, kominn tími til! Eftir að meginhluti þess kvóta sem þar átti lögheim-
ili flutti annað upp úr aldamótunum, hefur sífellt minna verið að gerast á þeim
hluta hafnarsvæðisins sem rúmar stærstu skipin. Loðnuvertíð í vetur var þó
kærkomin tilbreyting og ekki fjargviðrast ég yfir peningalyktinni sem lagði
um bæinn. En þarna þarf átaks við og mér finnst gleðilegt að bæjarstjórn setji
þetta á oddinn. Í síðustu viku var stórskipahöfnin einfaldlega skipslaus, en fjöldi
skemmtibáta í þar til gerðum stæðum, nokkrir sem gera þaðan út til strand-
veiða og örfáir hafa yfir kvóta að ráða.
Á öðrum höfnum er talsvert meira líf. Myndina á forsíðu þessa blaðs tók ég
á Arnarstapa síðastliðinn laugardag. Þar var á fjórða tug strandveiðibáta rað-
að saman við þröngar aðstæður, en skipulega þannig að allir gætu sótt sjóinn á
sama tíma. Þar eiga menn að vera mættir í báta sína klukkan sex að morgni, ekki
síðar. Vissulega var akkúrat þennan laugardag ekki mikið lífsmark í þessari fal-
legustu höfn landins, reyndar var verið að gera við vél í einum báti. Ferðamenn
voru þess fleiri og dáðust að því sem fyrir augu bar. Á höfnunum á norðanverðu
Snæfellsnesi var sömuleiðis greinilegt að nóg er um að vera, fiskibátar stórir
sem smáir lágu við kæja. Ég einfaldlega elska að virða þetta fyrir mér. Sjá fallega
og vel við haldna báta tilbúna fyrir að verða settir í gang og siglt á miðin, matar-
kistuna Breiðafjörð. Þá get ég vel viðurkennt að mér finnst það skemmtilegasta
við starf mitt að undirbúa útgáfu á litlu sjómannablaði. Blaði sem heiðrar störf
þeirra stunda sjóinn, færa björg í bú og eiga drýgstan þátt allra í að gera okk-
ar strjálbýla en góða land eitt það auðugasta sem til er. Fjölbreytt atvinnulíf er
nauðsynlegt, en að sama skapi er alltaf jafn mikilvægt að hlúa sem best að grunn
atvinnugreinum okkar. Þar er sjávarútvegur í öndvegi.
Ég óska sjómönnum og fjölskyldum þeirra til hamingju með hátíðisdaginn
um næstu helgi. Magnús Magnússon
Nýkjörin sveitarstjórn Dalabyggð-
ar kom saman til síns fyrsta fund-
ar á fimmtudaginn. Þar fór fram
kjör í nefndir og ráð. Eyjólfur
Ingvi Bjarnason var kosinn odd-
viti til eins árs og varaoddviti verð-
ur Ingibjörg Þóranna Steinudótt-
ir. Aðalmenn í byggðarráði verða
Skúli Hreinn Guðbjörnsson (for-
maður), Einar Jón Geirsson og
Guðlaug Kristinsdóttir. Varamenn
í byggðarráð verða Þuríður Jóney
Sigurðardóttir, Garðar Freyr Vil-
hjálmsson og Ingibjörg Þóranna
Steinudóttir.
Á fundinum var rætt um ráðn-
ingu nýs sveitarstjóra. Aflað hafði
verið tilboða frá þremur ráðn-
ingarstofum vegna aðstoðar við
ráðninguna og verður samið við
Hagvang. Ráðningasamningur
við Kristján Sturluson fráfarandi
sveitar stjóra rennur út 14. júní nk.
Var samþykkt að semja við hann
um að gegna starfi sveitarstjóra þar
til ráðning eftirmanns hans liggur
fyrir.
mm/ Ljósm. sm.
Björgunarsveitin Brák í Borgarnesi
hefur nú afhent Pétursborg, hús-
eign sína í Brákarey, nýjum eigend-
um, þeim Sigrúnu Hrönn Hauks-
dóttur og Leifi Erni Svavarssyni.
Var meðfylgjandi ljósmynd tek-
in við það tækifæri. Frá vinstri
eru Leifur Örn og Sigrún Hrönn
ásamt fulltrúum stjórnar Brákar,
þeim Einari G.G. Pálssyni, Jakobi
Guðmundssyni og Elínu Matthildi
Kristinsdóttur formanni.
Pétursborg var svo nefnd eft-
ir Pétri Albertssyni (1929-1990) á
Kárastöðum við Borgarnes sem var
ötull björgunarsveitarmaður á sinni
tíð. Björgunarsveitin eignaðist hús-
ið árið 1993 og hefur haft starf-
semi sína þar þangað til hún flutti
fyrir stuttu ofar í bæinn, í nýtt og
glæsilegt hús á Fitjunum við gatna-
mót Snæfellsnessvegar, í slakkanum
neðan við mjólkursamlagshúsið.
gj
Sjö starfsmönnum Skagans-
-3X á Akranesi og í Reykjavík var
sagt upp störfum undir lok síð-
asta mánaðar og að auki níu
starfsmönnum fyrirtækisins á Ísa-
firði. Framvegis verða öll verkefni
seld og afhent til viðskiptavina frá
Akranesi en ekki á báðum stöðum;
Ísafirði og Akranesi, eins og verið
hefur fram að þessu. Einnig verða
innkaup og vöruhús á einum stað
í framtíðinni í stað tveggja áður.
Á Ísafirði verða framleiddir íhlutir
og smærri vélar í vörulausnir sam-
stæðunnar. Þá hefur sú stefna ver-
ið mörkuð að auka áherslu á vöru-
þróun fyrirtækjanna og þjónustu á
Ísafirði. Starfsmannahópurinn tek-
ur því breytingum í ljósi þess, segir
í tilkynningu.
Að sögn Guðjóns M Ólafsson-
ar forstjóra Skagans-3X hafa ytri
aðstæður á mörkuðum verið fyrir-
tækjum undir hatti Skagans-3X
mjög erfiðar undanfarin tvö ár.
„Afleiðingar Covid þekkja allir en
stríðsátökin í Austur-Evrópu hafa
m.a. leitt til hækkandi hráefnis-
verðs, hækkunar verðs á íhlutum
og ekki síst hefur þrengt mjög að
mörkuðum. Þessar erfiðu aðstæður
eru ástæðan fyrir þeim skipulags-
breytingum sem við ráðumst nú
í,“ segir Guðjón. „Markmiðið með
þessum skipulagsbreytingum er
að bæta samkeppnishæfni fyrir-
tækisins, ná skýrara vöruframboði
og einfaldari rekstri. Við ætlum
að gera rekstur fyrirtækisins betur
í stakk búið til að takast á við sín
verkefni í því erfiða ástandi sem
nú ríkir á mörkuðum. Við erum að
velta við hverjum steini í rekstrin-
um og þessar skipulagsbreytingar
eru hluti af því ferli,“ segir Guðjón
M Ólafsson.
mm
Uppsagnir hjá Skaganum 3X
Athafnasvæði Skagans-3X á Akranesi.
Auglýst eftir nýjum
sveitarstjóra í Dalabyggð
Pétursborg afhent nýjum eigendum