Skessuhorn - 08.06.2022, Blaðsíða 55
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022 55
Þriðja bikarmót Breiðabliks í götu-
hjólreiðum var haldið á Snæfellsnesi
á laugardaginn. Þá var keppt í Jökul-
mílunni, en það voru Hjólamenn
sem byrjuðu með þessa keppni fyrir
nokkrum árum og er þetta bikarmót
byggt á þeirri keppni. Keppt var í
A, B og C flokkum karla og kvenna
ásamt U15 og U17 flokkum ung-
menna.
Það var heimamaðurinn Þorsteinn
Bárðarson sem sigraði í A flokki
karla í Jökulmílunni en hann fór 161
kílómetra á fjórum klukkustund-
um, þremur mínútum og fimmtíu
og tveimur sekúndum og var aðeins
nokkrum sekúndum á undan næstu
mönnum sem voru í öðru til fimmta
sæti. Þorsteinn hefur lagt stund á
hjólreiðar undanfarin ár og hefur
náð frábærum árangri. tfk
Elliði og Kári áttust við í 3. deild
karla í knattspyrnu síðasta föstu-
dag og var leikurinn á Fylkisvelli í
Árbæ. Lítið markvert gerðist í fyrri
hálfleik fyrr en á 39. mínútu þegar
Markús Máni Jónsson kom heima-
mönnum yfir og staðan 1-0 í hálf-
leik.
Nikulás Ingi Björnsson kom
Elliða í tveggja marka forystu á
73. mínútu og skömmu síðar fékk
Andri Júlíusson fyrirliði Kára tvö
gul spjöld og þar með rautt með
stuttu millibili. Elliðamenn sigldu
sigrinum örugglega í höfn og loka-
staðan 2-0 sigur heimamanna.
Kári er nú í tíunda sæti deildar-
innar eftir fimm umferðir með
fjögur stig en KH og ÍH sitja í
botnsætunum. Næsti leikur Kára-
manna í deildinni er á móti KFG
næsta laugardag í Akraneshöllinni
og hefst klukkan 14.
vaks
Skallagrímur og KFB mættust í A
riðli 4. deildar karla í knattspyrnu
á þriðjudag í liðinni viku og fór
leikurinn fram á Skallagrímsvelli
í Borgarnesi. Eftir tæplega hálf-
tíma leik komst KFB yfir í leiknum
með marki frá Óskari Þór Jónssyni
en Skallagrímsmenn svöruðu með
þremur mörkum áður en dómari
leiksins flautaði til hálfleiks. Alexis
Alexandrenne jafnaði eftir hálftíma
leik og þeir Elís Dofri G. Gylfason
og Arthúr Bjarni Magnason komu
heimamönnum í þægilega tveggja
marka forystu fyrir hálfleik, staðan
3-1 fyrir Skallagrím.
Elís Dofri bætti við sínu öðru
marki og fjórða marki síns liðs
fljótlega eftir hálfleik og það var
síðan Sölvi Snorrason sem gull-
tryggði stórsigur Skallagríms með
marki sjö mínútum fyrir leikslok,
lokastaðan 5-1.
Skallagrímur er á toppi A riðils
ásamt Hvíta riddaranum með níu
stig eftir þrjá leiki. Næsti leikur
liðsins er gegn Kríu í kvöld, mið-
vikudag, á Vivaldivellinum á Sel-
tjarnarnesi og hefst klukkan 20.
vaks/ Ljósm. glh
Sjö efnilegir krakkar úr íþróttafé-
laginu Undra í Dölum tóku þátt
í þriggja daga æfingabúðum í fót-
bolta í Mosfellsbæ, þar sem unnið
var í 16 manna hópum undir leið-
sögn 19 manna hóps frá Liver-
pool, auk þjálfara Aftureldingar.
Félagarnir í Undra, sem þátt tóku,
eru á aldrinum 7-10 ára og stóðu
sig með sóma. Miklar framfarir og
þroskastökk fylgir svona æfinga-
búðum og eru þær því frábær byrj-
un á fótboltasumrinu og gott tæki-
færi fyrir unga krakka.
Leikjanámskeið, frjálsíþróttaæf-
ingar og fótboltaæfingar eru komn-
ar á dagskrá félagsins fyrir sumarið,
þátttakendum að kostnaðarlausu.
Undri áformar einnig að senda 3
lið á smábæjarleikana helgina 18. –
19. júní nk. Það má því með sanni
segja að metnaður sé fyrir hendi hjá
þessu unga íþróttafélagi. bj
Síðasta föstudag mættust Víking-
ur Ólafsvík og ÍR í fimmtu umferð
2. deildar karla í knattspyrnu og
fór viðureignin fram í Ólafsvík.
Gestirnir úr Breiðholtinu komust
yfir strax á 2. mínútu með marki
Bergvins Fannars Helgasonar og
20 mínútum síðar kom Jón Gísli
Ström gestunum í tveggja marka
forystu. Þannig var staðan í hálf-
leik og útlitið ekki gott fyrir heima-
menn.
Staðan vænkaðist þó fyrir heima-
menn eftir tæplega klukkustundar
leik þegar Jorgen Petterson leik-
maður ÍR fékk rauða spjaldið og
enn meir þegar Andri Þór Sólbergs-
son minnkaði muninn fyrir Víking
13 mínútum fyrir leikslok. En Vík-
ingur náði ekki að jafna metin það
sem eftir lifði leiks og naumur sigur
gestanna staðreynd, 1-2.
Víkingur er nú í næst neðsta
sæti deildarinnar ásamt KFA með
tvö stig en á botninum situr Reyn-
ir Sandgerði enn án stiga. Næsti
leikur Víkings í deildinni er gegn
liði Þróttar á morgun, fimmtudag
á Þróttarvelli í Laugardalnum og
hefst klukkan 19.15. vaks
Hvað er betra en íslenskt fótboltasumar? Mynd aðsend
Undrabörnin í Dölunum
Þessi eru að eigin sögn bestu bolta-
sækjarar í heimi. Rakel, Guðjón og Jón.
Skallagrímur vann stórsigur á KFB
Úr leik Skallagríms og KFB í síðustu viku.
Þessar voru boltasækjarar í leiknum.
Frá vinstri: Sóley, Embla og Katla.
Andri Júlíusson fékk rautt spjald gegn Elliða. Ljósm. Kári
Kári lá fyrir Elliða
Víkingur Ólafsvík
tapaði fyrir ÍR
Þrír efstu í Elite flokki karla. F.v. Rúnar Örn Ágústsson, Þorsteinn Bárðarson og
Eyjólfur Guðgeirsson.
Heimamaður sigraði í Jökulmílunni
Þorsteinn er hér fyrir miðju í liði sínu Team Cube.