Skessuhorn - 08.06.2022, Síða 15
MIÐVIKUDAGUR 8. JÚNÍ 2022 15
Alltof víða er fötluðum gert erfitt
fyrir að sækja sér þjónustu eða
stunda innkaup vegna slæms
aðgengis. Bæði stofnanir og fyrir-
tæki geta haft áhrif á þá stöðu með
því að skoða aðstæður fyrir hjóla-
stóla við innganga og bæta úr þar
sem þarf. Árið 2015 var ákveðið
að 11. mars það árið yrði Dag-
ur aðgengis fyrir alla og það hefur
síðan breiðst út til annarra landa.
Þekkt er framtak Haraldar Þor-
leifssonar sem stóð fyrir átaki í að
setja upp rampa fyrir hjólastóla í
Reykjavík undir heitinu Römpum
upp Reykjavík.
Viðbrögð sveitarfélaga
á Vesturlandi
Haraldur hefur nú sett annað sam-
bærilegt verkefni í gang sem ber
heitið Römpum upp Ísland. Þessu
tengt hefur hann sent erindi til
allra sveitarfélaga á landinu með
fyrirspurn um hvort þau vilji vera
með í verkefninu og rampa upp
á helstu þéttbýlisstöðum. Sem
dæmi um viðbrögð sveitarfélaga
á Vesturlandi má nefna að bæjar-
stjórn Grundarfjarðarbæjar hef-
ur falið umhverfis- og skipulags-
sviði að skrá sveitarfélagið til þátt-
töku og í framhaldinu að athuga
með styrki til þess að gera úttekt á
aðgengismálum í og við opinberar
byggingar og mannvirki í sveitar-
félaginu. Byggðarráð Dalabyggðar
fagnaði erindinu á fundi nýverið og
vísaði því til umsjónarmanns fram-
kvæmda.
Framkvæmdir að hefjast
í Borgarnesi
Verkefnið er komið á rek-
spöl í Borgarnesi í samvinnu við
Borgar byggð. Þar er Hrafnhild-
ur Tryggvadóttir deildarstjóri
umhverfis- og framkvæmdamála.
Hún hafði á sínum tíma samband
við Þorleif Gunnlaugsson stjórn-
arformann og framkvæmdastjóra
verk efnisins og munu aðgerð-
ir hefjast innan skamms. Fulltrú-
ar Römpum upp Ísland eru búnir
að koma á svæðið og skanna hvar
helst verður farið í framkvæmd-
ir. Í raun er ástandið mjög gott hjá
einkaaðilum og margir staðir voru
þegar í fullkomnu lagi, en enn má
bæta um betur. Við römpunina er
farið eftir ákveðinni forgangsröðun
og áhersla eingöngu lögð á fjölsótta
staði eins og kaffihús, veitingastaði
og verslanir. Þess vegna var ekki
verið að skoða öll fyrirtæki, skrif-
stofur eða þess háttar. Fjöldi rampa
miðast við höfðatölu og má reikna
með að 6-7 rampar komi í Borgar-
nes í þessu átaki. Ekki er í öllum til-
vikum um umfangsmikið verk að
ræða heldur aðeins að setja aflíð-
andi hækkun á gangstéttar til að
auðvelda aðkomu. Verkið er unnið
í náinni samvinnu við sveitarfélagið
og tilheyrandi rekstraraðila.
Þúsund rampar 2026
Forsvarsfólk Römpum upp Ísland
hefur sett sér það markmið að þús-
und rampar verði komnir á sinn
stað fyrir Dag aðgengis fyrir alla
eftir fjögur ár, þ.e. 11. mars 2026
og hófst verkefnið í Hveragerði
og er í gangi í Keflavík núna. Til-
gangurinn er skýr; að auka aðgengi
hreyfihamlaðra að þjónustu, versl-
un og veitingahúsum á Íslandi.
Haraldur Þorleifsson er stjórn-
andi hjá Twitter og stofnandi
hönnunarfyrirtækis ins Ueno og er
hvatamaður verk efnisins eins og
áður sagði. Stofnfé framkvæmda-
sjóðs þess eru framlög frá jöfn-
unarsjóði auk stuðnings einstak-
linga, fyrirtækja, samtaka og stofn-
ana sem vilja leggja sitt af mörkum
til að tryggja aðgengi hreyfihaml-
aðra um allt land.
Nánar má sjá um þetta á www.
rampur.is og þar er hægt að sækja
um stuðning aðgengissjóðs verk-
efnisins til framkvæmda. gj
Þriðjudaginn 31. maí var mikið um
að vera í Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga þó svo að formlegu skólahaldi
væri lokið. Ástæða þess var sú að
fjölskylda Berglindar Rósu Jóseps-
dóttur gaf skólanum 147 tré til
gróðursetningar. Berglind Rósa var
starfsmaður við mötuneyti skól-
ans í nokkur ár en hún lést eftir
skammvinn veikindi 30. desember
2019, aðeins 33 ára gömul. Starfs-
menn FSN og fjölskylda Berglind-
ar komu því saman þennan dag
og gróðursettu alls 15 reynitré, 30
birkitré, 67 stafafurur og 35 aspir.
Vonir standa til að þarna muni vaxa
myndarlegur lundur í framtíðinni
til minningar um Beggu. Stefnt er
að því að setja einnig upp rólubekk
þar sem hægt verður að setjast nið-
ur og hvíla lúin bein. Fjölskylda
Beggu vill koma á framfæri þökk-
um til starfsmanna Fjölbrautaskóla
Snæfellinga og þá sérstaklega Árna
Ásgeirssonar raungreinakennara,
Ólafs Tryggvasonar umsjónar-
manns fasteigna skólans og Björns
Ásgeirs Sumarliðasonar formanns
Skógræktarfélags Stykkishólms, en
hann var einnig fyrsti forseti nem-
endafélags Fjölbrautaskóla Snæfell-
inga fyrir nokkrum árum. tfk
Dagur aðgengis fyrir alla 2026 –
römpun í Borgarnesi næst á dagskrá
Við verslunina Bjarg á Akranesi er vel hugað að aðgengi fyrir alla. Frá Borgarnesi.
Hans Bjarni Sigurbjörnsson eldri sonur Beggu lagði hönd
á plóg.
Gróðursett í minningu
Berglindar Rósu
Hópurinn sem mætti og gróðursetti samanstendur af fjölskyldu Berglindar og starfsmönnum FSN.
Hrafnhildur Hallvarðsdóttir skólameistari lét ekki sitt eftir liggja.
Berglind Rósa Jósepsdóttir.
Magni Rúnar Sigurbjörnsson, sonur Beggu, er hér með Kristjáni
Frey frænda sínum að setja niður