Skessuhorn - 08.06.2022, Blaðsíða 22
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 202222
Stykkishólmsbær og Helgafellssveit
senda sjómönnum og fjölskyldum þeirra
hamingjuóskir í tilefni sjómannadagsins
Hilmar Björnsson var nýkom-
inn frá borði í byrjun maímánað-
ar þegar blaðamaður Skessuhorns
hitti á hann við Ólafsvíkurhöfn
til að spjalla um sjómennskuna.
„Vertíðin hefur verið góð. Það var
reyndar hrikalegt veður í janúar og
febrúar. Við náðum til dæmis ekki
nema 18 róðrum í febrúar, allt hitt
voru bræludagar,“ segir Hilmar um
vertíðina en hann rær á Kristni SH
sem er balalínubátur og hefur ver-
ið þar síðan í ársbyrjun. „Ég byrj-
aði í janúar á þessu ári og tek fimm
mánuði sem eru að fara klárast
núna í maí,“ bætir hann við.
Frétti af plássi
„Ég er búinn að vera sirka eitt og
hálft ár á sjó allt í allt,“ segir Hilm-
ar um ferilinn á sjónum sem er ekki
langur enda engin furða þar sem
Hilmar er einungis 22 ára gamall.
„Afi minn var alla tíð á sjó alveg
frá því hann var gutti. Hann sigldi
frá Sauðárkróki svo líklega koma
sjóara genin mín þaðan. Ég flyt svo
til Ólafsvíkur 2013 og hef verið hér
að mestu síðan,“ bætir Hilmar við
en hann fór ekki á sjó fyrst fyrr en
fyrir hálfu öðru ári síðan, þá á Örv-
ar SH 77. Þar áður hafði Hilmar
unnið nokkra mánuði í Hraðfrysti-
húsi Hellissands við fiskvinnslu. „Á
þeim tíma var ég á samningi hjá
Víkingi Ólafsvík í fótbolta og hafði
hugað að því að prófa sjómennsk-
una en hafði ekki tíma vegna bolt-
ans. Svo þegar ég hætti í boltan-
um hafði ég samband við Ragn-
ar skipstjóra og hann ákvað að
gefa mér séns. Ég tók eina vertíð
þar og ætlaði síðan bara að hætta á
sjó. Þá prófaði ég að flytja suður til
Reykjavíkur eftir að ég hætti á sjó
fyrir síðasta sumar. Þar var ég að
Fer úr sjómennsku í húsgagnasmíði
-Rætt við ungan sjómann frá Ólafsvík
Sjóarinn Hilmar Björnsson.
Kristinn SH við Ólafsvíkurhöfn 2. maí síðastliðinn.